Hvað er karlmennska? – Umræðan heldur áfram

Síð­ast­lið­inn vetur deildi fjöldi karl­manna reynslu sinni og upp­lif­unum á sam­fé­lags­miðlum undir myllu­merk­inu #karl­mennskan og sýndi fram á að svokölluð „eitruð karl­mennska“ leyn­ist í hinum ýmsu kimum sam­fé­lags­ins.

Á tímum opinnar umræðu þar sem fólki gefst í auknum mæli tæki­færi til að tala opin­skátt um reynslu sína, til­finn­ingar og upp­lif­anir þá hefur verið bent á að það karllæga sam­fé­lag sem er við lýði hefur ekki ein­ungis áhrif á konur heldur einnig karla. Eftir vit­und­ar­vakn­ingu síð­ast­lið­ins vetrar varð­andi þær staðalí­myndir sem karl­menn þurfa að standa undir hefur umræða um karl­mennsk­una verið meira áber­andi en áður.

Hinsegin dagar hófust í vik­unni og standa yfir næstu daga. Fjöldi við­burða er á dag­skrá og snýst einn þeirra einmitt um þetta við­fangs­efni og leit­ast við að víkka það út. Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað, á borð við: Hvernig er karl­mennska hinsegin karl­manna? En kvenna? Hvað með trans fólk? Og aðra undir hinsegin regn­hlíf­inni?

Í þessum við­burði Sam­tak­anna ‘78, sem hald­inn verður föstu­dag­inn 10. ágúst kl. 12 í Safna­hús­inu, verður kafað dýpra í áhrif karl­mennsk­unnar á sam­fé­lagið, þá sér­stak­lega hinsegin sam­fé­lags­ins. Getum við sem sam­fé­lag stuðlað að breyttum við­horfum? Hvað er „eitruð karl­mennska“? Hvernig hefur stað­al­mynd karl­mennsk­unnar haft áhrif á þig? Reynt verður að svara þessum spurn­ingum í nota­legu umhverfi og með vinnu­smiðju á Hinsegin dögum.

Til­gang­ur­inn með við­burð­inum er að fólk komi saman, eigi afslapp­aða stund, spjalli saman og spyrji hvort annað þess­ara spurn­inga.

[adspot]

Mikilvægt að halda samtalinu áfram

Unn­steinn Jóhanns­son, einn skipu­leggj­enda við­burð­ar­ins, segir að hug­myndin hafi sprottið upp eftir umræður síð­ast­lið­ins vetrar varð­andi karl­mennsku. Þá fór á flug sam­fé­lags­miðla­bylt­ing með myllu­merk­inu #karl­mennskan þar sem karl­menn deildu sögum sínum og reynslu. Þor­steinn V. Ein­ars­son átti frum­kvæðið að sam­stöðu­átak­inu en hann sagði meðal ann­ars: „Deilum sögum um reynslu okkar þar sem við fundum að eitt­hvað kom í veg fyrir að við gerðum það sem við raun­veru­lega vildum eða vildum ekki. Dæmi um norm eða við­mið sem hindr­uðu okkur.“

Unn­steinn segir að við­burð­ur­inn sé fram­hald af þess­ari umræðu. Hann telur að mik­il­vægt sé að halda sam­tal­inu áfram en í vor héldu Samtökin ´78 spjall­kvöld þar sem Þor­steinn leiddi umræð­urnar, ásamt Bjarna Snæ­björns­syni leik­ara og Þorvaldi Krist­ins­syni rit­höf­undi og fræði­manni.

Neikvæðar hliðar karlmennskunnar smita út frá sér

Ýmsar spurn­ingar hafa vaknað í fram­haldi af #karl­mennskan og þykir Unn­steini til að mynda áhuga­vert að velta fyrir sér hinni svoköll­uðu „eitr­uðu karl­mennsku.“ Hann segir að nei­kvæðu hliðar karl­mennsk­unnar smiti út frá sér inn í alla kima þjóð­fé­lags­ins. Hann segir enn fremur að nauð­syn­legt sé fyrir hinsegin fólk að velta þessum hlutum fyrir sér. „Þegar þú ert að upp­götva sjálfan þig á ung­lings­ár­unum þá gerir þú þér grein fyrir því að þú sért ekki alveg eins og hinir. Þú speglar þig í hinum og þannig hefur „karl­mennskan“ mikil áhrif á okkur öll,“ segir hann.

Hópurinn, sem mun taka þátt í pall­borðsum­ræðum á við­burð­inum, verður fjöl­breytt­ari en á þeim sem hald­inn var í vor. Nú taka þátt mann­eskjur sem spanna fleiri hluta regn­bog­ans. En þau sem leiða umræð­una á morgun verða Atli Þór Fanndal, Alex­ander Björn, Helga Har­alds­dóttir, Ugla Stefanía og Rúnar Þór Sig­ur­björns­son.

Enn úrelt viðhorf í samfélaginu

Unn­steinn telur að umræður sem þessar hafi raun­veru­lega áhrif en til þess þurfi fólk að geta sest saman og rætt hlut­ina. Hvernig birt­ist karl­mennskan til að mynda innan hóps kvenna sem eru sam­kyn­hneigðar, meðal trans­fólks og svo mætti lengi telja?

Birt­ing­ar­mynd for­dómanna leyn­ist víða. Sem dæmi má taka þegar fólk í sam­kynja­sam­böndum að spurt er hver sé karl­inn og hver sé konan. Unn­steinn segir að þetta séu aug­ljós­lega úrelt við­horf en sumir setji slíkar vanga­veltur fram í gríni, til að mynda hver eldi oftar og taki til á heim­il­inu. Hann bendir aftur á móti á að í sam­kynja­sam­böndum sé eng­inn af gagn­stæðu kyni og því tómt mál að tala um slíka skipt­ingu. Einnig séu auð­vitað ein­stak­lingar í sam­böndum sem skil­greina sig ekki út frá kyni eða eru trans­fólk.

Hér fyrir neðan má sjá við­tal við konu sem segir í ein­lægni frá þeirri reynslu að falla ekki inn í þessi hefð­bundnu kynja­hlut­verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár