Tveir með stöðu vottunaraðila

Eftirlit jafn­launa­vott­unar verður í höndum Samtaka aðila vinnu­mark­aðs­ins.

Eftirlit jafn­launa­vott­unnar verður í höndum Samtaka aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Ef fyr­ir­tæki tryggir kynj­unum ekki sömu laun fyrir sömu vinnu, eða að mál­efna­legar ástæður liggi ekki fyrir um launa­munin, innan tímara­mmans til­kynna sam­tökin fyr­ir­tækið til Jafn­rétt­is­stofu. Hún hefur heim­ild til að krefja fyr­ir­tækið um allt að 50.000 krónur í dag­sektir, verði fyr­ir­tækið ekki að úrbótum.

[links]Vott­un­ar­að­ili sem vottar jafn­launa­kerfi þarf að vera faggiltur og geta fram­vísað fag­gild­ing­ar­skír­teini þess til stað­fest­ingar. Tveir aðilar hafa nú heim­ild til að taka út jafn­launa­kerfi og veita jafn­launa­vottun en vonir standa til að þeim fjölgi á næst­unni. Námskeið verða haldin á vegum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins um vottun jafn­launa­kerfa, þá sér­stak­lega fyrir þá sem vilja öðl­ast heim­ild til að votta jafn­launa­kerfi sam­kvæmt jafn­launa­staðl­inum.

Lög um jafn­launa­vottun tóku gildi um ára­mótin og er stefnt að því að öll fyr­ir­tæki og stofn­anir með 250 starfs­mönnum eða fleiri, verða komin með jafn­launa­vottun í lok þessa árs. Minni fyr­ir­tæki fá frest til árs­ins 2021. Mark­miðið með vott­un­inni er að stuðla að því að karlar og konur fái sömu laun fyrir sama starf. Ábyrgðin er fyr­ir­tæk­is­ins og er það hlut­verk þess að fara yfir verk­lags­reglur í launa­málum sínum.

Til þess að stand­ast kröfu um jafn­launa­vottun þarf fyr­ir­tæki að geta sýnt fram á það að karlar og konur fái sömu laun fyrir sam­bæri­lega stöðu. Jafn­launa­vott­unin gildir í mest þrjú ár í senn og er úttekt tekin aftur á fyr­ir­tæk­inu eftir þann tíma. Standist fyr­ir­tæki ekki enn þá kröf­urnar er þeim óheim­ilt að nota jafn­launa­vott­un­ar­merkið áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár