Miklar fjárfestingar fyrirhugaðar í Reykjavík

Reykja­vík­ur­borg mun fjár­festa í innviðum og þjón­ustu fyrir 18 millj­arða árið 2018.

Reykjavík
Reykja­vík Mynd: Birgir Þór Harðarson

Reykja­vík­ur­borg fjár­festir í innviðum og þjón­ustu fyrir 18 millj­arða á þessu ári, sem er það mesta á einu ári í sögu borg­ar­innar. Á næstu fimm árum mun borgin fjár­festa í innviðum fyrir 70 millj­arða. Sé horft til sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar nemur fjár­fest­ing næstu ára 226 millj­örðum næstu fimm árin.

Þetta kom fram í kynn­ingu á fram­kvæmda­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar og greint frá í frétt Reykja­vík­ur­borgar. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri var gestur á Útboðs­þingi Samtaka iðn­að­ar­ins í dag.

Í frétt­inni segir að fjár­fest­ingar árs­ins skipt­ist í grunn­inn í þrennt. Um 8 millj­örðum verði ráð­stafað í fast­eignir og stofn­búnað, nær 8,5 millj­arðar fari í götur og umhverf­is­fram­kvæmdir og rúmir 2 millj­arðar í aðrar fjár­fest­ingar.

„Bróð­ur­part­ur­inn af fram­kvæmdafé fast­eigna fer til skóla- og frí­stunda­sviðs eða nær 2,8 millj­arðar og þá fer 1,8 millj­arður til íþrótta- og tóm­stunda­mála. Stærsta ein­staka fram­kvæmdin er leik- og grunn­skóli í Úlf­arsár­dal. Nánar um ein­stök verk­efni má sjá í kynn­ingu borg­ar­stjóra.

Nýbygg­inga­hverfi eru svo stærsti ein­staki lið­ur­inn í gatna- og umhverf­is­fjár­fest­ingum en til þeirra mála fara rúm­lega 2,5 millj­arðar, en þar undir fellur gatna­gerð á Hlíð­ar­enda, Voga­byggð, Úlf­arsár­dal, Kirkju­sandi og við Land­spít­ala. Undir gatna- og umhverf­is­fjár­fest­ingar falla einnig mal­bik­un­ar­fram­kvæmdir, en í sumar verður slegið met í mal­bikun gatna,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár