Þrjár konur kvarta nafnlaust yfir framkomu forstjóra Matís

Nafn­laust bréf þriggja kvenna sem lýsa yfir óánægju sinni með Svein Mar­geirs­son, for­stjóra Matís, hefur verið tekið fyrir á stjórn­ar­fundi fyr­ir­tæk­is­ins.

Sveinn Margeirsson
Sveinn Mar­geirs­son Mynd: Matís

Þrjár konur sem starfa hjá Matís sendu nafn­laust bréf til stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í kjöl­far umræðu í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins um mót­mæli fyrir framan heim­ili Stein­unnar Valdísar Ósk­ars­dóttur árið 2010.

Segir í bréf­inu að til­efni þess sé að þær séu væg­ast sagt ósáttar við að for­stjóri stofn­un­ar­innar, Sveinn Mar­geirs­son, skuli hafa farið fremstur í flokki og að auki staðið að hvatn­ingu og skipu­lagn­ingu í aðdrag­and­anum, þegar mjög óvægin og afar ósann­gjörn aðför hafi verið gerð að kyn­systur þeirra, Stein­unni Valdísi Ósk­ars­dóttur, eins og hafði verið dregið fram í dags­ljósið.

Sjöfn Sig­ur­gísla­dóttir stjórn­ar­for­maður Matís segir málið í skoðun og Sveinn seg­ist í sam­tali við Kjarnann ekki vilja tjá sig um bréfið eða efni þess að svo stöddu.

Ekki boðlegt af forstjóra

„Okkur var umrætt ekki ljóst fyrir. Afsök­un­ar­beiðni í þeim efnum teljum við ein­ungis til­komna vegna þess að for­stjór­inn ótt­ast nú um sína stöðu, ein­ungis í ljósi háværrar og nauð­syn­legrar umræðu um mála­flokk­inn. Atvik sem vísað er til ollu við­kom­andi miklum og langvar­andi miska og bitn­aði á ungum fjöl­skyldu­með­limum, börnum við­kom­andi, með afar ósann­gjörnum hætti. Við fáum ekki skilið hvaða hug­ar­far býr að baki slíkri hátt­semi, ekki síst gagn­vart börnum.

Við fáum ekki séð að þeir sem ganga fram með slíkum hætti, ítrekað og með skipu­lögðum hætti, séu allt í einu orðnir að betri mönnum og fullir iðr­unar og þar með boð­legir í að gegna æðsta emb­ætti í okkar ágætu stofnun og vinnu­stað. Og þegar málið er skoðað í ljósi þess tíma sem lið­inn er, þá kemur upp úr dúrnum að umræddur for­stjóri og eig­in­kona hans hafa beitt sér af miklu offorsi og óbil­girni gagn­vart mönnum og mál­efnum í óskyldum málum, allt síðan umrætt atvik­að­ist gagn­vart henni Stein­unni,“ segir í bréf­inu.

Enn fremur kemur fram að þeim finn­ist það í senn sorg­legt og nið­ur­lægj­andi að slík við­horf kven­fyr­ir­litn­ingar og vald­níðslu, og skáka í skjóli valda­stöðu og frið­helgi sem ríkir um opin­berar stjórn­un­ar­stöður, skuli gegna æðsta emb­ætti okkar ágætu stofn­unar árið 2017.

Þær segja að það hvar­fli ekki að þeim að koma fram undir nafn, og er mót­tak­andi beð­inn vel­virð­ingar á því. „Við teljum að nafn­birt­ing myndi ein­fald­lega bein­ast gegn okkur með skjótum hætti, þegar til hlið­sjónar eru hafðir stjórn­un­ar­hættir og fram­koma sem við höfum nú orðið vitni að og erum upp­lýstar um í dag.“

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.

Stjórnin skoðar málið

Sjöfn Sig­ur­gísla­dóttir, for­maður stjórnar Matís, segir í sam­tali við Kjarnann að málið sé í skoðun. Þetta hafi ein­ungis komið upp fyrir stuttu og þess vegna sé ekki komin nið­ur­staða hvort eða hvað verði gert í fram­hald­inu.

Hún segir enn fremur að stjórnin taki öllum ábend­ingum sem þessum alvar­lega. Þau viti ekki nöfn kvenn­anna og séu ekki á hött­unum eftir þeim.

„Það hefur alltaf verið góður andi hjá Matís og við viljum að svo verði áfram. Starf­semin hefur gengið mjög vel og er mik­il­vægt að svo verði áfram,“ segir hún og bætir við að engar upp­á­komur hafi komið í fyr­ir­tæk­inu og að þau hafi lagt sig í líma við að hafa starf­sem­ina góða. Þeim sé annt um orð­sporið.

Þau ætli því að skoða málið vel áður en farið verður lengra með það en þau vilji jafn­framt eiga gott sam­tal við starfs­menn og aðra sem tengj­ast fyr­ir­tæk­inu.

Baðst afsökunar

Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði af sér þing­mennsku árið 2010 eftir að hópur mót­mæl­enda hafði safn­ast sam­an fyrir framan heim­ili hennar á hverju ein­asta kvöldi og kraf­ist þess að hún segði af sér þing­mennsku vegna styrkja fyrir próf­kjörs­bar­átt­u. Fleiri stjórn­mála­menn á borð við Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Guð­laug Þór Þórð­ar­son urðu einnig fyrir aðkasti mót­mæl­enda af sömu ástæð­um.

Mót­mælin fyrir framan hús Stein­unnar Val­dísar stóðu yfir í fimm vikur og sagði hún í fyrr­nefndu við­tali á mbl.is að for­­stjóri Mat­ís, Sveinn Mar­­geir­s­­son og bræður hans Hlaupa­garp­ar hafi verið fyr­ir fram­an glugg­ana hjá henni í þrjár vik­­ur. „Þar var einnig Björn Þorri Vikt­or­s­­son lög­maður kvöld eft­ir kvöld vel klædd­ur í kraft­galla með marga af sín­um skjól­­stæð­ing­­um. Til við­bót­ar voru marg­ir skjól­­stæð­ing­ar Útvarps Sögu o.fl.,“ sagði hún. Sveinn Mar­geirs­son for­stjóri Matís sagð­ist sjá mikið eftir þátt­töku sinni í mót­mæl­unum á sínum tíma í við­tali við Eyj­una í maí 2014.

Aðspurður um þátt­töku sína í mót­mæl­unum sagði Sveinn að skilj­an­lega hefði mikil reiði ríkt í sam­fé­lag­inu á þessum tíma. Hann sagði enn­fremur að hann hefði ekki átt aðild að máli í öll þau skipti sem mót­mæli áttu sér stað á heim­ilum stjórn­mála­manna. Hann bætti því við að í hita leiks­ins hefði ekki verið ekki verið hugsað út í að verið væri að gera atlögu að einka­heim­ili fólks. Verst hefði honum þótt sá mis­skiln­ingur að mót­mælin hefðu beinst sér­stak­lega að kon­um.

„Ég hef beðið hana afsök­un­ar. Mér finnst leið­in­legt ef fólk heldur eitt­hvað rang­lega um mig en ég ætla ekki að vera í ein­hverri póli­tík með það,“ sagði Sveinn og bætti við að þetta hefði ekki verið það sem hann er mest stoltur af í líf­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár