„Hættum að laga konur. Lögum samfélagið!“

Bandalög stétt­ar­fé­laga og Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands stóðu fyrir fundi #metoo-kvenna í febr­úar síð­ast­liðnum og eru nið­ur­stöður gerðar kunnar í skýrslu sem unnin var upp úr ábend­ingum kvenn­anna.

Stétt­ar­fé­lög, atvinnu­rek­endur og stjórn­völd þurfa að bregð­ast við #metoo-umræð­unni og grípa taf­ar­laust til aðgerða. Þetta er nið­ur­staða fjöl­menns fundar #metoo-kvenna sem banda­lög stétt­ar­fé­laga og Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands stóðu fyrir nýverið.

[links]Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá BSRB.

Ein álykt­unin sem dregin var á fund­inum er sú að nú verði að hætta að laga kon­urnar sjálfar og nauð­syn­legt sé að laga sam­fé­lagið í stað­inn. Allir verði að taka þátt í bylt­ing­unni til að ná fram breyt­ingum.

Í skýrslu sem unnin hefur verið upp úr ábend­ingum fund­ar­gesta, sem komu úr fjöl­mörgum #metoo-hópum kvenna, kemur fram sú krafa að allir taki þátt í því að laga sam­fé­lagið. Á fund­inum, sem fór fram með þjóð­fund­ar­sniði, komu fram ábend­ingar sem banda­lög­unum og Kven­rétt­inda­fé­lag­inu var falið að fylgja eftir. Það munu þau gera í sinni starf­semi og gagn­vart stjórn­völdum og atvinnu­rek­endum, segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Komist var að ýmsum nið­ur­stöðum á fund­inum en þær helstu voru að atvinnu­rek­endur þurfi að axla ábyrgð, vera virkir í umræð­unni og grípa til sýni­legra aðgerða á vinnu­stöðum með þátt­töku allra starfs­manna. Efla þurfi fræðslu og umræðu um heil­brigð sam­skipti, mörk og með­virkni.

Stétt­ar­fé­lög eiga jafn­framt að vera leið­andi í umræð­unni, virkja trún­að­ar­menn og heim­sækja vinnu­staði. Einnig eiga þau að styðja þolendur innan vinnu­staða. Stjórn­völd þurfa að breyta jafn­rétt­islögum þannig að heim­ilt verði að sekta vinnu­staði sem ekki sinna for­vörnum og upp­ræt­ingu kyn­bund­innar áreitni, kyn­ferð­is­legrar áreitni og ann­ars ofbeldis á vinnu­stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár