Stýrivextir áfram 4,25 prósent – Hagvöxtur í ár 3,6 prósent

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands hald­ast enn og aftur óbreyttir.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri. Mynd: Kjarninn.

Stýri­vextir verða áfram 4,25 pró­sent sam­kvæmt ákvörðun Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands sem kynnt var í morg­un.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í ágúst­hefti Pen­inga­mála, sem kom einnig út í dag, verði 3,6 pró­sent hag­vöxtur í ár eins og í fyrra. „Þetta er aðeins meiri vöxtur en bank­inn gerði ráð fyrir í maí. Stafar það einkum af því að fram­lag utan­rík­is­við­skipta er hag­stæð­ara og vegur það þyngra en hæg­ari vöxtur þjóð­ar­út­gjalda. Áfram eru horfur á að dragi úr hag­vexti með hæg­ari vexti útflutn­ings og inn­lendrar eft­ir­spurnar. Þróun íbúða­verðs og vís­bend­ingar af vinnu­mark­aði benda í sömu átt.“

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að verð­bólga hafi verið 2,3 pró­sent á öðrum fjórð­ungi árs­ins en hafði auk­ist í 2,7 pró­sent í júlí. „Verð­bólga án hús­næðis hefur einnig auk­ist og mun­ur­inn milli mæli­kvarða á verð­bólgu með og án hús­næðis hefur minnkað mikið. Áfram dregur úr árs­hækkun hús­næð­is­verðs en gagn­stæð áhrif geng­is­breyt­inga krón­unnar á verð­bólg­una hafa dvínað og elds­neyt­is­verð hefur hækkað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næst­unni. Gengi krón­unnar hefur lækkað aðeins frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar en gjald­eyr­is­mark­að­ur­inn hefur áfram verið í ágætu jafn­vægi.

Vís­bend­ingar eru um að lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar hafi farið eitt­hvað yfir mark­mið. Pen­inga­stefnu­nefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verð­bólgu við mark­mið til lengri tíma litið. Haldi verð­bólgu­vænt­ingar áfram að hækka og fest­ist í sessi umfram mark­mið mun það kalla á harð­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar. Aðrar ákvarð­anir, einkum á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum, hafa þá áhrif á hversu mik­ill fórn­ar­kostn­aður verður í lægra atvinnustigi.

Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili minni spennu í þjóð­ar­bú­skapnum, launa­á­kvarð­ana og þró­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár