Hin harða pólitík í „stærsta sigri“ Trumps

Banda­ríkja­for­seti sagð­ist hafa fært Banda­ríkja­mönnum jóla­gjöf­ina í ár með skatt­kerf­is­breyt­ing­unum. Pólitísk áhrif þeirra gætu orðið óvænt í hugum margra, þar sem mörg Demókrat­a­ríki munu njóta góðs af þeim. Eitt er víst; ójöfn­uður mun aukast.

Einn af hápunktum stjórn­mála­árs­ins á árinu 2017 voru breyt­ing­arnar á skatt­kerf­inu í Banda­ríkj­unum sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti náði í gegnum þingið í Banda­ríkj­unum í þessum mán­uði.

Breyt­ing­arnar eru þær mestu í ára­tugi og þykja vera „stærsti sigur“ Trumps eins og hann komst sjálfur að orði, eftir að þær voru komnar í gegnum þingið.

Hinir ríku verða betur settir

Margar hliðar eru á þessum breyt­ingum.

Ein þeirra er aug­ljós. Hún er sú, að þeir sem versta standa í Banda­ríkj­unum, og reiða sig á ýmsa aðstoð t.d. vegna heil­brigð­is­vanda eða fátæktar, munu koma illa út úr þessum breyt­ingum.

Tugir millj­óna manna, ekki síst í mið­ríkj­unum - þar sem þunga­miðjan í stuðn­ingi við Donald Trump er - munu standa eftir með minna milli hand­anna að með­al­tali.

Þannig má segja að Trump-bylt­ingin sé farin að éta börnin sín, en það er ómögu­legt að segja hvort þessi versn­andi staða hinna verst settu muni skila sér í minni stuðn­ingi við Trump.

Það þarf ekki að vera, þó kann­anir á und­an­förnum sex mán­uðum bendi til þess að stuðn­ing­ur­inn við hann hafi minnkað umtals­vert.

Það sem minna hefur verið rætt um er að þessa skatt­kerf­is­breyt­ingar gætu komið sér vel, sé horft yfir með­al­tals áhrifin, fyrir mörg af auð­ug­ustu ríki Banda­ríkj­anna - þar sem þunga­miðjan í stuðn­ingi Demókrata hefur verið.

Sterk­ustu efna­hags­hag­kerfi Banda­ríkj­anna eru flest orðin Demókrata­vígi. Í nýlegri umfjöllun Seattle Times segir að þeir sem vilji stofna til rekstrar geti allt eins horft eftir því hvaða ríki eru Demókrat­a­ríki (Blue state).

Má þar nefna Washington ríki, stóran hluta Kali­forníu, rík­ari hluta New York og flest þau svæði þar sem byggst hefur upp sterk­efnuð efri milli­stétt á und­an­förnum árum og ára­tugum. Skatta­lækk­unin mun skila sér í því að meira verður eftir í veskjum margra á þessum svæðum, en minna á þeim svæðum þar sem tekjur eru lægri.

Tekju­stofnar eru afar mis­mun­andi í Banda­ríkj­unum eftir ríkjum og sveit­ar­fé­lögum. Washington ríki er t.d. eitt þeirra sem ekki með neitt hefð­bundið útsvar, eins og við Íslend­ingar þekkjum, heldur ein­ungis rík­is­skatt­inn (Federal Tax).

Í skrifum miðla hér vestra hefur verið á það bent, að sveit­ar­fé­lögin og ríkin sem eru með þetta fyr­ir­komu­lag, gætu upp­lifað aukin umsvif sem síðan kynda undir tekju­stofnum þeirra, eins og virð­is­auka­skatti á þjón­ustu (algengt 9 pró­sent) og fast­eigna­sköttum. Sama má segja um mikla lækkun á fyr­ir­tækja­sköttum (úr 35 í 21 pró­sent). Sú lækkun gæti skilað sér ríku­lega inn í efna­hag þeirra svæða þar sem inn­viðir eru sterkir og auð­söfnun mikil, og ein­ungis rík­is­skattar.

Þau svæði sem hafa gengið í gegnum mikið vel­meg­un­ar­tíma­bil á und­an­förnum árum, gætu notið veru­lega góðs af þessum breyt­ingum (að með­al­tali). Vel­ferð­ar­þjón­ustan, eins og skóla­þjón­usta, fjár­fest­ingar í innviðum og fleiru, sem er á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu, gæti eflst við þetta, vegna sterk­ari tekju­stofna.

Sveit­ar­fé­lögin gætu einnig tekið póli­tískar ákvarð­anir um að nýta sterk­ari efna­hag til að koma til móts við þá sem minna hafa milli hand­anna eða standa höllum fæti.

Í sam­fé­lögum þeirra þar sem auð­ur­inn er mestur gæti því verið mikil gósentíð framundan og enn meiri efna­hags­leg upp­sveifla. Ríkasta 1 pró­sentið mun lík­lega eign­ast meira en helm­ing­inn af auðnum í land­inu þegar áhrifin af breyt­ing­unum hafa náð fram að ganga, en það á nú um 40 pró­sent, sam­kvæmt skrifum The Atlantic.

Erfitt er að spá fyrir um áhrifin á ýmsar hliðar þeirra fjöl­mörgu ólíku hag­kerfa sem eru í Banda­ríkj­unum. Sér­stak­lega hefur verið rætt um að mikil áhrif kunni að koma fram á fast­eigna­mark­aði.

Í nýju lög­unum er gert ráð fyrir að við­miðum vegna nið­ur­greiðslu vaxta hús­næð­is­lána verði breytt, sem þýðir að margar fjöl­skyldur munu finna fyrir lak­ari vaxta­kjörum, en aðrar - einkum þær efna­meiri - finna fyrir betri stöðu. Sum staðar gæti fast­eigna­verðið lækkað, en á öðrum svæðum gæti það hækkað, vegna þess­ara breyt­inga.

Hörð pólitík

Hin harða póli­tík í þessum breyt­ingum á skatt­kerf­inu er til­tölu­lega aug­ljós. Hinir rík­ari munu hafa það betra en áður, en hinir fátæk­ari - einkum þeir sem minna mega sín og standa höllum fæti - mun búa við þrengri kost.

Póli­tískt er erfitt að segja til um hver áhrifin verða til lengdar litið. Mörg af sterk­ustu Demókrata­svæð­unum í Banda­ríkj­unum, gætu fundið fyrir miklum efna­hags­legum ávinn­ingi og því gæti Trump nýtt sér þessar breyt­ingar til að ná í nýja stuðn­ings­menn á þeim svæðum.

Það hefur sýnt sig í gegnum tíð­ina að meiri­hluti fólks á mörgum af verst settu svæð­unum í Banda­ríkj­unum, ekki síst í mið­ríkj­unum, stendur þétt að baki Repúblikönum, alveg sama hvað á því dynur. Því er til mik­ils að vinna að reyna að breyta lands­lag­inu á þeim svæðum þar sem Demókratar hafa verið að styrkja stöðu sína.

Vaxandi ójöfn­uður er ekki vanda­mál að mati Trumps og Repúblik­ana. Svo mikið er víst. Þrátt fyrir mikil mót­mæli Demókrata, og reyndar mála­miðl­anir á ýmsum sviðum, þá komust skatt­kerf­is­breyt­ing­arnar í gegnum banda­ríska þingið.

Afleið­ing­arnar verða óum­deil­an­lega mun hrað­ari vöxtur ójafn­aðar. Erfitt að segja til um póli­tískar afleið­ingar, ekki síst í ljósi ólíkra áhrifa í ríkjum Banda­ríkj­anna. En alveg sama hver raun­veru­leik­inn verður að lokum, þá mun Trump vafa­lítið túlka málin sér í hag eins og hann hefur gert til þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár