Hlutverk félagsþjónustu mikilvægt á óvissutímum og í kreppu

Út er komin loka­skýrsla Norrænu vel­ferð­ar­vakt­ar­innar. Um er að ræða skýrslu í TemaNord rit­röð­inni en hún er helguð árangri af starfi vinnu­hópa eða verk­efna á vegum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar.

Á und­an­förnum árum hafa Norð­ur­löndin þurft að ganga í gegnum ýmsar ham­farir á borð við nátt­úru- og tækni­ham­farir og ham­farir af manna­völdum. Slíkar ham­farir eru að aukast og til þess að verja þá sem minnst mega sín í sam­fé­lög­unum er mik­il­vægt að félags­þjón­ustan sé hluti af sér­stöku neyð­arteymi. 

Þetta kemur fram í loka­skýrslu Norrænu vel­ferð­ar­vakt­ar­innar. Um er að ræða skýrslu í TemaNord rit­röð­inni en hún er helguð árangri af starfi vinnu­hópa eða verk­efna á vegum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar.

Segir í skýrsl­unni að til­gang­ur­inn með þeim til­lögum sem lagðar eru fyrir í henni sé að gera nor­ræna vel­ferð­ar­kerfið öfl­ugra og betra í stakk búið til að takast á við áskor­anir fram­tíð­ar­innar. 

Norræna vel­ferð­ar­vaktin var rann­sókn­ar­verk­efni í for­mennsku­á­ætlun Íslands 2014 og náði til þriggja ára. Markmið verk­efn­is­ins var að finna betri leiðir til að mæla og fylgj­ast með vel­ferð borg­ar­anna, rann­saka áhrif fjár­mála­þreng­inga og tengdra afleið­inga á nor­rænu vel­ferð­ar­kerfin og kort­leggja hlut­verk félags­þjón­ustu við hvers konar vá.

Umfangs­miklar skýrslur hafa verið gefnar út á vegum verk­efn­is­ins og er fjallað um helstu nið­ur­stöður þeirra í loka­skýrsl­unni. Einnig er fjallað um Norrænan vel­ferð­ar­um­ræðu­vett­vang og frek­ari útfærslu nýrra Norræna vel­ferð­ar­vísa. Verk­efnið skipt­ist í þrjá meg­in­þætti.

Finnland, Noregur og Svíþjóð með sérstaka áherslu á félagsþjónustu

Í fyrsta lagi er fjallað um vel­ferð og vá í skýrsl­unni. Segir í til­kynn­ingu frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu að metið hafi verið hvernig nor­ræn vel­ferð­ar­kerfi eru und­ir­búin undir hvers konar vá með sér­staka áherslu á hlut­verk félags­þjón­ustu. Dreginn hafi verið lær­dómur af starfi Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar sem var stofn­sett hér á landi í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar, við­bragðs­kerfi ann­arra Norð­ur­landa kort­lögð og skoðað hvernig nor­ræn vel­ferð­ar­kerfi þurfa að búa sig undir áskor­anir kom­andi ára. Sérstök áhersla hafi verið lögð á hlut­verk félags­þjón­ustu og hvernig hún geti aukið við­náms­þrótt ein­stak­linga og sam­fé­laga.

Í aðal­nið­ur­stöðum segir að Finnland, Noregur og Svíþjóð leggi sér­staka áherslu á félags­þjón­ustu í reglu­verki þeirra þegar erf­iðir tímar steðja að. Í skýrsl­unni er bent á að í Svíþjóð séu reglu­verkin fólgin í lög­unum sjálfum sama hverjar aðstæður eru, en sér­stök lög séu í hinum lönd­unum tveimur þegar um óvissu­á­stand er að ræða.

Öll Norð­ur­löndin ætl­ast til þess að yfir­völd búi til áætlun fyrir óvissu­tíma, þrátt fyrir að á Íslandi og í Danmörku sé ekki fjallað sér­stak­lega um hlut­verk félags­þjón­ustu þegar vá stendur yfir. Hins vegar beri henni að gera áætlun ef eitt­hvað kemur upp á.

Dreginn lærdómur af mistökum og sigrum

Í öðru lagi er fjallað um kreppur og vel­ferð í skýrsl­unni. Segja skýrslu­höf­undar að gerð hafi verið víð­tæk rann­sókn á afleið­ingum fjár­málakreppa á Norð­ur­lönd­unum, bæði á yfir­stand­andi kreppu og kreppum um 1990 og könnuð sér­stak­lega við­brögð stjórn­valda og árangur af þeim. Gerður hafi verið sam­an­burður við valin Evr­ópu­lönd svo sem Eystra­salts­ríkin, Írland, Bretland, Grikk­land, Ung­verja­land, Spán og Portúgal.

Dreginn hafi verið lær­dómur af því sem vel var gert og öðru sem skil­aði ekki árangri. Þau segja að Oxford Uni­versity Press hafi sam­þykkt að gefa út bók út frá þessu verk­efni, sem ber vinnu­heitið Welfare and the Great Recessio.

Í úrdrætti úr bók­inni kemur fram að reynslan af efna­hags­hrun­inu hafi verið mjög mis­mun­andi milli þjóða. Slíkt hið sama hafi verið uppi á ten­ingnum í krepp­unni á fjórða ára­tug síð­ustu aldar en mis­mun­ur­inn hafi falist í því að vel­ferð­ar­kerfið er öfl­ugra nú en þá og í öðru lagi að meiri þekk­ing er á því hvernig eigi að koma í veg fyrir efna­hags­legar kreppur og bregð­ast við þeim. Þessi þekk­ing hafi aftur á móti verið notuð með mis­mun­andi hætti eftir þjóðum.

Misjafn árangur milli þjóða

Atvinnu­leysi, fjár­hags­örð­ug­leikar, ójöfn­uður og fátækt jókst gríð­ar­lega í krepp­unni. Áhrifin voru mis­jöfn milli landa, jafn­vel milli þeirra landa sem verst komu út úr henni. Í bók­inni segir enn fremur að sum löndin við Mið­jarð­ar­hafið hafi komið ein­stak­lega illa út úr hrun­inu og átt erfitt með að rísa upp á ný. Önnur ríki á borð við Eystra­salts­ríkin, Írland og Íslandi hafi komið illa út úr sömu kreppu en gengið betur og hraðar að byggja upp sam­fé­lagið að nýju.

Einnig er bent á að Norð­ur­löndin hafi komið til­tölu­lega vel út úr efna­hags­hrun­inu fyrir utan Ísland.

Í þriðja og síð­asta lagi voru unnar til­lögur að Norrænum vel­ferð­ar­vísum og segir í skýrsl­unni að til­gang­ur­inn hafi verið að auð­velda stjórn­völdum yfir­sýn yfir sam­fé­lags­þró­un­ina á hverjum tíma. Slíkir vel­ferð­ar­vísar auð­velda stefnu­mótun og ákvarð­ana­töku þannig að unnt verði að efla frekar nor­rænu vel­ferð­ar­kerfin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár