Mest lesnu fréttaskýringar ársins 2017

Hvað eiga stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar, Júlíus Vífill Ingv­ars­son, Bakka­var­ar­bræður, aflandseignir Íslend­inga og Wintris Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sam­eig­in­legt? Allt voru þetta við­fangs­efni mest lesnu frétta­skýr­inga árs­ins á Kjarn­anum.

5. Fjármagnstekjuskattur verður hækkaður og fæðingarorlof lengt

Kjarninn greindi fyrstur fjöl­miðla frá því helstu atriðum stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar. Í umfjöllun hans kom m.a. fram að það ætti að stofna stöð­ug­leika­sjóð og gera hvít­bók um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Málefni Seðla­bank­ans yrðu áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og nefnd skipuð um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. Hljóðupptakan sem er ástæða þess að Sigurður G. má ekki verja Júlíus Vífil

Það sem kemur fram á hljóð­upp­töku frá 6. apríl 2016 er ástæða þess að Sigurður G. Guð­jóns­son mátti ekki verja Júlíus Vífil Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa sem grun­aður er um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti. Sigurður gæti fengið stöðu sak­born­ings í mál­inu. Kjarninn birti upp­tök­una í sept­em­ber.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

3. Bakkavararbræður á meðal ríkustu manna Bretlands

Bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir voru á nýjum lista yfir rík­ustu menn Bret­lands. Við­skipta­blokk bræðr­anna var sú sem olli íslenska líf­eyr­is­kerf­inu mestu tjóni. Þeir áttu fjöl­mörg félög á aflandseyjum og komu með háar fjár­hæðir til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

2. Gríðarlegt umfang skattaskjólseigna Íslendinga

„Þeir Íslend­ingar sem hafa verið í aðstöðu til þess hafa frá fornu fari sumir hverjir leitað leiða til þess að flytja fé úr landi, ýmist til þess að forð­ast skatt­greiðslur, leyna auð­legð sinni eða firra sig þeirri geng­is­á­hættu sem fylgir íslensku krón­unni.“ Þetta segir í skýrslu starfs­hóps um umfang skatta­skjóls­eigna, sem var birt var 6. jan­úar og varp­aði ljósi á skatta­skjóls­eignir Íslend­inga.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

1. Wintris greiddi ekki skatta í samræmi við lög og reglur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og eig­in­kona hans sótt­ust eftir því að fá breyta skatt­fram­tölum sínum eftir að Wintris-málið kom upp. Í bréfi til skatt­yf­ir­valda sögðu þau að ekki væri „úti­lokað að rétt­ara hefði verið að haga skatt­skilum“ með öðrum hætti en gert var. Þau sömdu við rík­is­skatt­stjóra um end­ur­á­kvarð­anir á skatt­greiðslum sínum.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár