Konur í iðngreinum rjúfa þögnina

Konur í iðn­greinum og hefð­bundnum karla­störfum segja mik­il­vægt að eyða þessu „konur kunna ekki“-við­horfi úr iðn­að­ar­störfum á Íslandi. Þær hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær segj­ast vilja fá að vinna í friði frá áreitni, ofbeldi og mis­munun.

Konur í iðn­greinum og hefð­bundnum karla­störfum hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær greina frá því að kyn­bundin mis­munun, áreitni og ofbeldi eigi sér stað í iðn­greinum. Þær krefj­ast þess að vera teknar alvar­lega og að þær geti sagt frá án þess að það komi niður á þeim í starfi.

Nú þegar hafa safn­ast 54 und­ir­skriftir á sér­stakri und­ir­skrifta­síðu og fylgja 8 sögur með yfir­lýs­ing­unni þar sem kon­urnar lýsa reynslu sinni af ofbeldi, mis­munun og áreitni.

„Það er mik­il­vægt að eyða þessu „konur kunna ekki“-við­horfi úr iðn­að­ar­störfum á Íslandi. Við tókum sama nám og sömu próf og þeir iðn­að­ar­menn sem við vinnum með og í mörgum til­vikum meiri reynslu en margir aðrir, en samt á að mis­muna og nið­ur­lægja okkur fyrir það eitt að hafa píku,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Vann hjá mjög stóru og góðu fyr­ir­tæki í tæp 4 ár. Vinnan var rosa­lega skemmti­leg og áhuga­verð en sama var ekki hægt að segja um móral­inn sem mætti mér. Þó margir tóku mér vel þá voru það nokkrir sem höfðu yndi á vera leið­in­legir við einu stelpuna og ég fékk vel að finna fyrir því í gegnum árin.

Einn sagði við mig þegar ég var nýbyrjuð að hann væri að bíða spenntur eftir að ég myndi gera mis­tök svo hann gæti gert grín af mér.

Yfir árin fékk ég setn­ingar eins og:

„ég hef engan áhuga hvað þú hefur að segja tussan þín“

„það er ekk­ert gagn af þér því þú vinnur ekki yfir­vinnu“ (Mörg börn á heim­ili)

Þetta er bara brot af því sem var sagt við mig.

Fann það þegar ég hætti hversu mikil léttir and­lega það var þegar ég hætti.

Erfitt fyrir konur í iðngreinum að koma fram

„Að þurfa að hlusta á athuga­semdir um útlit sitt, hvernig fötum maður klæð­ist, upp­spunnar sögur, óum­beðnar snert­ingar og káf, upp­nefni, nið­ur­læg­ing fyrir framan aðra, óvið­eig­andi skila­boð/myndir á Facebook og í SMS-um, kyn­ferð­is­leg áreitni frá eldri mönnum fær mann til að gef­ast upp,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[links]Enn fremur segir að í iðn­störfum sé það oft þannig að þegar strákar byrja í vinnu séu þeir álitnir góðir þangað til annað kemur í ljós en konur þurfi hins vegar að vinna hart að því að vera álitnar góðar. Þegar hópar komi í heim­sóknir í fyr­ir­tækin sem þær vinna hjá upp­lifi þær sig sem sýn­ing­ar­dýr þar sem passað sé upp á að sýna kon­urnar á vinnu­staðnum.

„Við eigum ekki að þurfa að fara niður á það plan að sætta okkur við kyn­ferð­is­lega brand­ara, káf og grín á okkar kostnað til að geta unnið með körlum.

Það er mjög erfitt fyrir konur í iðn­greinum að koma fram og greina frá sínum sögum því afar auð­velt er að rekja þær til okkar aftur. Við teljum þó nauð­syn­legt að rödd okkar heyr­ist í stað þess að ætl­ast til þess að við séum ekki með vesen og hundsum kyn­ferð­is­lega áreitni. Hingað til hafa ger­endur sloppið auð­veld­lega þegar við þorum að segja frá meðan við erum jafn­vel teknar úr verk­efnum frekar en ger­and­inn,“ segja þær.

Í vinnu­staða­partý

Einn um 20 árum eldri en ég og giftur rennir hend­inni undir pilsið upp lærið á mér. Ég ýti henni ákveðið frá mér og huns­aði þetta og lét eins og ekk­ert sé eins og venju­legu rassa­klíp­ingar og pot sem maður átti til að fá.

Skrapp á kló­settið seinna um kvöldið sem var aðeins frá partý­inu þar situr hann um mig rétt hjá og ýtir mér og þrýstir mig upp við vegg og rekur tung­unni uppí mig og grípur um klofið á mér, heldur mér fast og segir hvað honum langar að ríða mér

Ég náði að ýta mér frá. En fór fljót­lega heim og dauð­kveið fyrir að fara að vinna aftur með þessum manni en hann lét eins og ekk­ert sé og ég sagði aldrei neitt.

Menn líti í eigin barm

Þær bæta við að sem betur fer séu fá skemmd epli í hópnum og að þær hafi unnið með frá­bærum mönnum sem hafa komið fram af jafn­rétti og virð­ingu. Þær vona inni­lega að þeir sem koma svona illa fram við kven­fólk líti í eigin barm og taki sig á því kyn­ferð­is­leg áreitni og nið­ur­læg­ing er óásætt­an­leg.

„Við krefj­umst þess að allir sam­starfs­menn okkar taki ábyrgð á að upp­ræta vanda­málið, að við­eig­andi yfir­völd, stétt­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki í karllægum iðn­að­ar­störfum komi sér upp verk­ferlum og við­bragðs­á­ætlun gegn kyn­bund­inni áreitni.“

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár