Persónuvernd segir að það geti samrýmst lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga að framkvæma skimun á tilfinningavanda barna í 9. bekk að því gefnu að tilskildar öryggiskröfur séu uppfylltar.
[links]Stofnunin hafi komist að þessari niðurstöðu í mars 2017. Reykjavíkurborg sé hins vegar enn að vinna að því að uppfylla þær kröfur sem til þurfi.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og varaformaður flokksins, skrifaði grein á Kjarnann í gær þar sem hún sagði að Reykjavíkurborg hefði skimað öll börn í 9. bekk fyrir tilfinningavanda og að þeim sem þurftu og vildu hafi í kjölfarið verið boðið upp á stuðning og námskeið til að styrkja sitt geð og bæta líðan. „Persónuvernd stöðvaði þá aðferð og hefur ekki skorið úr um hvort það sé heimilt.“
[adspot]Í athugasemd frá Persónuvernd vegna greinar Heiðu Bjargar kemur fram að ákvörðun í frumkvæðismáli stofnunarinnar, þar sem fjallað var um vinnslu persónuupplýsinga um börn í tengslum við skimun og athugun á depurð og kvíða meðal grunnskólabarna í Reykjavík, hafi verið tekin þann 8. mars 2017. „Niðurstaða Persónuverndar var sú að vinnsla velferðarsviðs Reykjavíkurborgar á viðkvæmum persónuupplýsingum um börn í tengslum við áðurnefnda skimun gæti samrýmst lögum nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, að því tilskildu að uppfylltar yrðu kröfur um öryggi samkvæmt 11. gr. laganna, sbr. einnig lög nr. 55/2009 um sjúkraskrár.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.























































Athugasemdir