Laun bankastjóra Landsbankans hækkuðu um 61 prósent á tveimur árum

Núver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, Lilja Björk Ein­ars­dóttir, er með rúm­lega 60 pró­sent hærri laun en Steinþór Pálsson hafði árið 2015. Laun banka­stjóra Lands­bank­ans hafa hækkað hlut­falls­lega meira en laun nokk­urs ann­ars stórs fyr­ir­tækis frá 2015.

Launa­kostn­aður Lands­bank­ans vegna launa banka­stjóra hans jókst um 61,1 pró­sent á milli áranna 2015 og 2017. Þetta kemur fram í upp­færðri skýrslu sem Talna­könnun vann fyrir Samtök spari­fjár­eig­enda um kaupauka og laun í íslensku við­skipta­lífi. Lands­bank­inn er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

Skýrslan var kynnt síð­ast­lið­inn þriðju­dag og var þá ekki sagt til um hvernig mán­að­ar­laun banka­stjóra Lands­bank­ans hefðu breyst á áður­nefndu tíma­bili. Ástæða þess er sú að þrír ein­stak­lingar gegndu starf­inu á því og inni í birtum launa­tölum var meðal ann­ars að finna upp­gjör við Steinþór Pálsson, sem var sagt upp störfum síðla árs 2016.

Eina breyt­ingin sem gerð hefur verið í upp­færðu skýrsl­unni er í umfjöllun um launa­kjör banka­stjóra Lands­bank­ans, Sú breyt­ing var gerð eftir að upp­lýs­ingar bár­ust frá upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bank­ans um launa­kjör banka­stjóra á árinu 2017.

Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum fékk Hreiðar Bjarna­son, sem gegndi starfi banka­stjóra eftir að Stein­þóri var sagt upp og þar til nýr banka­stjóri, Lilja Björk Ein­ars­dóttir, tók við starf­inu 15. mars 2017, með 3,1 milljón króna í laun á mán­uði. Með­al­mán­að­ar­laun Lilju á síð­asta ári voru svo tæp­leg 3,4 millj­ónir króna. Steinþór Pálsson hafði haft tæp­lega 2,1 milljón króna á mán­uði á árinu 2015. Með­al­tals­laun banka­stjóra Lands­bank­ans í fyrra voru því 61,1 pró­sent hærri í fyrra en þau voru árið 2015.

Ef ein­ungis er miðað við laun Lilju þá eru þau 64 pró­sent hærri en laun Stein­þórs voru árið 2015.

Lilja á þó langt í land með að ná banka­stjóra hins rík­is­bank­ans í launum. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, er nefni­lega með 5,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun og er lang­launa­hæsti æðsti stjórn­andi rík­is­fyr­ir­tækis, en Íslands­banki er í 100 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins.

Beðnir um að hækka launin ekki úr hófi

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um launa­hækk­anir for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja á und­an­förnum vikum. Laun flestra þeirra hækk­uðu mikið í fyrra í kjöl­far þess að ákvörðun um launa­kjör for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja voru færð frá kjara­ráði og til stjórna fyr­ir­tækj­anna sjálfra. Um það var tekin póli­tísk ákvörðun.

Benedikt Jóhann­es­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, beindi skrif­legum til­mælum til stjórna fyr­ir­tækj­anna um að stilla launa­hækk­unum æðstu stjórn­enda þeirra í hóf, í ljósi þess að áhrif stór­tækra launa­hækk­ana ein­stak­linga sem þegar voru á mjög háum launum á við­kvæmar kjara­við­ræður ann­arra hópa gætu orðið gíf­ur­leg. Benedikt fund­aði einnig með full­trúum stjórn­anna í ágúst 2017 til að leggja enn frek­ari áherslu á málið.

Flestir rokið upp um tugi prósenta

Skemmst er frá því að segja að nær eng­inn þeirra fyr­ir­tækja sem fengu til­mælin fóru eftir þeim. Heild­ar­laun Björns Óla Hauks­sonar, for­stjóra Isavia, voru hækkuð um rúm­lega 20 pró­sent. Við það fóru með­al­laun hans úr 1,7 millj­ónum króna á mán­uði í 2,1 milljón króna á mán­uði.

Laun Magn­úsar Geirs Þórð­­ar­­sonar útvarps­­­stjóra voru hækkuð um 16 pró­­sent milli áranna 2016 og 2017. Eftir hækk­­un­ina voru mán­að­­ar­­laun hans 1,8 millj­­ónir króna.

Laun for­stjóra Lands­virkj­unar, Harðar Arn­ars­sonar, hækk­uðu um 47,4 pró­sent frá árinu 2015. Þá hafði hann rúm­lega 1,8 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali en í fyrra var sú mán­að­ar­greiðsla komin í 2,7 millj­ónir króna.

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, hefur hækkað um 42,9 pró­sent frá árinu 2015. Þá var hann með tæp­lega 1,2 millj­ónir króna á mán­uði en var í fyrra með tæp­lega 1,7 milljón króna að með­al­tali.

For­stjóri Rarik, Tryggvi Þór Har­alds­son, hefur verið umtals­vert hóf­legri í launa­hækk­unum sínum. Hann fór úr 1,4 millj­ónum króna árið 2015 í tæp­lega 1,7 milljón króna árið 2017, sem er hækkun um 11,8 pró­sent á tveimur árum.

Annar for­­­­stjóri sem færð­ist undan kjara­ráði í fyrra er Guð­­­­mundur Ingi Ásmunds­­­­son, for­­­­stjóri Lands­­­­nets. Laun hans hækk­­­­uðu úr rúm­lega 1,3 millj­ónum króna á mán­uði árið 2015 í um 1,8 millj­­­­ónum króna á mán­uði, eða um 35 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár