Breytingar á landslagi í skólamálum á Íslandi

Lýð­há­skól­inn á Flateyri mun taka til starfa í haust og segir Helena Jóns­dóttir að mik­ill áhugi sé á skól­anum.

Lýð­há­skóli mun taka til starfa í fyrsta skipti á Íslandi í haust. Skólinn mun bjóða upp á nýja val­mögu­leika til náms, en skól­inn starfar ekki sam­kvæmt sömu lögum og fram­halds­skólar.

Skólinn er stað­settur á Flateyri í Önund­ar­firði. Lýð­há­skólar eru vin­sælir í nágranna­löndum okkar og hafa margir Íslend­ingar lagt land undir fót og lagt stund á nám við lýð­há­skóla á norð­ur­lönd­unum. Allir þeir sem hafa náð 18 ára aldri geta sótt um í skól­anum en hámarks fjöldi nem­enda verður 40.

Lýð­há­skólar leggja áherslu á að veita menntun utan hins hefð­bundna skóla­kerfis með próf­gráðum og náms­ár­angri. Rann­sóknir sýna að vera í lýð­há­skóla hefur jákvæð áhrif á þá sem hafa hætt námi í hefð­bundnum skólum. Líkurnar á að snúa aftur til náms aukast sem og að þeir ein­stak­lingar ljúki gráðum á hærra mennt­un­ar­stigi.

Tvær náms­brautir verða í boði við skól­ann sem hvor um sig tekur að hámarki 20 nem­endur. Kennt verður í tveggja vikna lotum yfir skóla­árið sem hefst 19. sept­em­ber. 

Náms­brautin Hafið, fjöllin og þú ein­blínir á að fræða nem­endur um nýt­ingu auð­lind­anna á öruggan og umhverf­is­vænan máta. Í hinni náms­braut­inni, Hug­myndir, heim­ur­inn og þú, verður áhersla lögð á hug­mynda­vinnu og sköpun.

Aðeins hluti af kennsl­unni mun fara fram inn­an­dyra en líkt og heiti náms­braut­anna gefur til kynna þá verður unnið í og með nátt­úr­unni og umhverf­inu.

Helena Jóns­dóttir, skóla­stjóri Lýð­há­skól­ans á Flateyri, segir þau finna fyrir nokkrum áhuga erlendis frá. Í haust verður þó aðeins kennt á íslensku og námið því ætlað þeim sem geta skilið og talað íslensku. „Inn­flytj­endur hafa tjáð áhuga sinn en einnig hefur verið áhugi frá brott­fluttum Íslend­ingum sem eiga börn.“ segir Helena. For­eldrar ung­menna sem ekki hafa fundið sig í hinu hefð­bundna skóla­kerfi hafa einnig tjáð áhuga sinn.

Stuðningur frá samfélaginu

„Við finnum fyrir miklum stuðn­ingi frá íbúum á Flateyri. Fólk er boðið og búið að lána okkur búnað og leigja okkur aðstöðu fyrir kennslu.“ segir Helena.

Ísa­fjarðar bær hefur einnig stutt við verk­efnið, bæði með beinum fjár­styrkjum, end­ur­gjalds­lausu hús­næði og bak­trygg­ingu.

Verk­efnið er að mestu leyti fjár­magnað að fullu en enn þá vantar nokkrar millj­ónir upp á að sögn Helenu. Það er þó undir 5 millj­ónum en Ísa­fjarð­ar­bær hefur að sögn hennar gefið þeim vil­yrði fyrir því að hlaupa undir bagga, ef til þess kemur.

Hug­myndir að skól­anum fengu stofn­endur skól­ans fyrir um 5-7 árum en fyrir tveimur árum varð hug­myndin að alvöru. Þá hófst und­ir­bún­ings­vinnan og í haust er áætlað að hefja skóla­hald á Flateyri.

Inn­göngu­kröfur í lýð­há­skóla eru ekki hefð­bundnar í þeim skiln­ingi að náms­ár­angur og starfs­reynsla vega ekki þungt heldur áhuga­svið, við­horf og per­sónu­leiki umsækj­enda. Nemendur þurfa því ekki að hafa lokið neinu form­legu námi áður en sótt er um í skól­anum. Námsmat fer heldur ekki fram á hefð­bund­inn máta líkt og í fram­halds­skólum heldur í gegnum fundi og sam­töl við aðra nem­endur, kenn­ara og íbúa sam­fé­lags­ins. Skóla­haldið snýst því einnig um að virkja sam­fé­lagið og auðga mann­lífið.

Hægt er að lesa meira um skól­ann á heima­síðu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár