Fjórtán hælisleitendur tanngreindir á árinu

Háskóla­ráð og rektor Háskóla Íslands eiga að taka afstöðu til þess fyrir jól hvort umdeildur samn­ingur við Útlend­inga­stofnun um ald­urs­grein­ingar á hæl­is­leit­endum með tann­grein­ingu verður end­ur­nýj­aður. Frá gild­is­töku samn­ings­ins í lok mars hafa fjórtán beiðnir frá Útlend­inga­stofnun verið afgreiddar.

Fjórtán hælisleitendur tanngreindir á árinu
Rektor HÍ Jón Atli Bene­dikts­son, rektor HÍ, óskaði eftir umsögnum frá jafn­réttis­nefnd og vís­inda­siða­nefnd HÍ áður en tekin var ákvörðun um að gera samn­ing við Útlend­inga­stofnun um tann­grein­ingar á hæl­is­leit­endum. Vís­inda­siða­nefnd taldi málið ekki falla undir hennar verk­svið og jan­fréttis­nefnd var afdrátt­ar­laus í and­stöðu sinni verð gerð samn­ings­ins. Samn­ing­ur­inn tók gildi 25. mars síð­ast­lið­inn.

Háskóli Íslands hefur á þessu ári afgreitt fjórtán beiðnir frá Útlend­inga­stofnun um ald­urs­grein­ingu á fylgd­ar­lausum hæl­is­leit­endum með tann­grein­ingum. Þetta kemur fram í svari frá Andra Ólafs­syni, aðstoð­ar­manni Jóns Atla Bene­diks­syni, rekt­ors HÍ, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Þar kemur jafn­framt fram að inni í þeirri tölu séu beiðnir sem voru í bið­stöðu meðan gengið var frá samn­ingnum, frá síð­ari hluta árs­ins 2018 fram að und­ir­ritun.  

Tann­grein­ing­arnar hafa verið afar umdeildar bæði innan og utan veggja háskól­ans. Rauði kross Íslands hefur til að mynda ítrekað gagn­rýnt aðferða­fræð­ina að baki þeim. Þann 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sendi Stúd­enta­ráð HÍ form­lega áskorun á háskóla­ráð um að end­ur­nýja ekki samn­ing­inn við Útlend­inga­stofnun og ítrek­aði þannig afstöðu sína gegn tann­grein­ing­unum. Í áskor­un­inni segir meðal ann­ars: „Telur Stúd­enta­ráð rétt að ítreka afstöðu sína, sem hefur hlotið stuðn­ing Lands­sam­taka íslenskra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár