Þarf að hugsa breytingar til enda

Gylfi Magn­ús­son, doktor í hag­fræði, fyrr­ver­andi ráð­herra og dós­ent við Háskóla Íslands, segir að líf­eyr­is­kerfi lands­ins standi um margt á tíma­mótum og þarfn­ist end­ur­skoð­unar.

„Hér verður ekki heldur farið nánar út í útfærslu á hugs­an­legu gegn­um­streym­is­kerfi eða gerð til­raun til nákvæmra útreikn­inga á þjóð­hags­legum afleið­ingum. Það er efni í viða­mikla rann­sókn. Hins vegar blasir við að óhjá­kvæmi­legt er að skoða betur hvert stefnir í þróun líf­eyr­is­kerfis Íslend­inga og e.t.v. gera á því breyt­ingar. Hin mikla hækkun iðgjalda í sjóð­söfn­un­ar­kerf­inu sem samið hefur verið um virð­ist ekki hafa verið hugsuð til enda. Það þarf að gera fyrr eða síðar. Jafn­framt virð­ist brýnt að skoða hvort núver­andi kerfi býr nægi­lega vel að þeim elstu, sem eiga almennt lítil rétt­indi í líf­eyr­is­kerf­inu.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur ítar­legri grein Gylfa Magn­ús­sonar, dokt­ors í hag­fræði, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra og dós­ents við Háskóla Íslands, í Vís­bend­ingu, en í grein­inni fjallar hann um stöðu íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Nýtt tölu­blað Vís­bend­ingar kom til áskrif­enda í dag.

Hann segir að skoða þurfi hvernig líf­eyr­is­rétt­indi ákveð­inna kyn­slóða komi út miðað við núver­andi stefnu. „Það er vita­skuld ansi langt í að fólk fari á eft­ir­laun sem hefur greitt í líf­eyr­is­sjóð skv. SALEK sam­komu­lag­inu alla starfsæv­ina. Þó er fyr­ir­sjá­an­legt að þeir sem fara á eft­ir­laun eftir 10-20 ár eða síðar muni hafa tölu­vert betri líf­eyr­is­rétt­indi en eldri kyn­slóðir. Þeirra líf­eyrir mun því koma í rík­ari mæli frá líf­eyr­is­sjóðum en fram­lag almanna­trygg­inga, sem eru gegn­um­streym­is­kerfi, skipta sífellt minna máli. Að því hefur raunar bein­línis verið stefnt. Hagur rík­is­sjóðs mun batna vegna þessa, útgjöld almanna­trygg­inga lækka og ríki og sveit­ar­fé­lög inn­heimta tekju­skatt og útsvar af greiðslum úr líf­eyr­is­sjóðum.

Það tryggir nokkuð vel hag þeirra sem eru mið­aldra og yngri í dag – að því gefnu að öll þessi sjóð­söfnun gangi upp – en eftir sitja aldr­aðir nútím­ans með frekar rýr líf­eyr­is­rétt­indi og afar naumt skammt­aðar greiðslur úr almanna­trygg­ingum.“

Kaupa má áskrift af Vís­bend­ingu hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár