Vilja ekki auka innflutning sérosta

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar leggur til að frum­varp um opnun á toll­kvóta mjólk­ur­af­urða nái ekki til upp­runa­tengdra osta.

Nefndin vill ekki hraða á innflutningi sérosta fyrst um sinn
Nefndin vill ekki hraða á inn­flutn­ingi sér­osta fyrst um sinn Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar leggur til að toll­kvótum verði ekki opnað á inn­fluttum sér­ostum í nýju frum­varpi um breyt­ingum á tolla­lögum land­bún­að­ar­af­urða. Nái frum­varpið í gegn með þeim breyt­ingum sem nefndin leggur til myndu tolla­tilslak­an­irnar aðeins ná til móð­ur­mjólkur.

Frum­varpið sjálft, sem flutt var af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra, í maí fól í sér hrað­ari opnun toll­kvóta á inn­fluttum osti en Evr­ópu­sam­bandið gerir ráð fyrir. Ísland hefur und­ir­ritað samn­ing við ESB um að toll­kvótar verði auknir á inn­fluttum mjólk­ur­af­urðum á næstu fjórum árum, en í frum­varp­inu var lagt til að ferl­inu yrði hraðað niður í eitt ár. [adspot]

Í nýbirtum til­lögum meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar á frum­varp­inu er lagt til að umrædd nái ekki til neinna ann­arra mjólk­ur­af­urða en móð­ur­mjólkur. Sem rök­stuðn­ing bendir meiri­hlut­inn á að breyt­ing­arnar myndu hafa mikil áhrif á íslenska mjólk­ur­fram­leiðslu, þrátt fyrir að frum­varpið hafi að mestu snú­ist um vörur sem væru ekki fram­leiddar hér á landi og væru því flestar ekki í beinni sam­keppni við hana.

Í ljósi mögu­legra rask­ana á fram­leiðslu telur meiri­hlut­inn því mik­il­vægt að íslensk mjólk­ur­vöru­fram­leiðsla fái auk­inn aðlög­un­ar­tíma, en leggur þó til að ráð­herra hraði eins og mögu­legt væri aðgangs­heim­ildum fyrir mjólk­ur­af­urðir á innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár