Hleðslustöðvar fyrir rafbíla við fjölbýlishús

Raf­bíla­eig­endur munu geta hlaðið bíla sína þrátt fyrir að búa í fjöl­býli, á nýjum bygg­inga­svæðum sem og að geta hlaðið bif­reið­ina úr ljósastaurum.

Raf­bíla­eig­endur munu geta hlaðið bíla sína þrátt fyrir að búa í fjöl­býli, á nýjum bygg­inga­svæðum sem og að geta hlaðið bif­reið­ina úr ljósastaurum.

Þetta er meðal nýrra til­lagna varð­andi orku­skipti í sam­göngum sem sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borgar mun leiða í sam­vinnu við Orku­veitu Reykja­víkur.

Verk­efnin eru hluti af inn­leið­ingu lofts­lags­á­ætl­unar borg­ar­innar. Orku­veita Reykja­víkur hefur unnið til­lögur að til­rauna og þró­un­ar­verk­efnum vegna raf­væð­ingar sam­gangna og kynnti þær á opnum fundi um sam­göngur í Ráðhúsi Reykja­víkur fyrir skömmu.

Í Lofts­lags­stefnu Reykja­vík­ur­borgar sem sam­þykkt var í júní 2016 koma fram aðgerðir til að stuðla að auk­inni hlut­deild raf­bíla í sam­göngum. Þar voru settar fram nokkrar ákveðnar til­lögur.

  • Standa fyrir upp­setn­ingu hleðslu­stöðva í bíla­stæða­húsum borg­ar­innar.
  • Setja upp hleðslu­stöðvar við valdar bygg­ingar á vegum borg­ar­innar fyrir gesti og starfs­fólk.
  • Reykja­vík­ur­borg vinni með OR að hug­myndum um upp­setn­ingu hleðslu­stöðva í hverfum.
  • Setja fram áætlun um hvernig strætó og vænt­an­leg borg­ar­lína geti alfarið gengið fyrir orku­gjöfum sem ekki losa gróð­ur­húsa­loft­teg­undir.
  • Reglu­verk Reykja­vík­ur­borgar og fyr­ir­tækja í eigu hennar verði rýnt með það að mark­miði að ryðja úr vegi hindr­unum fyrir raf­væð­ingu sam­gangna og auð­velda inn­leið­ingu þeirra.

Orku­veitan hefur nú mótað fjórar til­lögur að verk­efnum sem kalla á nána sam­vinnu OR og Reykja­vík­ur­borgar til að verk­efnin kom­ist til fram­kvæmdar.

Verk­efnin eru hleðslu­stæði fyrir land­lausa raf­bíla­eig­endur, raf­hleðslur á nýjum bygg­inga­svæðum, álags­stýr­ingar á raf­bíla­hleðslum með áherslu á fjöl­býl­is­hús­næði og hleðsla úr ljósastaurum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár