Arnar Þór aðstoðar Ásmund Einar Daðason

Ásmundur Einar Daðason hefur ráðið sér tvo aðstoð­ar­menn.

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur ráðið Arnar Þór Sæv­ars­son, frá­far­andi sveit­ar­stjóra á Blöndu­ósi aðstoð­ar­mann sinn í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Arnar Þór útskrif­að­ist úr lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og tók ári síðar rétt­indi til að gegna lög­mennsku. Hann hefur gegnt stöðu sveit­ar­stjóra á Blöndu­ósi frá árinu 2007. Áður var hann aðstoð­ar­maður Jóns Sig­urðs­sonar, þáver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, þegar hann var iðn­aðar- og við­skipta­mála­ráð­herra 2006 – 2007. Árin 2002 til 2006 starf­aði Arnar sem lög­fræð­ingur hjá Símanum og sem lög­fræð­ingur hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu árin 1999 – 2002.

Arnar Þór mun á næst­unni sinna afmörk­uðum verk­efnum fyrir ráð­herra sam­hliða störfum sveit­ar­stjóra en kemur að fullu til starfa í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í vor. Arnar Þór er annar tveggja aðstoð­ar­manna Ásmundar. Hinn aðstoð­ar­mað­ur­inn er Sóley Ragn­ars­dóttir.

Arnar Þór er fæddur árið 1971. Maki hans er Gerður Beta Jóhanns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og deild­ar­stjóri á Land­spít­ala. Þau eiga saman þrjú börn; Arnar Frey 22. ára, Ásrúnu Ingu, 11 ára og Eyrúnu Önnu 8 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár