Stúlka undir 18 ára aldri gift á þriggja sekúndu fresti

Alþjóða­dagur stúlku­barna er á morgun, 11. októ­ber, og ætla sam­tökin Barna­heill - Save the Children á Íslandi að helga dag­inn bar­átt­unni gegn barna­hjóna­böndum.

Munni, 16 ára stúlku sem býr í fátækrahverfi í Patna, Indlandi ásamt foreldrum sínum, fimm bræðrum og tveimur systrum.
Munni, 16 ára stúlku sem býr í fátækra­hverfi í Patna, Indlandi ásamt for­eldrum sínum, fimm bræðrum og tveimur systrum. Mynd: Save the Children

Þriðju hverju sek­úndu árið um kring er stúlka undir 18 ára aldri gift, oft­ast sér eldri karli. Ef heldur sem horfir verða 134 millj­ónir stúlkna giftar á ára­bil­inu 2018 til 2030. Árið 2030 eitt og sér munu tíu millj­ónir stúlkna gift­ast og ríf­lega tvær millj­ónir þeirra munu gift­ast áður en þær hafa náð 15 ára aldri.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Save the Children, Working Together to End Child Marriage, og greint frá í til­kynn­ingu frá Barna­heill - Save the Children á Íslandi í dag. Alþjóða­dagur stúlku­barna er á morgun, 11. októ­ber, og hafa sam­tökin helgað dag­inn bar­átt­unni gegn barna­hjóna­böndum.

Í skýrsl­unni segir að ef ekk­ert verði að gert muni barna­hjóna­bönd rýra lífs­gæði millj­óna stúlkna, hefta mögu­leika þeirra til mennt­unar og að lifa til fulls. Þær séu lík­legri til að deyja af orsökum sem hægt er að fyr­ir­byggja.

Menntun stúlkna lykilatriðið til árangurs

Enn fremur kemur fram að hafi stúlkur frelsi til að njóta bernsk­unnar, mennta sig og njóta verndar hafi það afar jákvæð áhrif á lífs­hlaup þeirra. Ef hjóna­bandi og barn­eignum stúlkna er frestað fram yfir 18 ára aldur séu meiri líkur á að þær haldi áfram skóla­göngu og ljúki menntun. Í því felist mikil vald­efl­ing og stúlk­urnar séu lík­legri til að vera virkar í sam­fé­lag­inu, verða efna­hags­lega sjálf­stæðar og leggja sitt af mörkum til efna­hags­lífs­ins.

„Stjórn­völd í þeim löndum þar sem barna­brúð­kaup eru hvað algeng­ust verða að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þróa og virkja aðgerða­á­ætl­anir á öllum sviðum til að stöðva vand­ann. Það felur í sér skipu­lag aðgerða þvert á ráðu­neyti og meðal hags­muna­að­ila svo hægt sé að stilla saman strengi og ná árangri.

Menntun stúlkna er lyk­il­at­riði til að ná árangri. Samkvæmt nýrri grein­ingu Barna­heilla – Save the Children mætti afstýra 51 milljón barna­hjóna­banda til árs­ins 2030 með því að tryggja stúlkum grunn­menntun upp að 16 ára aldri. En til þess að það geti orðið þarf að leggja mun rík­ari áherslu á að upp­ræta kynja­ó­jafn­rétti og aðrar und­ir­liggj­andi orsakir fyrir brott­falli stúlkna úr skóla,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár