Ekki upplýst um hverjir fengu að nýta sér fjárfestingarleiðina

Hvorki fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið né Seðla­banki Íslands telja sér heim­ilt að upp­lýsa um hvaða ein­stak­lingar og lög­að­ilar nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Kjarninn hefur kært málið til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Íslendingar áttu, og eiga, mikið magn eigna í þekktum skattaskjólum. Grunur leikur á um að hluti þeirra eigna hafi ratað aftur inn í íslenskt hagkerfi í gegnum fjárfestingarleiðina.
Íslend­ingar áttu, og eiga, mikið magn eigna í þekktum skatta­skjólum. Grunur leikur á um að hluti þeirra eigna hafi ratað aftur inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur synjað Kjarn­anum um aðgang að upp­lýs­ingum um hvaða ein­stak­lingar og lög­að­ilar nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands á þeim tíma sem hún stóð til boða.

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ing­unum þann 28. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og gerði það á grund­velli upp­lýs­inga­laga, þar sem það var mat rit­stjórnar hans að umbeðnar upp­lýs­ingar féllu ekki undir ákvæði lag­anna um þær upp­lýs­ingar sem væru und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti. Kjarninn taldi rétt að beina fyr­ir­spurn­inni til ráðu­neyt­is­ins í ljósi þess að það fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði þegar svarað fyr­ir­spurn frá þing­manni um fjár­fest­ing­ar­leið­ina með ítar­legum hætti. Í fyr­ir­spurn­inni var enn fremur tekið fram að það mætti færa rök fyrir því að fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands brjóti í bága við jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár íslenska lýð­veld­is­ins í ljósi þess að um er að ræða stjórn­valds­að­gerð sem stóð ein­ungis fólki sem átti fyrst 50 þús­und evrur í lausu fé, og síðar 25 þús­und evrur í lausu fé, til boða. Hún stóð einnig ein­ungis þeim Íslend­ingum sem áttu fé erlendis til boða. Og þessum aðilum stóð til boða að fá umtals­verða virð­is­aukn­ingu á fé sitt í krafti þess að eiga fé erlendis.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið telur sig ekki geta orðið við beiðni Kjarnans um umræddar upp­lýs­ingar. Í svari þess, sem barst 4. októ­ber, segir að ráðu­neytið búi ekki yfir umbeðnum upp­lýs­ingum. Þær séu hjá Seðla­bank­anum sem sé sjálf­stæð stofnun. Ráðu­neytið geti ekki „óskað eftir upp­lýs­ingum af þessum toga á grund­velli almennra eft­ir­lits­heim­ilda, sbr. 2. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um Stjórn­ar­ráð Íslands nr. 115/2011, nema þá helst til að bregð­ast við grun um kerf­is­læga ann­marka í stjórn­sýslu­fram­kvæmd. Eins og staðan er nú hefur ekk­ert komið fram sem bendir til þess að fram­kvæmd Seðla­bank­ans hafi verið slíkum ann­mörkum háð. Þannig hafa skatt­yf­ir­völd ekki upp­lýst um ann­marka á fram­kvæmd­inni, en máls­með­ferð er þó ekki að fullu lokið af þeirra hálfu. Þá hafa upp­lýs­ingar sem komið hafa fram, m.a. í tengslum við svör ráð­herra á Alþingi sem vísað er til í fyr­ir­spurn Kjarnans, ekki heldur gefið til­efni til að ætla að kerf­is­lægir ann­markar hafi verið á fram­kvæmd­inni.“

Kjarninn hafði áður kallað eftir upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands þann 9. jan­úar 2017 um það hvaða til­teknu ein­stak­lingar og lög­að­ilar tóku þátt í umræddum útboðum. Seðla­bank­inn sagði í svari sínu að hann gæti ekki „tjáð sig um þátt­töku til­tek­inna ein­stak­linga og lög­að­ila í útboðum bank­ans með vísan til þagn­ar­skyldu­á­kvæðis 35. gr. laga um Seðla­banka Íslands. Seðla­bank­inn getur því ekki veitt umbeðnar upp­lýs­ingar um nöfn þeirra sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans, upp­runa fjár þeirra og umfang við­skipta hvers og eins.“

Kjarninn hefur kært synjun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­banka Íslands um aðgang að umbeðnum upp­lýs­ingum til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem hefur stað­fest að kæran gegn ráðu­neyt­inu verði tekin fyrir. Of langt er hins vegar um liðið frá því að synjun Seðla­bank­ans um aðgengi að umbeðnum upp­lýs­ingum barst til að hægt sé að taka synjun hans til með­ferðar. Fyr­ir­spurn Kjarnans til bank­ans hefur því verið end­ur­nýjuð.

Fengu virðisaukningu á fé

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­ingar­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Allt í allt komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar. 794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar.

Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­úar, er fjallað um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og því meðal ann­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­magn­inu frá aflands­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Sú skýrsla er gerð fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­lýs­inga um fjár­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­taka í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans er ekki til stað­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­bank­ans þegar um grun­sam­legar fjár­magnstil­færslur er að ræða. Æski­legt má telja að sam­starf væri um miðlun upp­lýs­inga á milli þess­ara stofn­ana.“

Bankar látnir rannsaka viðskiptavini sína

Ekki virð­ist hafa átt sér stað nein upp­runa­vottun af hendi opin­berra aðila á því fé sem fært var til lands­ins í gegnum leið­ina. Allir við­skipta­bank­arnir fjórir litu svo á að það hefði verið í þeirra verka­hring að stað­festa áreið­an­leika við­skipta­manna sinna sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Þeir segj­ast allir hafa kannað þá fjár­festa úr við­skipta­manna­hópi sínum sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina með til­liti til laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þrír bank­anna, Íslands­banki, Arion banki og Lands­bank­inn, hafa hins vegar ekki viljað svara því hvort þau hafi sent ein­hverjar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu(Financial Intelligence Unit) vegna gruns um að ein­hverjir úr við­skipta­manna­hópi þeirra hafi þvættað pen­inga með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Einn banki, Kvika banki, seg­ist hins vegar ekki hafa sent neinar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu vegna þessa.

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan heyrir undir það, segir að eftir því sem næst verður kom­ist þá hafi ekki borist neinar til­kynn­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum vegna fjár­festa sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár