Færri Íslendingar telja innflytjendur vera ógn en áður

Hlutfall þeirra Íslend­inga sem telja inn­flytj­endur vera ógn við þjóð­ar­ein­kenni okkar hefur helm­ing­ast á tæpum ára­tug. Kjós­endur Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks telja ógn­ina meiri en kjós­endur ann­arra flokka.

Útlend­ingum hefur fjölgað mikið á Íslandi á und­an­förnum árum. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 10,6 pró­sent mann­fjöld­ans og 12,4 pró­sent þeirra sem töldu fram skatt hér­lendis á árinu 2016 voru erlendir rík­is­borg­arar. Þeir hafa aldrei verið fleiri og þeim fjölgar ár frá ári.

Í nýj­ustu Tíund, tíma­riti rík­is­skatt­stjóra, kemur fram að ef erlendum rík­is­borg­ur­unum sem borga skatta á Íslandi heldur áfram að fjölga á sama hraða og þeim gerði á árinu 2016 verða þeir orðnir fleiri en Íslend­ingar eftir átta ár.

Það eru þó ekki bara þeir sem koma hingað til lands til að vinna sem hefur fjölgað hér­lendis. Kvótaflótta­menn, sem Íslend­ingar hafa verið að taka við frá árinu 1956, eru orðnir sam­tals 645 tals­ins og búið er að ákveða að taka við 50 til við­bótar á næsta ári. Þá eru ótaldir hæl­is­leit­end­urnir en þeim fjölgar ár frá ári. Í fyrra sóttu 1.130 manns um vernd hér­lendis og búist er við því að þeir verði um 1.300 í ár, sam­kvæmt nýjum tölum frá Útlend­inga­stofnun. Tæplega níu af hverjum tíu sem sækja hér um hæli fá það hins vegar ekki.

Ýmsir stjórn­mála­menn hafa valið að not­færa sér þessa breyt­ingu til að ala á hræðslu og nota fjölgun útlend­inga á Íslandi til að tefla hópum saman. Þannig er kostn­aður vegna t.d. mót­töku hæl­is­leit­enda og flótta­manna not­aður sem ástæða fyrir því að aðrir við­kvæmir hópar hafi það ekki betra.

Fyrir um ára­tug átti sé stað sam­bæri­leg umræða á vett­vangi stjórn­mál­anna en þá var verið að hnýta í útlend­inga sem komu hingað til lands til að vinna, og þeir sagðir hafa atvinnu af Íslend­ingum eða verða þess vald­andi að lækka laun þeirra. Þá var einnig talað um, í pontu Alþingis, að nauð­syn­legt væri að „verja íslensk gildi og menn­ing­ar­arf og tak­marka inn­flutn­ing fólks við félags­lega og fjár­hags­lega getu þjóð­ar­innar til að halda uppi því vel­ferð­ar­kerfi sem hefur verið byggt upp af miklum dugn­aði und­an­farna ára­tugi þótt alltaf megi gera betur. Yfirvöld í okkar litla landi verða að hafa stjórn á því hverjir og hvað margir inn­flytj­endur koma til lands­ins. Öllum sem sækja hér um dval­ar­leyfi ber að skuld­binda sig til að hlíta íslenskum lögum og stjórn­ar­skrá og nema íslensku.“

Einungis 17,8 prósent telja innflytjendur vera ógn

Sökum þess að sumir stjórn­mála­menn, og jafn­vel heilir stjórn­mála­flokkar á borð við Íslensku þjóð­fylk­ing­una, hafa gert stórt vanda­mál úr inn­flytj­endum, flótta­mönnum eða hæl­is­leit­endum árum saman að útlend­inga­andúð hér­lendis væri að aukast. En svo virð­ist alls ekki vera. Þvert á móti.

Hulda Þór­is­dóttir, lektor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands og sál­fræð­ingur, hélt fyr­ir­lestur á mál­þingi Sið­menntar sem hét „Hættan af þjóð­ern­is­hyggju“ og var haldið 14. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar fór hún meðal ann­ars yfir nið­ur­stöður úr Íslenska kosn­inga­rann­sókn­inni sem var fyrst fram­kvæmd í kjöl­far kosn­inga til Alþingis árið 1983 og hefur verið end­ur­tekin eftir hverjar Alþing­is­kosn­ingar síðan þá. Síðasta rann­sókn var því fram­kvæmd í fyrra­haust.

Ein þeirra spurn­inga sem spurt hefur verið í rann­sókn­inni síð­ast­lið­inn ára­tug er hvort að inn­flytj­endur séu alvar­leg ógn við þjóð­ar­ein­kenni okkar.

Samkvæmt nið­ur­stöðum kosn­inga­rann­sókn­ar­innar töldu 34,6 pró­sent Íslend­inga að inn­flytj­endur væru alvar­leg ógn við þjóð­ar­ein­kenni okkar árið 2007. Síðan þá hefur hlut­fall þjóð­ar­innar sem það heldur farið hratt lækk­andi.

Árið 2009 sögð­ust 25 pró­sent hennar vera annað hvort alveg eða frekar sam­mála því að inn­flytj­endur væru ógn við íslensk þjóð­ar­ein­kenni. Fjórum árum síðar var hlut­fallið komið niður í 20,2 pró­sent og í fyrra voru 17,8 pró­sent sam­mála því að inn­flytj­endur væru alvar­leg ógn við þjóð­ar­ein­kenni okkar. Á tíma­bil­inu hefur hlut­fall þeirra sem telja inn­flytj­endur ekki skipta máli í þessu sam­hengi auk­ist úr tveimur pró­sentum í sex pró­sent.

Það þýðir að árið 2016 voru 76,2 pró­sent Íslend­inga þeirrar skoð­unar að inn­flytj­endur ógni ekki þjóð­ar­ein­kennum okkar alvar­lega.

Sjálfstæðismenn líklegastir til að telja innflytjendur ógn

Það hversu alvar­leg ógn við þjóð­ar­ein­kenni okkar kjós­endur telja inn­flytj­endur vera er mælt á skal­anum 1-5. Því hærri sem talan er því meiri ógn telja kjós­endur til­tek­inna flokka að inn­flytj­endur séu. Hér að neðan má sjá hvernig sú afstaða rað­ast niður á lands­menn eftir því hvaða flokka þeir kjósa.

Flokkur 2007 2009 2013 2016
Sam­fylk­ing 2,31 1,92 1,64 1,71
Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 2,38 2,28 2,41 2,37
Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 2,62 2,56 2,32 2,48
Vinstri græn 1,93 1,95 1,69 1,43
Borg­ara­hreyf­ingin 1,90
Björt fram­tíð 1,56 1,34
Píratar 1,59 1,58
Frjáls­lyndi flokk­ur­inn 3,18 2,17 2,38
Dögun (T) 2,30
Viðreisn (C) 1,90

Þar kemur fram að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru lík­leg­astir allra til að telja inn­flytj­endur ógna þjóð­ar­ein­kennum Íslend­inga í dag. Þannig var það árið 2007 og hlut­fall þeirra sem eru með þá skoðun hefur mjög lítið breyst þegar svör frá því í fyrra eru skoðuð. Sömu sögu er að segja um kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þeir eru næst lík­leg­astir til að vera með þá skoðun að ógn stafi af inn­flytj­endum og hlut­fall þeirra sem telja svo vera var nán­ast það sama í fyrra og það var árið 2007. Fyrir tíu árum var reyndar hræðslan við áhrif inn­flytj­enda hjá kjós­endum Frjáls­lynda flokks­ins, en hann er ekki lengur til og því engir kjós­endur hans í dag.

Árið 2007 höfðu kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar og Fram­sókn­ar­flokks­ins svip­aða afstöðu til hvort að inn­flytj­endur væru alvar­leg ógn við þjóð­ar­ein­kenni okkar. Afstaða þeirra sem kjósa Sam­fylk­ing­una gagn­vart inn­flytj­endum hefur mild­ast umtals­vert síðan þá. Sömu sögu er að segja af kjós­endum Vinstri grænna, þar hefur hræðslan við áhrif inn­flytj­enda dreg­ist mikið saman. Raunar eru kjós­endur Vinstri grænna þeir sem mæl­ast næst minnst hræddir við áhrif inn­flytj­enda. Einungis kjós­endur Bjartrar fram­tíðar sjá þá sem minni ógn. Þriðja minnsta hræðslan er síðan á meðal kjós­enda Pírata, þar á eftir koma áður­nefndir kjós­endur Sam­fylk­ingar og svo kjós­endur Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár