Oslóartréð flæktist og sat fast í krana

Starfs­menn borg­ar­innar lentu í vand­ræðum við að fella tréð. Um var­úð­ar­ráð­stöfun vegna yfir­vof­andi óveð­urs er að ræða. Rauð við­vörun hefur verið gefin út í eft­ir­mið­dag­inn.

Starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar lentu í erf­ið­leikum við að fella Osló­ar­tréð í morgun en bæði tréð og ljósa­ser­íur flækt­ust og sat allt fast um tíma í krana voru­bíls sem not­aður var til að leggja tréð niður. Um var­úð­ar­ráð­stöfun vegna yfir­vof­andi óveð­urs var að ræða. Sækja varð lyft­ara til að greiða úr flækj­unni en að lokum hafð­ist það. Búist er við að hið versta óveður skelli á um miðjan dag í borg­inni.

Hjalti Guð­munds­son, skrif­stofu­stjóri rekstrar og umhirðu í borg­ar­land­inu, sér um yfir­stjórn verk­efna og sam­skipti við við­braðgs­að­ila og aðgerð­ar­stjórn björg­un­ar­sveita og lög­reglu. Hann segir að tekin hafi verið ákvörðun um að fella tréð til að verja bæði það og nágrenni þess. Ols­óar­tréð brotn­aði einmitt í óveðri fyrir fjórum árum síðan.  „Við ætlum jafn­vel að taka niður tvö önnur tré, annað við Kringl­una og hitt við nýja Herkast­al­ann við Suð­ur­lands­braut. Þau standa dálítið á ber­angri og við erum að velta því fyrir okkur að fella þau til að koma í veg fyrir foktjón.“

Hjalti segir að hjá borg­inni hafi menn tals­verðar áhyggjur af vatns­tjóni auk foktjóns. „Farið var á alla lág­punkta svo­kall­aða, það eru svelgir og nið­ur­föll sem standa lægst og taka við mesut vatn­inu, og reyndum að hreinsa frá þeim og ganga þannig frá að ekki væri hætta á að þar stífl­að­ist.“

Hjalti segir að hverf­is­stöðvar verði mann­aðar eftir hádegi með teymum sem geti farið út til að koma í veg fyrir vatns­tjón eða tjón á eignum borg­ar­innar ef í það fer. „Það er auð­vitað með þeim fyr­ir­vara að við erum ekki að stefna fólk­inu okkar í hættu, þá grípa lög­reglan og Lands­björg inn í. Við erum í þéttu sam­bandi við aðgerð­ar­mið­stöð­ina í Skóg­ar­hlíð og ef það er ein­hver flötur á því þá sendum við fólk til aðstoðar við við­bragðs­að­ila. Að öðru leyti verður okkar fólk bara inni við, til að tefla ekki í neina tví­sýnu.“

Hjalti segir að hann hafi nokkrar áhyggjur af öldu­hæð við Sæbraut og einnig við Ægissíðu. Hann hvetur fólk ein­dregið til að halda sig fjarri strönd­inni eins og hægt er enda geti veru­leg hætta skap­ast þar ef veður verður með þeim hætti sem spáð er.

Starfs­menn borg­ar­innar eru á ferð í fyr­ir­byggj­andi aðgerðum. Meðal ann­ars þurftu þeir í morgun að bregð­ast við og fara upp í Úlf­arsár­dal til að ganga frá á bygg­ing­ar­svæði þar sem talið var að fok­hætta gæti verið til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár