Öryrkjabandalagið lýsir vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið

Stjórn Öryrkja­banda­lags Íslands lýsir gríð­ar­legum von­brigðum með fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Skorað er á þing­heim að standa við gefin lof­orð með því að gera strax mann­sæm­andi breyt­ingar á fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi.

Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir.
Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn Öryrkja­banda­lags Íslands lýsir gríð­ar­legum von­brigðum með fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Skorað er á þing­heim að standa við gefin lof­orð með því að gera strax mann­sæm­andi breyt­ingar á fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi og leið­rétta kjör örorku­líf­eyr­is­þega.

Í fyrsta lagi telja þau að hækka þurfi óskertan líf­eyri almanna­trygg­inga veru­lega og í öðru lagi að afnema verði krónu-á-móti-krónu skerð­ingu sér­stakrar fram­færslu­upp­bótar.

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Öryrkja­banda­lags Íslands vegna fjár­laga­frum­varps rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2018 eftir neyð­ar­fund þann 18. des­em­ber 2017.

Í grein­ar­gerð Öryrkja­banda­lags Íslands segir að kjör meg­in­þorra líf­eyr­is­þega hafi rýrnað á síð­ustu árum. Þrátt fyrir lof­orð hafi kjaragliðnun fyrri ára ekki verið leið­rétt. Þvert á móti hafi hún auk­ist. Frá 2013 hafi óskertur líf­eyrir almanna­trygg­inga hækkað mun minna en hækkun lág­marks- og með­al­launa.

Enn fremur er greint frá því að frá árinu 2010 hafi kaup­máttur launa auk­ist stöðugt ár frá ári. Hjá örorku­líf­eyr­is­þegum hafi þró­unin verið með allt öðrum hætti. Kaup­máttur heild­ar­tekna þeirra hafi rýrnað flest árin og lítið breyst síð­ustu tvö ár. Þá hafi byrði vegna hús­næð­is­kostn­aðar, sem var mjög íþyngj­andi fyrir, auk­ist enn meira með gríð­ar­legum hækk­unum.

Þau benda á að fyrir alþing­is­kosn­ingar 2016 og 2017 hafi lof­orð verið gefin um að bæta kjör örorku­líf­eyr­is­þega en ekk­ert hafi bólað á efndum.

„Í frum­varpi til fjár­laga fyrir árið 2018 er ætl­unin að hækka greiðslur til líf­eyr­is­þega um 4,7%. Í krónu­tölum myndi það þýða að óskertur líf­eyrir almanna­trygg­inga myndi fara úr tæpum 228 þús. kr. í rúmar 238 þús. kr. Eftir skatt yrði hækk­unin í kringum 6.700 kr. á mán­uði. Þessi upp­færsla myndi sára­litlu breyta fyrir fólk með lágar tekjur, sem mun áfram þurfa að velta hverri krónu fyrir sér.

Ljóst er að fram­færsla örorku­líf­eyr­is­þega gerir þeim ekki kleift að lifa mann­sæm­andi lífi og er fólki haldið í fátækt­ar­gildru. Tekju­skerð­ingar eru veru­legar þrátt fyrir lágar tekjur. Allar skatt­skyldar tekjur yfir eina krónu á mán­uði skerða sér­stöku fram­færslu­upp­bót­ina krónu- á- móti- krónu, sem örorku- og end­ur­hæf­ingar- líf­eyr­is­þegar með lægstu tekj­urnar eru með.

Gert er ráð fyrir að rík­is­sjóður skili 48 millj­arða króna afgangi á fjár­lögum. Þrátt fyrir það eru engin áform sjá­an­leg hjá stjórn­völdum um að draga úr tekju­skerð­ingum eða afnema „krónu- á -móti- krónu“ skerð­ingar hjá örorku­líf­eyr­is­þegum.

Ekkert um okkur án okkar!“ segir í álykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár