Sjálfstæði Katalóníu – Eða borgarstyrjöld sem þarf að gera upp

Kata­lónía er í sjálf­stæð­is­bar­áttu. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur veitir inn­sýn í þessa flóknu og djúpu deilu, þar sem blóði drifin saga valda­bar­áttu er ekki langt undan.

Vinur minn lést úr lungna­krabba­meini í Barcelona aðeins fjöru­tíu og sex ára. Hann hét Pétur Leifur en bjó megnið af sínu alltof stutta lífi þar í borg. Ég var svo lánsöm að kynn­ast borg­inni í gegnum hann þegar ég bjó þar í tvö ár, frá 2006 til 2008.

Pétur hafði þá búið á þriðja ára­tug í borg­inni, hann flutti þangað korn­ungur ásamt íslenskri kær­ustu og þau íleng­t­ust en gift­ust bæði Spán­verjum. Hann gjör­þekkti borg­ina, alla leyndu lókal­stað­ina, en sakn­aði hennar eins og hún hafði verið fyrir ólymp­íu­leik­ana, áður en vin­sældir hennar urðu svona ofboðs­legar.

Pétur var áber­andi víð­les­inn, sæl­keri og fag­ur­keri fram í langa, mjóa fing­ur­góma; þáver­andi sam­býl­is­kona hans var ein þokka­fyllsta kona sem ég hef hitt, söng­kona í kab­ar­ettum sem vann líka við garð­yrkju, létt­stíg eins og hind en borð­aði kalt nauta­kjöt í morg­un­mat og drakk cafe solo með því. Þau voru bæði svo létt­stíg að það var draumkennt að horfa á eftir þeim svífa eftir þröngum strætum borg­ar­innar sem þau þekktu svo vel. Pétur átti til að segja að Barcelona væri púð­ur­tunna, einn dag­inn myndu Katal­anir krefj­ast sjálf­stæðis og þá yrðu átök. En Pétur sagði svo margt, hann spáði því líka að bráðum myndi efna­hags­lífið hrynja á Íslandi.

Allt í einu var hann dáinn. Og nokkrum dögum eftir jarð­ar­för­ina byrj­aði íslenska krónan að falla og svo kom Hrunið og allt í einu var ég flutt heim og hef ekki komið síðan þá til Barcelona.

Allt að springa

Hvað ætli Pétur hefði sagt núna? hugs­aði ég yfir nýj­ustu frétt­unum af ástand­inu í Barcelona og datt um leið í hug að hafa sam­band við sam­eig­in­lega vin­konu okkar, Hólm­fríði Matth­í­as­dóttur: stúlk­una sem flutti fyrir meira en þrjá­tíu árum með Pétri til Barcelona og hefur búið þar allar götur síðan, þangað til hún tók nýverið við stjórn For­lags­ins sem útgef­andi.

Pétur sagði að þetta ætti allt eftir að springa, sagði ég við hana í sím­ann og hún svar­aði að bragði: „Sem það er á leið­inni að gera.“

Hólm­fríður var þá stödd á flug­velli í útlöndum að bíða eftir kvöld­flugi en til í morg­un­sopa. Daginn eftir drakk ég kaffi með henni og bústna kett­inum hans Jóhanns Páls og fékk að heyra allt saman.

Andúð á Katalönum

„Við héldum aldrei að þetta myndi ger­ast,“ sagði hún strax. „Þjóð­ern­is­sinnar hafa alltaf talað um sjálf­stæði Kata­lóníu en manni fannst það aldrei vera raun­hæfur mögu­leiki því þeir voru í svo miklum minni­hluta. Það var erfitt að sjá fyrir þessa þróun síð­ustu árin. Þetta er svo flókin flétta sem fór af stað. Í kringum 2000 hafði Lýð­flokk­ur­inn verið við stjórn en með nauman meiri­hluta og þurfti stuðn­ing CIU (Convergència i Unió), hægri þjóð­ern­is­flokks sem var leiddur af Jordi Pujol.

Í kosn­ing­unum 2000 náði Lýð­flokk­ur­inn svo þægi­legum meiri­hluta og þurfti ekki lengur á stuðn­ingi CIU að halda svo hann fjar­lægð­ist fyrrum stuðn­ings­flokk­inn, eins og af skömm. Um leið upp­hefst á Spáni hálf­gerð andúð á Kata­lónum. Ég get ekki fest fingur á þetta en ég hef upp­lifað það hjá vin­unum mínum sem búa utan Kata­lóníu. Þessi til­finn­ing: Kata­lónar vilja ekki vera með okkur – gýs upp. Og ég tengi það við tíma­punkt­inn þegar Lýð­flokk­ur­inn reyndi að fjar­lægj­ast CIU.“

Greiðslur til Katalóníu dragast

„Með stuðn­ingnum við Lýð­flokk­inn hafði CIU fengið vil­yrði fyrir auknum rétt­indum í Kata­lóníu – sem varð ekk­ert af,“ útskýrir Hólm­fríður, píreyg af því að þýða spænskan veru­leika yfir í þann íslenska. „Þeir eru óánægðir með það og hafa sóst eftir að fá þau.

Héruðin innan Spánar hafa mis­mikil rétt­indi. Kata­lónía er á pari við Madrid og Andalúsíu hvað rétt­indi varðar. En Baska­hér­uðin og Navarra hafa meiri rétt­indi en önnur af sögu­legum ástæðum, þ.e. stjórn yfir eigin fjár­málum og skatta­málum.

Skatt­inn­heimtan fer þannig fram að skatt­ur­inn, sem er inn­heimtur, skipt­ist á milli hér­aðs­ins og lands­ins. Ríkið inn­heimtir skatt­inn og útdeilir svo fé til Kata­lóníu á meðan þessu er öfugt farið í Baska­hér­uð­unum. Þetta er nátt­úr­lega stjórn­un­ar­tæki. Kata­lónar hafa m.a. barist fyrir því að fá að inn­heimta skatt­inn sjálfir því þegar að spænska stjórnin inn­heimtir hann og borgar til þeirra drag­ast greiðsl­urnar og þá geta þeir ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar innan kata­lónska stjórn­kerf­is­ins, eins og t.d. greiðslur til starfs­manna eða nið­ur­greiðslu á lyfjum í apó­tekum.“

Ný stjórnarskrá felld

„Baráttan fyrir þessum auknu rétt­indum, sem hófst árið 2000, krist­all­að­ist árið 2006 í því að ný stjórn­ar­skrá, L‘Estatut, fór í gegnum katal­anska þingið þar sem hún var rædd og sam­þykkt.

Þaðan fór hún til Madridar. Sós­í­alistar voru þá við völd, hún var rædd á þing­inu og skorin niður en á end­anum sam­þykkt. Þessi stjórn­ar­skrá er mjög umdeild því fram í henni kom að Kata­lónar væru þjóð. Það fór fyrir brjóstið á hægri mönnum (Lýð­flokknum) og þeir stóðu fyrir und­ir­skrifta­söfnun, kærðu L‘Estatut og fóru með stjórn­ar­skrána fyrir stjórn­ar­dóm­stól­inn. Sem felldi úr gildi marga meg­in­þætti hennar og end­ur­samdi aðra.

Kata­lónum fund­ust þeir hafa verið lít­il­lækk­aðir. Skjalið hafði farið í gegnum þingið þeirra og síðan spænska þingið og eftir að hafa verið sam­þykkt á báðum þingum fór það í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í Kata­lóníu þar sem það var líka sam­þykkt, þannig að úrskurður stjórn­laga­dóm­stóls Spánar var mikið reiða­slag. Í kjöl­farið kemst rót­tæk­ari þjóð­ern­is­flokkur til valda í Kata­lóníu og síðan þá hefur verið upp­gangur í þjóð­ern­is­hyggju í Kata­lóníu. Vinstri þjóð­ern­is­flokk­ur­inn, ERC (Esquerra Republicana de Catalunya), hefur til dæmis átt vax­andi fylgi að fagna.“

Bannað að tala katalónsku

„Kata­lón­íu­mönnum finn­ast þeir vera sér­þjóð. Þeir hafa eigin tungu, eigin menn­ingu, eigin sögu. Meðan Franco var við völd var bannað að tala kata­lónsku opin­ber­lega, fólk tal­aði hana heima hjá sér. Í fjöru­tíu ár var hún ekki kennd í skólum. Eldra fólk í Kata­lóníu kann ekki að skrifa rétt, það lærði aldrei rétt­ritun á móð­ur­máli sínu. Og enn þann dag í dag get­urðu lent í vand­ræðum ef þú talar kata­lónsku við þjóð­varð­liða í Kata­lóníu. Und­ir­aldan er vissu­lega þung.

Í kringum 2010 kom upp mikið spill­ing­ar­mál í flokknum CIU og nýr for­maður, Artur Mas, not­aði sér þessa vax­andi þjóð­ern­is­bylgju í póli­tískum til­gangi til að yfir­gnæfa umtal um spill­ing­una. Hann þrýsti á spænska ríkið til að auka hróður sinn sem stjórn­mála­manns í Kata­lóníu og það fór úr bönd­unum. Hann fékk miklu meiri und­ir­tektir en hann átti von á og skriðan fór af stað.

Spán­ar­stjórn hefur ekki sýnt neinn vilja, nokkur tím­ann, til að setj­ast niður, ræða málin og semja. Þó svo maður sé ekki hlynntur þess­ari þjóð­ern­is­stefnu, þá verður að segj­ast eins og er, að þeir hafa marg­sinnis reynt að fá Spán­ar­stjórn í við­ræður en Mariano Rajoy, for­maður Lýð­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, hefur alltaf neitað.“

Gamli Franco-Hundar í Lýðflokknum

„Lýð­flokk­ur­inn hefur aldrei gert upp við Franco-tím­ann. Spánn er land þar sem málin eftir borg­ara­stríð hafa enn ekki verið gerð upp. Ennþá eru fjölda­grafir sem hefur ekki mátt grafa upp svo fólk geti jarðað ætt­ingja sína undir nafni.

Það hefur ekki verið vilji fyrir því að gera upp þessi mál, fyrir vikið hefur verið full­komið skjól fyrir þessa gömlu Franco-ista innan Lýð­flokks­ins, þó að auð­vitað sé alls­konar fólk í þessum flokki. Það sem kemur öllum á óvart er hversu grunnt er á andúð, hatri og illsku. Ég held að það sé út af því að þetta hefur ekki verið gert upp. Gömul óvild kraumar undir niðri.“

Forsætisráðherra blessar ofbeldi

Á tímum Francos flúðu upp­lýstir hægri­menn land, rétt eins og vinstri menn, og eftir stóðu stuðn­ings­menn Francos, eða aft­ur­haldið, og arf­taki þeirra var Lýð­flokk­ur­inn, að sögn Hólm­fríðar.

„Átökin í Kata­lóníu núna snú­ast ekki lengur aðeins um sjálf­stæði Kata­lóníu heldur fyrst og fremst um borg­ara­leg rétt­indi og lýð­ræði. Ég veit um mjög marga sem hafa engan áhuga á að Kata­lónía verði sjálf­stætt land en vilja samt láta kjósa um það. Þeim finnst það þeirra borg­ara­legi réttur.

Margir í Kata­lóníu segja að Rajoy for­sæt­is­ráð­herra sé búinn að sjá um kosn­inga­bar­átt­una fyrir aðskiln­að­ar­sinna því fylgi þeirra hefur vaxið svo eftir við­brögð spænskra yfir­valda. Lög­reglu­menn beittu ofbeldi og for­sæt­is­ráð­herra bless­aði það í sjón­varp­inu.

Það væri ennþá hægt að stöðva þessa fram­vindu ef að báðir aðilar væru reiðu­búnir að semja. Kata­lónska stjórnin hefur lengi gefið til kynna að hún vilji samn­inga en Lýð­flokk­ur­inn þver­tekur fyrir það að semja. Þeir ótt­ast það að hin hér­uðin fylgi í kjöl­farið og krefj­ist meiri íviln­anna.“

Fyrirtækin flýja

„Raddir segja að átökin henti Lýð­flokknum ágæt­lega því á meðan er ekki talað um spill­ing­ar­málin sem hrjá báða aðila, Lýð­flokk­inn og CIU, heldur bara átök Spánar og Kata­lóníu.

Ræða kóngs­ins í vik­unni sem leið var olía á eld­inn. Kata­lónum fannst eins og kóng­ur­inn væri geng­inn í Lýð­flokk­inn svo ólík­leg­asta fólk fór að upp­lifa sig sem þjóð­ern­is­sinna. Kóng­ur­inn á auð­vitað að vera sam­ein­ing­ar­tákn fyrir flókna þjóð með langa og erf­iða sögu.

Nú eru fyr­ir­tæki farin að flytja höf­uð­stöðvar sínar út fyrir Kata­lóníu því hluta­bréf eru farin að lækka og sjálf­stæð væri Kata­lónía ekki innan ESB. Sabadell-bank­inn flutti til dæmis höf­uð­stöðvar sínar til Alicante í vik­unni og hækk­aði á verð­bréfa­mark­aði í kjöl­farið.

Kata­lónía gæti lýst yfir ein­hliða sjálf­stæði á næstu dögum. Harðir þjóð­ern­is­flokkar ýta á að það verði gert núna meðan for­seti Kata­lóníu virð­ist ennþá vona að Spán­ar­stjórn semji.“

Lög gegn mótmælum borgaranna

Hólm­fríður tekur sér mál­hvíld til að strjúka kett­inum áður en hún segir að þau Pétur hafi komið til Barcelona 1982 þegar landið hafi rétt verið að skríða undan ein­ræð­inu en Franco dó 75. „Ég upp­lifði svo mikið ein­stak­lings­frelsi þá en mér finnst þetta frelsi ekki vera jafn mikið í dag.

Ástæðan fyrir því eru meðal ann­ars lög sem tóku gildi á Spáni 2015 þar sem að fólki er bannað að mót­mæla nálægt spænska þing­inu eða opin­berum bygg­ingum, taka myndir af lög­reglu­mönnum við störf – eins og þjóð­varða­lið­unum sem börðu fólk um dag­inn. Það má ekki hindra að fólk sé borið út af heim­il­inu eftir gjald­þrot og eins er bannað að dýra­vernd­un­ar­fé­lög mót­mæli með­ferð á dýrum. Þetta eru kölluð þögg­un­ar­lögin á Spáni, þau bein­ast gegn mót­mælum hins almenna borg­ara.

Vegna hryðju­verka hafa lög­gæslu­menn fengið auknar heim­ildir til þess að rann­saka borg­ar­ana og þannig hefur frið­helgi einka­lífs­ins þurt að lúta í lægra haldi. Það er ekki verið að rann­saka mig en ég finn að það hefur dregið úr borg­ara­legum rétt­indum, þó að það hái mér ekki í dag­legu lífi,“ segir Hólm­fríður og byrjar að ókyrr­ast. Vinnan bíður jú, það liggur á að búa til bækur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár