Katrín skipar starfshóp til að efla traust á stjórnmál

For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp til að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Formaður hóps­ins sagði í fyrra að stjórn­mála­menn væru ítrekað að taka algjör­lega vit­lausar ákvarð­anir um hvernig þeir eiga að umgang­ast við­kvæm stór­mál.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp sem hefur það hlut­verk að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Hópnum verður meðal ann­ars falið að taka mið af starfi sem unnið hefur verið í tengslum við opin­ber heil­indi hér­lendis og erlendis, til dæmis vænt­an­legri fimmtu úttekt­ar­skýrslu GRECO, sem fjallar meðal ann­ars um vernd gegn spill­ingu meðal æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds.

Jón Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og stjórn­ar­maður Gagnsæis, verður for­maður starfs­hóps­ins. Auk hans verða Ólöf Embla Eyj­ólfs­dóttir, MSt í heim­speki, Páll Þór­halls­son, skrif­stofu­stjóri, Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri og Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor í hópnum, sem á að skila skýrslu í síð­asta lagi 1. sept­em­ber 2018. Telji hóp­ur­inn ástæðu til þá getur hann einnig sett fram afmark­aðar til­lögur fyrr.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu er skipan hóps­ins í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem segir m.a.: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Einn þáttur í því er að yfir­fara reglur um hags­muna­skrán­ingu bæði ráð­herra og þing­manna með hlið­sjón af ábend­ingum og alþjóð­legum við­miðum. Annar þáttur er breyt­ingar á lögum sem varða vernd upp­ljóstr­ara og umbætur í umhverfi stjórn­sýslu og við­skipta, meðal ann­ars í takt við ábend­ingar alþjóða­stofn­ana.“

„Algjörlega vitlausar ákvarðanir“

Jón Ólafsson, sem verður for­maður starfs­hóps­ins, var gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans í októ­ber í fyrra. Þar sagði hann að Gagn­sæi, sem eru sam­tök gegn spill­ingu, hafi lagt áherslu á að hér­lendis ríki skiln­ings­leysi á ábyrgð og eðli opin­berra emb­ætta, og að það skiln­ings­leysi sé bein­línis átak­an­legt. „Það kemur fram í því að stjórn­mála­menn eru hvað eftir annað að taka algjör­lega vit­lausar ákvarð­anir um hvernig þeir eiga að umgang­ast við­kvæm stór­mál og spilla þar með trausti fyrir sér og kerf­inu í heild sinni. Ég held að í mörgum til­fellum sé það ekki þannig að það sé ein­hver ann­ar­leg sjón­ar­mið að baki heldur meira þrjóska, skiln­ings­leysi og vilja­leysi til þess að vinna með sam­fé­lag­inu, vinna með frjálsum félaga­sam­tökum til að finna leið­irnar til að bæta kerf­ið.“

Í könnun Gallup á trausti til stofn­anna, sem fram­kvæmd er einu sinni á ári, sést að traust til stjórn­mála og stjórn­sýslu er lítið. Síðast þegar könn­unin var fram­kvæmd, í upp­hafi árs 2017, þá kom í ljós að 22 pró­sent aðspurðra treystu Alþingi og 19 pró­sent treystu borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Fjár­mála­eft­ir­litið naut trausts 19 pró­sents aðspurðra og 43 pró­sent sögð­ust treysta dóms­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár