Vinsælustu hlaðvörp ársins á Kjarnanum

Hvað eiga hræðsla við smur­stöðvar, Helgi Seljan, snapp­ar­inn Gæi á Tenerife, Erpur Eyvind­ar­son og afnám hafta sam­eig­in­legt? Allt voru þetta við­fangs­efni þeirra hlað­varps­þátta Kjarnans sem fengu mesta hlustun á árinu 2017.

5. Hismið - 12. maí: Markaðsdeildir landsins að vakna og hræðsla við smurstöðvar

Síð­asta Hismi fyrir verð­skuldað sum­ar­frí Árna Helga­sonar og Grétars Theo­dórs­sonar, umsjón­ar­manna þátt­ar­ins, var jafn­framt tíma­móta­þáttur þar sem mark­aðs­deildir lands­ins virt­ust vera að vakna og fyrsta eig­in­lega spons þátt­ar­ins frá upp­hafi var orðið að veru­leika. Árni og Grétar ræddu óvænt frum­kvöð­uls­starf, PR stunt vik­unnar hjá Bjarna Ben, trampólín og þá ótta­blöndnu virð­ingu sem þeir hafa fyrir starfs­mönnum smur­stöðva.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

4. Grettistak - 24. janúar: „Ég er í miklu betri stöðu til að bregðast við hótunum en fullt af öðru fólki“

Helgi Seljan var fyrsti gestur ­nýrrar seríu af Grettistaki í umsjón Grettis Gauta­son­ar. Herra Seljan fór um víðan völl og snerti meðal ann­ars á æsku­ár­unum á Reyð­ar­firði, hvort RÚV ætti að vera í rík­i­s­eigu og hvaða hand­rukk­arar hafi brotið rúður heima hjá sér.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

3. Hismið - 30. mars - Hismið og Gæi á Tenerife

Hismið hringdi til Tene í heitasta snapp­ara lands­ins sem var með Tenerife með fjöl­skyld­unni og tók stöð­una á honum þar. Gæi hafði þá á stuttum tíma orðið að einum vin­sælasta snapp­ara lands­ins. Hægt er að fylgj­ast með snöpp­unum frá honum með því að leita að iceredneck í Snapchat.

Árni Helgason og Grétar Theo­dórs­son, umsjón­ar­menn His­m­is­ins, ræddu einnig pizzahvíslarann og stóra Hauck & Auf­häuser-­mál­ið.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

2. Grettistak - 15. apríl: Erpur Eyvindarson: „Ég hef ekki fengið neina frípassa“

Erpur Þórólfur Eyvind­ar­son, sem oft gengur undir nafn­inu Ali Höhler, var gestur Grettistaks. Þrátt fyrir að vera póli­tískur öfga­maður með víð­tæk tengsl við ógæfu og óreglu­menn gaf hann sér dágóðan tíma til þess að spjalla um hin ýmsu mál. Eftir að hafa rætt Havana Club, sem fyrir algjöra til­viljun var á boðstól­unum, var farið yfir gamla tíma og allt það helsta.

Úr varð lengsti þáttur í sögu Grettistaks, og hlað­varps Kjarnans.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

1. Kvikan - 15. mars: Hver græðir hvað á afnámi hafta (sem er ekkert verið að afnema)?

Þrátt fyrir að til­kynnt hefði verið um fullt afnám hafta var aug­ljóst af nýjum reglum að enn væru margar hindr­anir á frjálsu flæði fjár­magns. Þá væru enn til staðar miklar hömlur á vaxta­muna- og afleiðu­við­skiptum og hluti aflandskrónu­eig­enda auð­vitað enn fastur innan hafta. En hverjir hagn­ast á afnámi hafta? Hver er hagur almenn­ings, fyr­ir­tækja, fjár­magns­eig­enda, rík­is­ins og Ill­uga Gunn­ars­son­ar? Þessum spurn­ingum og mörgum fleirum var svarað í Kvikunni, sem reynd­ist ein sú síð­asta sem gerð var, að minnsta kosti í bili. Ástæðan er sú að skömmu síðar hóf sjón­varps­þáttur Kjarnans göngu sína á Hring­braut, en hann er afbrigði af Kvikunni.

Í þessum mest áhlust­aða hlað­varps­þætti árs­ins var einnig farið yfir þá upp­stokkun sem var að eiga sér stað á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði með kaupum Vodafone á helsta inn­volsi 365 miðla og staðan tekin í Trumplandi.

Umsjón­ar­menn þess­arar Kviku voru Þórður Snær Júl­í­us­son og Magnús Hall­dórs­son.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár