35 þúsund erlendir ríkisborgarar greiddu skatta á Íslandi í fyrra

Ef fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á meðal skatt­greið­enda á Íslandi verður áfram jafn hröð og hún var í fyrra verða þeir fleiri en Íslend­ingar eftir átta ár. Pól­verjum sem greiða skatta hér á landi fjölg­aði um 3.254 á árinu 2016.

Hluti þeirra erlendu ríkisborgarar sem koma til Íslands gera það til að starfa í byggingaiðnaði.
Hluti þeirra erlendu rík­is­borg­arar sem koma til Íslands gera það til að starfa í bygg­inga­iðn­aði. Mynd: Rakel Tómasdóttir


Erlendum rík­is­borg­urum á meðal skatt­greið­enda á Íslandi fjölg­aði um 27,3 pró­sent í fyrra. Á því ári var einn af hverjum átta fram­telj­endum til skatts erlendur rík­is­borg­ari. Þá eru ekki með­taldir þeir útlend­ingar sem hlutu íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2016, en hluti fjölg­unar á íslenskum skatt­greið­endum er rakin til þeirra. Um síð­ustu ára­mót voru erlendir rík­is­borg­arar á skatt­grunn­skrá 35.414 tals­ins, eða 12,4 pró­sent skatt­greið­enda. Þetta kemur fram í nýjasta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaði rík­is­skatt­stjóra.

[links]Erlendir rík­is­borg­arar á meðal íslenskra skatt­greið­enda hafa aldrei verið jafn margir og þeir voru í lok síð­asta árs. Á sama tíma hefur hlut­fall íslenskra rík­is­borg­ara á meðal skatt­greið­enda aldrei verið lægra, eða 87,6 pró­sent. Morg­un­ljóst er að hlut­fall útlend­inga á meðal skatt­greið­enda hefur hækkað umtals­vert það sem af er þessu ári, enda sýna nýbirtar tölur frá Hagstofu Íslands að aldrei hafi fleiri erlendir rík­is­borg­arar flutt hingað til lands til að starfa en á það sem af er árinu 2017. Alls voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar umfram brott­flutta hingað til lands 6.630 á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma fluttu 250 fleiri Íslend­ingar heim en fóru af landi brott.

Útlendingar gætu orðið fleiri en Íslendingar eftir átta ár

Í grein­inni í Tíund, sem Páll Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrifar, kemur fram að ef útlend­ingum á skatt­skrá heldur áfram að fjölga jafn mikið og þeim fjölg­aði í fyrra, um 27,3 pró­sent á ári, þá verða þeir orðnir fleiri en Íslend­ingar eftir átta ár. Það er árið 2024. Líkt og áður sagði þá liggur þegar fyrir að útlend­ingum mun að öllum lík­indum fjölga meira hér­lendis í ár en þeim fjölg­aði í fyrra. Því gæti orðið styttra í þessa stöðu en átta ár.

[adspot]Páll bendir þó á að lík­ast til sé um tíma­bundna fjölgun að ræða. Hér á landi er enda mikil efna­hags­vel­sæld og mikil eft­ir­spurn eftir atvinnu. Stærsti hluti þeirra sem komi hingað til lands séu ungt fólk.

Eftir banka­hrunið þá sýndi það sig að íslenskum vinnu­mark­aður er mjög sveigj­an­legur. Þegar atvinnu­leysi jókst hratt þá fóru margir þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem hér höfðu starfað af landi brott og leit­uðu að tæki­færum ann­ars staðar.

Pólverjum fjölgaði langmest

Pól­verjum, stærsta þjóð­ern­is­hópi sem býr á Íslandi fyrir utan Íslend­inga, fjölg­aði með á skatt­grunn­skrá í fyrra. Þeim fjölgað um 3.254 eða um 28,7 pró­sent. Íslenskum rík­is­borg­urum fjölg­aði til sam­an­burðar um 1.520 eða 0,6 pró­sent. „Það hlýtur að telj­ast athygl­is­vert að pólskum rík­is­borg­urum fjölgi ekki aðeins mun hraðar en íslenskum heldur um 28,7 pró­sent á móti 0,6 pró­sent, heldur einnig ríf­lega tvö­falt meira en íslenskum rík­is­borg­urum á skatt­skrá. Nú voru 14.589 pólskir rík­is­borg­arar á skatt­grunn­skrá sem þýðir að um 5,1 pró­sent á skatt­grunn­skrá voru pólskir rík­is­borg­arar,“ segir í grein Páls.

Þá fjölg­aði Litháum einnig mikið eða um 907, sem var fjölgun um 51,3 pró­sent. Þeir eru nú 2.675. Rúmenum hefur líka fjölgað mikið hér­lendis frá því að þeir fengu aðgang að sam­eig­in­legum vinnu­mark­aði Evrópska efna­hags­svæð­is­ins en þeir voru orðnir 871 á skatt­grunn­skrá árið 2017. Lettum á skatt­grunn­skrá fjölg­aði síðan um 49,9 pró­sent á milli ára. Þeim fjölg­aði um 120 í fyrra og eru nú 1.132.

Tékkum, Portú­gölum og Spán­verjum fjölg­aði um 261 (52,7 pró­sent),188 (fjölgun um 29 pró­sent) og 173 (fjölgun um 25 pró­sent). Ung­verjum og Slóvökum fjölg­aði einnig mikið árið 2016, eða um 153 (52,2 pró­sent) og 152 (42,7 pró­sent). Í grein Páls segir að það sé athygl­is­vert að Bretum, Frökkum og Þjóð­verjum haldi áfram að fjölga í land­inu. „Bretum um 147, eða 16 pró­sent, Þjóð­verjum um 140, eða 11 pró­sent, og Frökkum um 64 sem var 11 pró­sent fjölgun.

Þá er áhuga­vert að sjá að Króötum og Búlgurum fjölg­aði aftur mikið eða um 116 og 71, Króötum um 139,8 pró­sent og Búlgurum um 31,3 pró­sent. Þessar þjóðir fengu aðgang að sam­eig­in­legum vinnu­mark­aði Evrópska efna­hags­svæðs­ins fyrir nokkrum árum. Dönum og Fær­ey­ingum fjölg­aði um 78 sem er fjölgun um 6,5 pró­sent.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár