Laun stjórnarmanna Hörpu hækkuð um 8 prósent

Samþykkt var á stjórn­ar­fundi Hörpu að hækka laun stjórn­ar­manna um 7.500 krónur.

Laun stjórn­ar­manna Hörpu tón­list­ar­húss voru hækkuð um 8 pró­sent á aðal­fundi Hörpu 26. apríl. Stjórn­ar­menn fá 100 þús­und á mán­uði eftir hækk­un­ina, sem var upp á 7.500 krónur á mán­uði, en stjórn­ar­for­mað­ur­inn, Þórður Sverr­is­son, fær tvö­falda þóknun.

Þetta kemur fram í fund­ar­gerð frá fund­inum.

Þórður Sverr­is­son, stjórn­ar­for­maður Hörpu, segir í skila­boðum til Kjarnans að laun stjórn­ar­innar hafi ekki hækkað síðan árið 2013, eða í fimm ár.

Kaup og kjör í Hörpu hafa verið í brennid­epli und­an­farin miss­eri, og þá einkum kjör for­stjór­ans, Svan­hildar Kon­ráðs­dóttur.

Tuttugu þjón­ustu­full­trúar í Hörpu ákváðu að segja upp störfum í mót­mæla­skyni, eftir að það frétt­ist að laun for­stjór­ans hefðu verið hækkuð. Á þeim tíma þurfti mikið átak til að laga rekst­ur­inn og voru launa­kjör þjón­ustu­full­trú­ana þá lækkuð.

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir for­stjóri Hörpu óskaði eftir því á dög­unum við for­mann stjórnar Hörpu að laun hennar yrðu lækkuð aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2018 og yrðu til sam­ræmis við úrskurð kjara­ráðs frá því snemma árs 2017.

Þórður stjórn­ar­for­maður, og Vil­hjálmur Egilsson, stjórn­ar­maður Hörpu, hafa sagt að umræðan um launa­kjör Svan­hildar, og 20 pró­sent launa­hækkun hennar, séu hálf­gerðar fals­fréttir. Laun hennar upp á 1,5 millj­ónir hafi verið álitin sann­gjörn, miðað við sam­bæri­leg störf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár