Það sem búast má við á haustviðburði Apple 2018

Síðar í dag, nánar til­tekið klukkan 14 á íslenskum tíma, fer fram hinn árlegi haust­við­burður tækniris­ans Apple þar sem hann kynnir nýj­ustu tæki og tól.

Seinna í dag verður seinni haust­við­burður Apple. Við­burð­ur­inn fer fram í Brooklyn Academy of Music í New York borg. Eins og venju­lega gefur Apple ekk­ert upp hvað þeir ætla að ræða en fast­lega má búast við því að Apple kynni upp­færða iPad Pro, Macbook far­tölvur og Mac mini.

iPad

Búist er við því að nýr iPad Pro muni koma í ramma­lausri hönnun sem mun svipa til iPhone X. Heim takk­inn fær að fjúka og face-id verður notað til aflæsa tæk­inu eins og á iPhone X. Skjárinn stækkar úr 10.5“ í 11“ á minni iPad Pro en verður áfram 12.9“ á stærri útgáf­unni.

Líklegt er að nýr iPad Pro muni verða með USB-C tengi í stað hefð­bund­ins lightn­ing tengis eins og hefur verið á öllum snjall­tækjum Apple frá 2012. USB-C bíður upp á ýmsa nýja mögu­leika eins og hrað­hleðslu og stuðn­ing við 4K skjái. Allt inn­volsið fær svo upp­færslu sem og mynda­vélin. Til við­bótar við nýja iPad Pro þá mun Apple kynna nýjan Pencil snjallpenna og mögu­lega upp­færða iPad mini 4 sem væri þá hugsuð sem ódýr­ari val­kostur en hefð­bundni iPad 9.7 sem hefur kostað um 50.000 kr. ($329). Nýr mini verður með öfl­ugri inn­volsi en ódýr­ari skjá. Ekki er búist við því að útlit­inu verði breytt.

Macbook (Air?)

A síð­ustu árum hefur Apple lítið sem ekk­ert upp­fært Macbook Air far­tölv­una. Tölvan var einu sinni sölu­hæsta tölva fyr­ir­tæk­is­ins en er nú bara vand­ræða­legur minn­is­varði um úreltan vél­búnað. Margt bendir til þess að þegar Apple kynnti nýju 12“ Macbook far­tölv­una árið 2015 hafi áætl­unin verið að drepa Macbook Air í vöru­lín­unni og ein­falda fram­boðið með því að hafa Macbook sem ódýr­ari val­kost­inn og svo Macbook Pro fyrir þá sem þurfa öfl­ugri val­kost. En intel Core-M örgjörvinn hefur ekki ennþá náð því flugi sem Intel von­að­ist eftir. Hann er dýr og afl­lít­ill miðað við verð og því ekki góður val­kostur í ódýra Mac tölvu.

[adspot]Búist er við því að Apple lagi þetta vanda­mál en óvíst er hvort það verður með því að end­ur­hanna Macbook sem alvöru ódýran val­kost eða kynna nýja Macbook Air. Hvor leiðin sem þeir fara þá verður nýja tölvan þunn og létt með 13“ háskerpu skjá. Núver­andi tölva kostar $999 og er lík­legt að Apple reyni að halda í það grunn­verð. Ef nýja vélin verður kynnt undir nafni Macbook Air þá er mjög lík­legt að litla 12“ Macbook fái einnig inn­vols upp­færslu.

Mac mini og iMac

Fáar vörur hafa fengið eins litla ást innan fyr­ir­tæk­is­ins og Mac mini. Núver­andi mini fékk síð­ast upp­færslu fyrir rúmum fjórum árum. Í ljósi þess bjugg­ust flestir við því að Apple myndi ein­fald­lega hætta fram­leiðslu á Mac mini en nýjasti orðróm­ur­inn er sá að ekki aðeins fái tölvan inn­vols upp­færslu heldur verði nýr og end­ur­hann­aður Mac mini kynntur og muni þá einnig koma í útgáfa sér­stak­lega fyrir þá sem þurfa mikið af. Apple upp­færir iMac tölv­urnar reglu­lega og er lík­legt að nýjar og bættar vélar verði kynntar á eftir. ólík­legt er þó a útlit­inu verði breytt heldur aðeins skjáir og inn­vols.

…Eitt að lokum?

Mögulega mun Apple sýna nýju Mac Pro tölv­una sem er vænt­an­leg á næsta ári eða jafn­vel upp­færðan iMac Pro. Einnig er lík­legt að Airpods heyrn­ar­tólin fái stuðn­ing við þráð­lausa hleðslu. Svo er alltaf mögu­leiki að Apple kynni loks Airpower hleðslu­mott­una sem átti að koma í sölu í fyrra og hefur verið einn vand­ræða­legur brand­ari á kostnað fyr­ir­tæk­is­ins.

Hvernig er best að fylgjast með?

Við­burð­ur­inn er sá fyrsti í mörg ár sem er ekki kl. 17:00 að íslenskum tíma heldur byrjar hann klukkan 14:00. Þetta er sökum þess að við­burð­ur­inn er í New York en ekki San Francisco eins og venjan er. Apple verður með streymi af við­burð­inum og helstu tækni­blogg verða með beina texta­lýs­ingu. Tækni­varpið mun svo gera þætt­inum góð skil í þætti vik­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknivarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár