Lögbannið sýni að við erum að upplifa þöggun

Lögmaður Stund­ar­innar segir að það ástand sem lög­bann á umfjöllun mið­ils­ins hefur þegar skapað sé alvar­legt. Hún lítur svo á að Íslend­ingar séu nú að upp­lifa þöggun. Háskóla­pró­fessor segir skiln­ings­leysi gagn­vart ábyrgð átak­an­legt hér­lendis.

„Ég er á þeirri skoðun að jafn­vel þótt stað­fest­ing­ar­málið muni tap­ast fyrir lög­banns­beið­endur, sem mér finnst per­sónu­lega lík­legra heldur en hitt, að þá erum við samt sem áður núna komin í alvar­legt ástand. Þöggunin á sér stað núna. Lög­bannið er á. Það á bara eftir að stað­festa það hjá dóm­stólum. Lög­bannið var lagt á af full­trúa fram­kvæmda­valds­ins. Dóm­stólar hafa ekki fengið þetta mat, heldur bara full­trúi fram­kvæmda­valds­ins. Það er bara alvar­legt. Ég lít svo á að núna séum við að upp­lifa þöggun,“ segir Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir, lög­maður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut sem er á dag­skrá klukkan 21 í kvöld.

Þar ræðir hún lög­bann sem sett var á frek­ari umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vik Media sem byggir á upp­lýs­ingum innan úr Glitni banka. Lög­bannið var sam­þykkt af sýslu­manni síð­ast­lið­inn mánu­dag.

[adspot]Jón Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og stjórn­for­maður Gagnsæis, er einnig gestur þátt­ar­ins. Hann segir að Gagnsæi, sem eru sam­tök gegn spill­ingu, hafi lagt áherslu á að hér­lendis ríki skiln­ings­leysi á ábyrgð og eðli opin­berra emb­ætta, og að það skiln­ings­leysi sé bein­línis átak­an­legt. „Það kemur fram í því að stjórn­mála­menn eru hvað eftir annað að taka algjör­lega vit­lausar ákvarð­anir um hvernig þeir eiga að umgang­ast við­kvæm stór­mál og spilla þar með trausti fyrir sér og kerf­inu í heild sinni. Ég held að í mörgum til­fellum sé það ekki þannig að það sé ein­hver ann­ar­leg sjón­ar­mið að baki heldur meira þrjóska, skiln­ings­leysi og vilja­leysi til þess að vinna með sam­fé­lag­inu, vinna með frjálsum félaga­sam­tökum til að finna leið­irnar til að bæta kerfið.“

Hægt er að sjá brot úr þætti kvölds­ins í spil­ar­anum hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár