Apple kynnir uppfærða Macbook Air og nýjan iPad Pro

Apple kynnti allar nýj­ustu græjur og upp­færslur sem fyr­ir­tækið hefur unnið að, á árlegri haust­kynn­ingu sinni í gær. Þetta er það sem bar hæst.

Í gær hélt Apple við­burð þar sem kynntar voru nýjar Mac tölvur ásamt end­ur­hönn­uðum iPad Pro. Ólíkt síð­ustu árum fór við­burð­ur­inn fram í New York og var því tals­vert fyrr á ferð­inni en ella. Líklegt er að vinnu­fram­legð harðra Apple áhuga­manna hafi dalað eitt­hvað milli 14 og 16.

Við­burð­ur­inn fór fram í Brooklyn Academy of Music, rúm­lega 150 ára gam­alli lista­mið­stöð sem leggur mikið upp úr því að sýna það fers­kasta hverju sinni. Við­burð­ur­inn hófst á mynd­skeiði sem var eins­konar ást­ar­játn­ing Apple til New York sem var fagnað ákaft í salnum. Við­burð­ur­inn gekk vel og það væri gaman að sjá Apple færa minni við­burði út fyrir aust­ur­strönd­ina.

Endurhönnuð Macbook Air og uppfærður Mac mini

Apple hóf við­burð­inn á því að fara yfir makk­ann með mynd­skeiði sem sýndi allt klára, fal­lega, fræga fólkið sem elskar makk­ann sinn og notar hann við sköpun. Látlaust og svart­hvítt mynd­skeið með slag­orð­inu behind the mac.

Það var því við­eig­andi að fjalla næst um Macbook Air, þá Apple tölvu sem hefur náð að fjölga Mac not­endum hvað mest síð­ustu árin. Ný Air er ný eins og nýr Porsche 911. Heldur í grunn formið og bætir það sem vant­aði með smá­at­rið­unum. Stærsta breyt­ingin (og sú eina sem í raun hefði þurft að gera) er nýr Liquid ret­ina háskerpu­skjár. Skjá­stærðin er áfram 13.3“ en ramm­inn utan um skjá­inn er tals­vert minni. Vélin er einnig minni um sig og örlítið létt­ari. Tölvan kemur með tveimur Thund­er­bolt tengjum og heyrnatóla­tengi (átti það ekki að vera dautt?). Vélin kemur einnig með Touch ID fingrafara­les­ara í Lykla­borð­inu. Hátal­ar­arnir eru end­ur­hann­aðir og mikið bættir.

Sumir myndu segja að með gömlu Air fór síð­asta Macbook far­tölvan með góðu lykla­borði. Nýja vélin kemur með sama umdeilda lykla­borði og Macbook Pro. Margir hata það og afar fáir virð­ast kjósa það frekar. Að öðru leyti er vélin rök­rétt fram­hald. Nógu öfl­ugur örgjörvi fyrir almenna vinnslu og grunn­týpan með of litlu minni og geymslu­plássi, 8GB og 128GB, þannig að flestir munu kaupa týpuna fyrir ofan grunn­týpuna. Það væri þó hugg­andi ef verðið væri áram $999 eins og for­ver­inn en í takt við verð­hækk­anir á iPhone þá kostar ný Air $200 meira en for­ver­inn. Það mun þó ekki breyta því að ný Air er virki­lega aðlað­andi pakki og ætti að vera í kringum (eða jafn­vel undir) 200.000 kr. hér á landi. Hún mun því vafa­laust selj­ast mjög vel.

Hin tölvan sem Apple kynnti var upp­færður Mac mini. Í orðróma­grein minni í gær þá spáði ég því hún yrði meiri Pro græja en núver­andi vél en það er erfitt að segja Apple hafi gengið svo langt. Vélin notar þó ekki lengur far­tölvu örgjörva og er FIMM SINNUM HRAÐARI. Sem er varla mikið afrek þegar þú berð hana saman við tölvu sem hefur ekki fengið upp­færslu í 3 ár. En til að vera sann­gjarn þá er afls­mun­ur­inn umtals­verður og fyrir rétt verð er hægt að fá öfl­uga borð­tölvu í litlum pakka. Talandi um pakk­ann þá er skelin nákvæm­lega sú sama og áður nema nú kemur hún í geim­gráum lit. Verðið hækkar einnig (í takt við þema Apple 2018) og eins og með Air þá er grunn­týpan svelt bæði minni og geymslu­plássi. En fyrir þá sem eiga vand­aðan skjá og vilja litla Apple borð­tölvu þá er Mac mini að minnsta kosti orðin val­kostur aftur.

iPad Pro

Ég skil vel ef þeir sem hafa lesið hingað í grein­inni eru að fá þá mynd að við­burð­ur­inn í gær hafi verið ótta­legt vind­högg. Ást­lausar vörur fengu löngu nauð­syn­legar upp­færslur en ekki mikið meira. Nýr iPad Pro gefur þessum pæl­ingum snöggan, fastan, kinn­hest. Útgáfan sem kom í fyrra skildi aðra fram­leið­endur eftir í ryk­inu. Apple hefði vel getað haldið í þá hönnun næstu 1-2 árin með minni­háttar afl breyt­ingum. En í stað þess kynnti Apple algjör­lega end­ur­hann­aðan iPad Pro sem færir for­skot Apple langt út fyrir sjón­deild­ar­hring­inn.

Nýr iPad Pro kemur í ramma­lausri hönnun í anda iPhone X. Tvær skjá­stærðir eru í boði, 11“ og 12.9“. Minnni iPad Pro er nú með stærri skjá í sama pakka og 10.5“ Pro hafði á meðan 12.9“ útgáfan er tals­vert minni um sig en heldur sömu skjá­stærð. Áhuga­vert er að nýr 12.9“ iPad Pro er nú létt­ari en fyrsta útgáfa iPad.

Hönnunin fær margt lánað frá fyrsta iPad og iPhone 4/5. Heim tak­inn er far­inn og í stað­inn er iPad Pro nú aflæst með Face ID og virkar aflæs­ingin óháð því hvernig hann snýr. Eigendur iPad Pro síð­ustu ára finna varla fyrir afl­leysi. 2015 útgáfan af 12.9 flýgur t.d. á iOS 12 og er Því nokkuð öruggt að A12X Bionic örgjörvinn í nýja iPad Pro mun varla þurfa að svitna mikið fyrr en langt inn í seinna kjör­tíma­bil Trump. Skjárinn er auð­vitað betri, hátal­ar­arnir öfl­ugri og mynda­vél­arnar báðar end­ur­bættar…eins og alltaf. Raf­hlöðu­end­ing er áfram 10 tímar. Ólíkt öllum öðrum snjall­tækjum Apple þá kemur nýr Pro með USB-C í stað Lightn­ing. Stærsti ávinn­ing­ur­inn af þessu er stuðn­ingur við 4K skjái og betri tengi­mögu­leikar við mynda­vélar. Einnig er svo hægt að hlaða iPhone beint úr iPad Pro með USB-C í Lighting snúru. Eins og á iPhone er heyrnatóla­tengið farið og kemur aldrei aftur.

Nýr Pencil snjallpenni var einnig kynntur. Pencil fest­ist við brún­ina á iPad með öfl­ugum seglum og fær einnig þráð­lausa hleðslu á meðan hann hvílir þar. Lykla­borðið er einnig end­ur­hannað og styður nú tvær halla­still­ingar á skjánum. Surface not­endur frussa út kaff­inu af hlátri yfir þessu á meðan iPad not­endur fagna örugg­lega ákaft.

Verðið hækkar (að sjálf­sögðu) um $150. Dýrasti iPad sem hægt er að kaupa, 12.9“ með 1TB Plássi og 4G, kostar nú $1.899. Í raun mun ódýr­asti iPad Pro vænt­an­lega kosta meira en far­tölvur flestra. En þeir neyt­endur eru vænt­an­lega ekki mark­hóp­ur­inn. Ódýri 9.7“ iPad mun sjá um þennan mark­hóp áfram. iPad Pro 10.5 verður einnig áfram í boði á sama verði fyrir milli­stétt­ina.

Það er aug­ljóst að þegar Adobe kynnti fyrr í mán­uð­inum Photos­hop fyrir iPad þá var það hugsað fyrir þennan iPad. Alvöru vinnu­tæki með nægi­legt afl og geymslu­pláss (allt að 1TB) fyrir alvöru vinnu. Eina sem Apple þarf bara að gera er að sann­færa aðra app fram­leið­endur að iPad sé alvöru tölva sem þarf alvöru for­rit. Bara að Apple myndi nú leyfa alvöru vafra á iPad…en það er önnur umræða fyrir annan tíma.

Heilt yfir var þessi við­burður góður. Gott flæði og lítið um óþarfa blaður. Lekar voru færri en fyrir mán­uði og margt sem kom á óvart. Það er aug­ljóst að á mörgum sviðum er Apple hætt að keppa á verðum. iPhone þarf ekki að vera á verð­bili ann­arra síma. iPad þarf ekki að huga að verð­inu á Surface. Apple Watch er ekki að keppa við neinn annan fram­leið­anda snjallúra. Miðað við þær vörur sem fyr­ir­tækið hefur kynnt á síð­ustu vikum er lík­legt að fyr­ir­tækið haldi áfram að vera það verð­mætasta í heimi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknivarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár