Ásmundur skipar aðstoðarmanninn sem stjórnarformann TR

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur skipað aðstoð­ar­mann sinn, Arnar Þór Sæv­ars­son, sem for­mann stjórnar Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins.

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur skipað aðstoð­ar­mann sinn sem for­mann stjórnar Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins.

[links]Arnar Þór Sæv­ars­son verður stjórn­ar­for­maður stofn­un­ar­innar en sam­kvæmt lögum um almanna­trygg­ingar skipar ráð­herra fimm menn í stjórn, for­mann og vara­for­mann og jafn­marga menn til vara.

Arnar, sem er lög­fræð­ingur að mennt, var sveit­ar­stjóri á Blöndu­ósi áður en hann gekk til liðs við Ásmund í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í jan­úar á þessu ári. Hann var áður aðstoð­ar­maður Jóns Sig­urðs­sonar, þáver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, þegar hann var iðn­aðar- og við­skipta­mála­ráð­herra á árunum 2006 til 2007.

Með Arnari í stjórn Trygg­ing­ar­stofn­unar eru:

Ásta Möller, vara­for­maður

Elsa Lára Arn­ar­dóttir

Guðrún Ágústa Þór­dís­ar­dóttir

Sig­ur­steinn Másson

Í vara­stjórn eru:

Ingi­björg Isaksen

Petrea Ingi­björg Jóns­dóttir

Jóhann Friðrik Friðiks­son

Bergþór Heimir Þórð­ar­son

Guðbjörg Sveins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár