Varðskipið Þór til taks fyrir vestan

Skipinu siglt vestur í gær í var­úð­ar­skyni. Mikið öldu­rót úti af Dýra­firði í morgun. Lítil skipa­um­ferð er á Vest­fjörðum eða út af Norð­ur­landi og liggja skip í vari.

Óveðrið er skollið á Vest­fjörðum, Norð­vest­ur­landi og Norð­aust­ur­landi. Gefin hefur verið út rauð við­vörun í fyrsta sinn á Ströndum og Norð­ur­landi vestra. Hluti ástæð­unnar fyrir rauðri við­vörun er að öldu­hæð verður mikil.

Varð­skipið Þór sigldi vestur í gær vegna yfir­vof­andi óveð­urs og er til taks í Ísa­fjarð­ar­djúpi ef á þarf að halda en skipið hefur sinnt eft­ir­liti á haf­svæð­inu umhverfis landið und­an­farna daga. Þá eru þyrlur Land­helg­is­gæsl­unnar sömu­leiðis til taks í Reykja­vík.

Lítil skipa­um­ferð er nú á Vest­fjörðum. Fjögur skip liggja í vari undir Grænu­hlíð og eitt tank­skip er á leið fyrir Horn­bjarg og fer suður með Vest­fjörðum. Engin skipa­um­ferð er á mið­unum norður af land­inu en stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar fylgist vel með skipa­um­ferð umhverfis landið allt.

Með­fylgj­andi mynd­bönd voru tekin af áhöfn varð­skips­ins Þórs í morgun þegar skipið var út af Dýra­firði snemma í morgun. Eins og sjá má var þá farið að hvessa hressi­lega á Vest­fjarða­miðum og gekk sjór­inn yfir varð­skipið.

Á Norð­ur­landi fer verður versn­andi og er orðið bál­hvasst á norð­an­verðum Trölla­skaga. Stefán Vagn Stef­áns­son, yfir­lög­reglu­þjónn á Sauð­ár­króki, sagði um klukkan 11:00 að þar væri vind farið að herða veru­lega og veðrið væri að skella á. Aðspurður sagð­ist hann telja, og raunar vita fyrir víst, að menn hefðu verið að í gær­kvöldi og í morgun við að tryggja muni fyrir veðr­inu, líta til með bátum og tryggja að skepnur á úti­gangi hefðu fóður.

Óveðrið fær­ist suður og austur með land­inu í dag. Gult ástand tekur við á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með ört vax­andi norð­an­átt, 18 til 23 metrum á sek­úndu í vest­ur­hverfum. Klukkan þrjú tekur við app­el­sínugult ástand, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með norðan stormi eða roki, 20-28 metrum á sek­úndu. Hvassast verður vest­an­til í borg­inni, á Kjal­ar­nesi og Mos­fellsbæ. Í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands er áhætt­unni lýst: „Sam­göngu­trufl­anir eru lík­legar á meðan veðrið gengur yfir og trufl­anir á flug­sam­göngum. Hætt er við foktjóni og eru bygg­ing­ar­að­ilar hvattir til að ganga vel frá fram­kvæmda­svæðum. Búast má við hækk­andi sjáv­ar­stöðu vegna áhlað­anda og líkur á að smá­bátar geta laskast eða losnað frá bryggju. Fólki er bent á að ganga vel frá lausum munum og sýna var­kárni.“ App­el­sínugult ástand gildir til klukkan 7 í fyrra­málið í höf­uð­borg­inni, en nær yfir allt land fram að aðfar­arnótt fimmtu­dags.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár