Vilja styrki og niðurgreiðslur til dagforeldra

Starfs­hópur hefur lagt fram til­lögur til betri aðbún­aðar dag­for­eldra í Reykja­vík. Gangi þær í gegn fengju dag­for­eldrar auknar nið­ur­greiðslur og styrki fyrir starf­semi sína.

Starfs­hópur Reykja­vík­ur­borgar leggur til að borgin auki nið­ur­greiðslur til dag­for­eldra um fjórð­ung og að inn­leiddur verði 200.000 kr. árlegur aðstöðu­styrkur og 300.000 kr. stofn­styrkur til þeirra. Þetta kemur fram í nýbirtri frétta­til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hefur starfs­hóp­ur­inn, undir for­mennsku Þór­laugar B. Ágústs­dóttur, kynnt til­lögur sínar fyrir frí­stunda­ráði. Til­lög­urnar snúa allar að end­ur­skoðun, þróun og breyt­ingar á dag­for­eldra­þjón­ustu í Reykja­vík. [adspot]

Styrkir og leiguhúsnæði

Ein til­lagna starfs­hóps­ins er sú að borgin skuli bjóða dag­for­eldrum sem starfi tveir saman hús­næði á hóf­legu leigu­verði undir starf­sem­ina og að farið verði í kynn­ing­ar­á­tak og aug­lýs­inga­her­ferð til að fjölga dag­for­eldrum með til­vísun til þessa mögu­leika á hús­næði.

Þá sé einnig lagt til að hækka skuli nið­ur­greiðslur til dag­for­eldra, þannig að kostn­aður for­eldra verði sam­bæri­legri við það ef barn væri á leik­skóla. Í fyrsta áfanga eigi nið­ur­greiðsl­urnar að hækka um fjórð­ung, eða um tæpar 14 þús­und krónur á mán­uði.

Starfs­hóp­ur­inn leggur einnig til að inn­leiddir verði tvenns konar styrkir til styrktar dag­for­eldrum, ann­ars vegar 200.000 króna árlegur aðstöðu­styrkur og hins vegar 300.000 króna stofn­styrkur til að mæta kostn­aði vegna aðlög­unar á hús­næði og kaupa á nauð­syn­legum aðbún­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár