Konur í stjórnmálum á Íslandi segja sögu sína

Und­an­farna 6 daga hafa rúm­lega 800 konur, sem eru og hafa verið virkar í stjórn­málum á Íslandi, rætt saman og deilt reynslu­sögum í lok­aða Facebook hópnum „Í skugga valds­ins“, um kynjað starfs­um­hverfi stjórn­mál­anna.

Und­an­farna 6 daga hafa rúm­lega 800 konur, sem eru og hafa verið virkar í stjórn­málum á Íslandi, rætt saman og deilt reynslu­sögum í lok­aða Facebook hópnum „Í skugga­valds­ins“, um kynjað starfs­um­hverfi stjórn­mál­anna.

[links] 

136 sögur hafa nú verið birtar opin­ber­lega en kon­urnar koma úr öllum flokkum, eru á ýmsum aldri, hafa starfað á flestum sviðum stjórn­mál­anna, á ýmsum tímum og um allt land. Segir í til­kynn­ingu frá for­svars­mönnum hóps­ins að ein­stakur sam­hljómur og sam­staða hafi ein­kennt umræður í hópnum. Fjöl­breyttar sögur kvenn­anna dragi upp slá­andi mynd af þeim karllæga heimi sem stjórn­málin eru – sögur um kyn­bundið ofbeldi, áreitni, vald­beit­ingu og þöggun.

Var á barnum. For­mað­ur­inn þáver­andi kom aftan að mér, strauk rass­inn á mér. Ég brosti og gekk í burtu- hann elti mig að sal­ern­inu og spurði hvort hann ætti ekki að koma inn. Ég hló var vand­ræða­leg en sagði nei. Þetta var ekki í fyrsta né síð­asta skiptið sem þetta gerð­ist.

Í sam­eig­in­legri áskorun hóps­ins, sem var und­ir­rituð af á fimmta hund­rað stjórn­mála­konum, er þess kraf­ist að karlar taki ábyrgð og að stjórn­mála­flokk­arnir taki af festu á mál­inu. Þess er kraf­ist að flokk­arnir og starfs­staðir stjórn­mála­fólks setji sér við­bragðs­reglur og lofi konum því að þær þurfi ekki að þegja og að þær muni fá stuðn­ing.

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að það hafi verið ánægju­legt að fylgj­ast með þeim jákvæðum við­brögðum sem umræðan og áskorun hóps­ins hefur þegar kallað fram, en mik­ill ein­hugur ríki meðal kvenna í hópnum, um að fylgja mál­inu fast eftir á kom­andi miss­erum. Nú sé tími breyt­inga runn­inn upp.

Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoð­ana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eftir, en ég hef oft lesið um alls­konar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér.

Til að halda umræð­unni áfram, og fagna þeim áfanga sam­stöð­unnar sem þegar hefur náðst, munu konur úr hópnum hitt­ast víða um land, síð­degis í dag.

Hægt er að lesa þær 136 sögur sem hafa verið birtar í hópnum, ásamt áskor­un­inni sem á fimmta hundað stórn­mála­konur hafa und­ir­ritað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár