Hlutabréfaverð hrynur á alþjóðamörkuðum

Einhver „leið­rétt­ing“ er nú að eiga sér stað á alþjóða­mörk­uðum. Miklar lækk­anir sáust á mörk­uðum í dag.

Hluta­bréfa­verð hefur hrunið á alþjóða­mörk­uðum í dag, en mest hefur lækk­unin þó verið í Banda­ríkj­unum. Á tveimur við­skipta­dögum hefur verð lækkað sam­an­lagt um 6 pró­sent í Banda­ríkj­unum, sem telst mikið miðað við venju­bundnar sveiflur á mörk­uðum. ,

S&P 500 vísi­talan lækk­aði um 4,1 pró­sent í dag og lækk­anir á flestum mörk­uðum heims­ins voru á bil­inu 1 til 3 pró­sent. Lækkunin var þó skörpust í Banda­ríkj­unum, en í umfjöllun Wall Street Journal segir að meg­in­á­stæðan fyrir þessum glund­roða á mörk­uðum und­an­farna þrjá við­skipta­daga sé sú að fjár­festar ótt­ist hækk­andi verð­bólgu og vaxta­stig í Banda­ríkj­unum, eftir lágt tíma­bil þar sem fjár­magn hefur flætt um mark­aði á litlum sem engum mörk­uðum.

Þar und­ir­liggj­andi hefur áætlun Seðla­banka Banda­ríkj­anna, sem rekja má aftur til þess þegar fjár­mála­mark­aðir fóru í gegnum mik­inn hreins­un­ar­eld á árunum 2007 til 2009, haft mikil áhrif, en bank­inn hefur beint og óbeint sett mikið fjár­magn út á mark­aði til að örva hag­vöxt og styðja við end­ur­reisn efna­hags Banda­ríkj­anna á und­an­förnum árum.

Atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum er nú með minnsta móti, en það mælist 4,7 pró­sent á lands­vísu.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram, að grein­endur hafi verið að senda fjár­festum upp­lýs­ingar um að þeir ættu að „róa sig“ í sölum á hluta­bréfum. Engin ástæða væri til þess að vera of nei­kvæður á stöðu mála.

Verð á hrá­olíu hefur einnig lækkað tölu­vert í dag, en verðið á tunn­unni á Banda­ríkja­mark­aði er nú 63 Banda­ríkja­dalir og lækk­aði það um tæp­lega 3 pró­sent í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár