Svona ætlar ríkisstjórnin að efla traust á stjórnmálum

Starfs­hópur vill láta „lobbyista“ skrá sig og gera sam­skipti þeirra við stjórn­völd gegnsæ, setja reglur um störf stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna fyrir aðra ogr auka hags­muna­skrán­ingu. Þá vill hann að fleiri setji sér siða­reglur.

Jón Ólafsson var formaður starfshópsins.
Jón Ólafsson var for­maður starfs­hóps­ins. Mynd: Aðsend

Hags­muna­vörðum, á ensku „lobbyistar“, sem eiga sam­skipti við stjórn­mála­menn og stjórn­sýslu verður gert að skrá sig sem slíka, hags­muna­skrán­ing ráð­herra verður útvíkkuð til maka og ólög­ráða barna og reglur verðar settar um starfs­val eftir opin­ber störf sem koma eiga í veg fyrir að „starfs­fólk stjórn­sýslu eða kjörnir full­trúar gangi inn í störf hjá einka­að­ilum vegna aðgangs að upp­lýs­ingum úr opin­beru starfi“.

Þetta er á meðal þess sem verður að veru­leika ef þær 25 til­lögur sem starfs­hópur um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu, sem skip­aður var í upp­hafi árs, verða inn­leiddar. Skýrsla hóps­ins var kynnt í rík­is­stjórn í gær og gerð opin­ber í dag.

Hópurinn var skip­aður í byrjun jan­úar síð­ast­lið­ins. Þá kom fram að hann ætti meðal ann­ars að taka mið af starfi sem unnið hefur verið í tengslum við opin­ber heil­indi hér­lendis og erlend­is, til dæmis vænt­an­legri fimmtu úttekt­ar­skýrslu GRECO, sem fjallar meðal ann­ars um vernd gegn spill­ingu meðal æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds. Hann átti að skila af sér í síð­asta lagi 1. sept­em­ber, sem var síð­asta laug­ar­dag.

Traust á Alþingi hefur þok­ast upp á við und­an­farið og mælist nú 29 pró­sent. Það er mesta traust sem mælst hefur gagn­vart lög­gjaf­ar­þing­inu í ára­tug.

Siðareglur endurskoðaðar

Tillögur hóps­ins skipt­ast í átta meg­in­svið og um er að ræða, líkt og áður sagði, 25 ein­stakar til­lögur. Á meðal þess sem hóp­ur­inn leggur til er að rík­is­stjórnin setji fram stefnu­skjal sem lýsi mark­miðum hennar um heil­indi, svo­kall­aðan heil­ind­ara­mma. Hann á að mót­ast af þeim atriðum sem fjallað verður um hér að neðan.

Lagt er til að siða­reglur ráð­herra verði end­ur­skoð­aðar, að slíkar verði settar fyrir aðstoð­ar­menn ráð­herra og mögu­lega fleiri hópa innan stjórn­sýsl­unnar, að gagn­sæi verði aukið, miðlun upp­lýs­inga verði bætt og upp­lýs­inga­réttur almenn­ings styrktur, meðal ann­ars með því að stytta afgreiðslu­tíma úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála og ráð­ast í heild­ar­stefnu­mótun til almenn­ings, þar með talin upp­lýs­inga­gjöf hand­hafa dóms­valds og lög­gjaf­ar­valds.

Staða „lobbyista“ gjörbreytist

Þá er lagt til að reglur um hags­muna­skrán­ingu ráð­herra muni ná til fleiri þátta, meðal ann­ars skulda og að hún taki einnig til maka og ólög­ráða barna ráð­herr­ans.

Ein stærsta breyt­ingin sem hóp­ur­inn leggur til snýr að sam­skiptum stjórn­mála og stjórn­sýslu við aðila sem stunda hags­muna­vörslu, sem á ensku kall­ast „lobby­ism“. Í til­lögum hóps­ins er lagt til að þeir aðilar sem „hafa atvinnu af því að tala máli hags­muna­að­ila gagn­vart stjórn­mála- og emb­ætt­is­mönnum verði gert að skrá sig sem hags­muna­verði (e. lobby­ist)“. Þá er lagt til að reglur verði settar um hvernig sam­skiptum við hags­muna­að­ila verði háttar til að tryggja fullt gagn­sæi um sam­skiptin.

Aðgengi hags­muna­vörslu­afla, t.d. hags­muna­sam­taka ein­stakra starfs­stétta, að stefnu­mótun og frum­varps­gerð innan stjórn­sýsl­unnar hefur lengi þótt, í sumum til­vikum, í besta falli á gráu svæði.

Reglur um starfsval eftir opinber störf

Mikla athygli vekur síðan til­laga um að setja þurfi reglur um „starfs­val eftir opin­ber störf sem koma í veg fyrir að starfs­fólk stjórn­sýslu eða kjörnir full­trúar gangi inn í störf hjá einka­að­ilum vegna aðgangs að upp­lýs­ingum úr opin­beru starfi. Slíkar reglur varða einkum tíma sem nauð­syn­legt er að líði frá starfs­lokum og þar til starf fyrir einka­að­ila hefst.“ Engar reglur eru sem stendur í gildi hér­lendis um starfs­val í kjöl­far starfa fyrir hið opin­bera.

Í skýrsl­unni segir að hætta sé „ann­ars vegar á hags­muna­á­rekstrum; að hags­munir verð­andi vinnu­veit­anda geti haft áhrif á ákvarð­anir á meðan ein­stak­lingur starfar enn fyrir hið opin­bera. Hins vegar er sá mögu­leiki fyrir hendi að upp­lýs­ingar sem við­kom­andi öðl­ast í starfi sínu séu nýttar á ótil­hlýði­legan hátt í þágu einka­að­ila þegar skipt er um starfs­vett­vang, en slíkt getur bæði haft ólög­mæt áhrif á sam­keppni og gengið gegn opin­berum hags­munum.“

Fjölmörg dæmi er um það að ein­stak­lingar hafi farið úr trún­að­ar­störfum í stjórn­málum og hafið störf fyrir hags­muna­að­ila. Nægir þar að nefna Einar K. Guð­finns­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og for­seta Alþingis, sem er í dag stjórn­ar­for­maður og helsti tals­maður Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva, Katrínu Júl­í­us­dóttir, sem var fjár­mála­ráð­herra en hóf störf sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja þegar hún hætti í stjórn­málum, og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sem var mennta­mála­ráð­herra, en starf­aði sem for­stöðu­maður mennta- og nýsköp­un­ar­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins á meðan að á póli­tískri útlegð hennar stóð.

Þá eru dæmi eru um að ein­stak­lingar hafi farið úr störfum fyrir hið opin­bera þar sem þeir höfðu miklar trún­að­ar­upp­lýs­ingar undir höndum, og í störf fyrir aðra hags­muna­að­ila sem hafa gagn­stæða hags­muni en hið opin­bera í sama mála­flokki. Skýrasta dæmi þess var þegar Benedikt Gíslason, sem var lyk­il­maður í fram­kvæmd­ar­hópi um afnám hafta og kom að gerð stöð­ug­leika­samn­inga við kröfu­hafa föllnu bank­anna, réð sig til starfa sem ráð­gjafi hjá Kaup­þingi. Benedikt hefur þó ætið full­yrt að hann hafi ekki nýtt sér trún­að­ar­upp­lýs­ingar í því starfi.

Löggjöf til að vernda uppljóstrara

Hópurinn leggur líka til að heild­stæð lög­gjöf verði unnin sem fyrst um upp­ljóstr­ara­vernd fyrir opin­bera starfs­menn og einka­geir­ann. Þar væri hægt að taka mið af nýlegri lög­gjöf í Noregi.

Stjórn­völd ættu að auka sam­ráð við almenn­ing og setja sé skýr mark­mið þar um. Auk þess er lagt til að sam­ráðs­gátt stjórn­valda verði efld og hún kynnt betur. „Stjórn­völd leggi sig fram um að nýta hug­búnað og vef­lausnir til að auka þátt­töku almenn­ings og stefni að því að Ísland verði í hópi þeirra landa sem fremst standa í nýsköpun á sviði lýð­ræðis,“ segir í skýrsl­unni. Hópurinn vill líka að Ísland sæki um Open Govern­ment Partners­hip í sam­vinnu við félaga­sam­tök og að unnið verði að því að styrkja borg­ara­legan vett­vang t.d. með föstum styrkjum til félaga­sam­taka sem upp­fylla til­tekin skil­yrði um starf­semi og skipu­lag.

Siðfræðistofnun annist eftirfylgni og fái fjárveitingu til þess

Starfs­hóp­ur­inn vill að símenntun starfs­fólks verði efld, fræðsla verði aukin og að stuðlað verði að því að efla gagn­rýna umræðu innan stjórn­sýsl­unnar þar sem „slík umræða er for­senda þess að ráðu­neyti og ein­stakar starfsein­ingar beri kennsl á brotala­mir í starf­sem­inni til að hægt sé að breyta stofn­ana­menn­ingu þegar nauð­syn krefur.“

[adspot]Að lokum er lagt til að Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands verði falið það verk­efni, tíma­bundið til að byrja með, að veita stjórn­völdum ráð­gjöf um sið­ferð­is­leg álita­mál og þannig verði stofna­naum­gjörð styrkt. Stofn­un­inni verði einnig falið að ann­ast eft­ir­fylgni með skýrsl­unni. Tryggja þurfi fjár­veit­ingu til þeirrar starf­semi.

Þá verði sett á fót „nefnd eða ein­ing innan stjórn­sýsl­unnar með það sér­hæfða hlut­verk að veita ein­stökum starfs­mönnum, þ.m.t. ráð­herrum, ráð­gjöf í trún­aði um sið­ferði­leg álita­mál.“

Starfs­hóp­inn skip­uðu Jón Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands, sem jafn­framt var for­maður hóps­ins, Ólöf Embla Eyj­ólfs­dóttir, MSt í heim­speki, Páll Þór­halls­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti, Ragna Árna­dóttir, lög­fræð­ingur og Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri. Með hópnum starf­aði Oddur Þorri Við­ars­son, lög­fræð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár