Áföll koma verst niður á þeim sem minna mega sín

Norrænu vel­ferð­ar­ríkin eru talin vera til fyr­ir­myndar en þegar kemur að því hvernig félags­þjón­usta bregst við vá þá hafa Íslend­ingar mikið að læra af öðrum löndum, t.d. Kína, Indlandi og fleiri löndum.

Þeir standa verr að vígi í og eftir hamfarir sem eru undir í samfélaginu fyrir.
Þeir standa verr að vígi í og eftir ham­farir sem eru undir í sam­fé­lag­inu fyrir. Mynd: Pexels

Ham­fara­rann­sóknir í félags­ráð­gjöf sýna að þegar áföll ríða yfir þá komi þeir verst út sem illa standa að vígi fyrir. Þetta á bæði við þegar áfallið ríður yfir og eftir það. 

Þetta segir Guðný Björk Eydal, pró­fessor við Félags­ráð­gjaf­ar­deild Háskóla Íslands, en hún vann að verk­efni á vegum Norrænu vel­ferð­ar­vakt­ar­innar sem birti skýrslu um loka­nið­ur­stöður sínar í gær.

Hún segir jafn­framt að þess vegna sé félags­þjón­ustan svo mik­il­væg því þar liggi þekk­ingin. Með því að hafa öfl­uga félags­þjón­ustu sé verið að þjóna þeim sem hafa mikla þörf.

Getum lært af öðrum

Félags­þjón­ustan á Íslandi getur lært af hinum Norð­ur­lönd­unum og ekki síður af öðrum löndum, eins og Indlandi og Kína, þegar kemur að huga að upp­bygg­ingu eftir ham­farir eða erfið stór áföll. 

Guðný Björk segir enn fremur að skýr­ari lög­gjöf þurfi varð­andi almanna­varnir og félags­þjón­ustu. Ábyrgð­ar­hlut­verk verði að vera skýr og æski­legt væri ef almanna­varnaræf­ingar næðu einnig til félags­þjón­ustu.

Heima­þjón­usta skiptir máli í þessu sam­bandi, að hennar sögn, en sveit­ar­fé­lögin sjá um hana. Þess vegna verði að vera gott sam­starf á milli almanna­varna og sveit­ar­fé­lag­anna. Nauð­syn­legt sé að umræð­unni sé haldið áfram milli þess­ara aðila en hún bætir því við að hóp­ur­inn sem stóð að verk­efn­inu sé byrj­aður að und­ir­búa vinnu­þing með Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og almanna­vörnum. Það muni vera haldið snemma á næsta ári.

Guðný Björk segir að mik­il­vægt sé að hver og ein stofnum þurfi að vera með skýrt hlut­verk og gott skipu­lag. Það hafi komið vel í ljós þegar hóp­ur­inn fór að greina ástandið. Of fáir hafi verið að sinna því sem þarf að sinna.

Ætla að byggja upp góða þekkingu

Hún bendir á að Finnar fram­kvæmi flottar almanna­varnaræf­ingar sem ná yfir fleiri þætti en ein­ungis fyrstu við­brögð. Allar stofn­anir ættu að vera með áætlun, sem og sveit­ar­fé­lög. Og þrátt fyrir að sum þeirra séu búin að gera slíkar áætl­anir þá sé ýmis­legt sem þurfi að efla.

[links]

Hópurinn sem stóð að verk­efn­inu mun halda áfram að skoða sér­stök sveit­ar­fé­lög. „Við ætlum að styrkja vef­inn og þræða þetta áfram. Við ætlum að byggja upp góða þekk­ingu á þessu sviði,“ segir Guðný Björk og bætir við að þrátt fyrir að mikil reynsla, þekk­ing og góðar æfingar séu stund­aðar og mikið sé unnið með íbúum þá sé hrein­lega ekki hægt að búa sig undir allt.

Í verk­efn­inu var metið hvernig og hvort nor­ræn vel­ferð­ar­kerfi séu und­ir­búin undir hvers konar vá með sér­staka áherslu á hlut­verk félags­þjón­ustu. Dreginn hafi verið lær­dómur af starfi Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar sem var stofn­sett hér á landi í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar, við­bragðs­kerfi ann­arra Norð­ur­landa kort­lögð og skoðað hvernig nor­ræn vel­ferð­ar­kerfi þurfa að búa sig undir áskor­anir kom­andi ára.

Sérstök áhersla hafi verið lögð á hlut­verk félags­þjón­ustu og hvernig hún geti aukið við­náms­þrótt ein­stak­linga og sam­fé­laga.

Kjarninn fjall­aði um skýrsl­una í gær en í aðal­nið­ur­stöðum segir að Finnland, Noregur og Svíþjóð leggi sér­staka áherslu á félags­þjón­ustu í reglu­verki þeirra þegar erf­iðir tímar steðja að. Í skýrsl­unni er bent á að í Svíþjóð séu reglu­verkin fólgin í lög­unum sjálfum sama hverjar aðstæður eru, en sér­stök lög séu í hinum lönd­unum tveimur þegar um óvissu­á­stand er að ræða.

Öll Norð­ur­löndin ætl­ast til þess að yfir­völd búi til áætlun fyrir óvissu­tíma, þrátt fyrir að á Íslandi og í Danmörku sé ekki fjallað sér­stak­lega um hlut­verk félags­þjón­ustu þegar vá stendur yfir. Hins vegar beri henni að gera áætlun ef eitt­hvað kemur upp á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár