Dúkkulísuvefurinn skilar góðri afkomu

Vefurinn Dress Up Games heldur áfram að ganga vel en hann var stofn­aður á sama ári og Google, árið 1998.

Vefsíðan Dress Up Games, sem er í eigu bóka­safns­fræð­ings­ins Ingu Maríu Guð­munds­dóttur á Ísafirði, hefur gengið vel á síð­ustu árum, en hagn­aður félags­ins sem heldur utan um vef­inn, Dress Up Games ehf., nam 5,3 millj­ónum króna í fyrra sam­kvæmt árs­reikn­ingi.

Hagn­að­ur­inn hefur dreg­ist nokkuð saman, frá því sem áður, var en efna­hagur félags­ins er traustur. Arð­greiðslur hafa numið 350 millj­ón­umá und­an­förnum sjö árum, og hefur árlegur hagn­aður á bestu rekstr­ar­árum farið yfir 100 millj­ónir króna.

Sögu Dress Up Games má rekja til árs­ins 1998 þegar vef­ur­inn var stofn­aður, en á því ári var Google einnig stofnað, en upp­spretta tekna fyr­ir­tæk­is­ins er í gegnum aug­lýs­inga­kerfi Google. Árið 2006 hófst fram­leiðsla á leikjum fyrir vef­inn.

Á vef­síð­unni er tenglum á tölvu­leiki þar sem dúkkulísur eru klæddar í föt safnað saman. Mark­hóp­ur­inn eru stúlkur í ensku­mæl­andi löndum, ekki síst Banda­ríkj­unum, Bret­landi og Ástralíu. Dress Up Games er síðan með aug­lýs­inga­samn­ing við Google sem tryggir því tekjur. Samn­ing­ur­inn virkar þannig að Google AdWords selur aug­lýs­ingar inn á síð­una og Dress Up Games ehf. fær síðan greitt fyrir hvert skipti sem ein­hver skoðar þá aug­lýs­ingu.

Vefsíðan fær millj­ónir inn­lita, og er með tug­millj­ónir flett­inga, í hverjum mán­uði og því hafa tekj­urnar verið miklar.

Hug­myndin að vef­síð­unni er alfarið Ingu Maríu, og hefur hún byggt upp starf­sem­ina í kringum vef­inn frá grunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár