Umdeild þjóðaratkvæðagreiðsla í Katalóníu

Til stendur að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Kata­lóníu fari fram 1. októ­ber í óþökk spænskra stjórn­valda. Atkvæða­greiðslan brýtur í bága við stjórn­ar­skrá og hefur rík­is­stjórn Spánar lýst yfir að hún muni koma í veg fyrir hana.

Með því að fram­kvæma þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Kata­lóníu eru stjórn­ar­flokk­arnir tveir í hér­aðs­stjórn­inni, Junts pel Sí (JxSí) og Candidatura d'Unitat Popular (CUP), að efna kosn­inga­lof­orð sitt frá árinu 2015. Carles Puig­demont, hér­aðs­for­seti Kata­lóniu úr JxSí, hefur verið í víga­hug síð­ustu vikur og sér­stak­lega í kjöl­far þjóð­há­tíð­ar­dags Kata­lóníu sem hald­inn er 11. sept­em­ber á ári hverju en hund­ruðir þús­unda gengu úti á götum Bar­selóna, höf­uð­borgar Kata­lóníu, til að setja pressu á rík­is­stjórn spánar í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar.

[links]Í byrjun sept­em­ber úrskurð­aði stjórn­ar­skrár­dóm­stóll Spánar að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan væri ólög­leg dag­inn eftir að hér­aðs­þing Kata­lóníu sam­þykkti lög­gjöf sem heim­il­aði hana. Stjórn­ar­skrá lands­ins leyfir ekki atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði af þessu tagi og hefur for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Mariano Rajoy úr hægri­flokknum Partido Popular (PP), til­kynnt að rík­is­stjórnin muni reyna að koma í veg fyrir atkvæða­greiðsl­una. Spænska rík­is­stjórnin hefur tekið yfir fjár­stjórn Kata­lóníu, skipað þús­undum lög­reglu­manna bæði frá Kata­lóníu og öðrum hér­uðum lands­ins að koma í veg fyrir atkvæða­greiðsl­una með eft­ir­liti og með því að eyða kosn­inga­gögnum og loka vef­síðum sem upp­lýsa kjós­endur um atkvæða­greiðsl­una, og gert hús­leit í húsa­kynnum hér­aðs­stjórnar Kata­lóníu og hand­tekið fjórtán starfs­menn hennar. Þá hefur rík­is­sak­sókn­ari hafið mála­ferli gegn Puig­demont fyrir mis­notkun á opin­berum fjár­munum.

Hvers vegna er kosið?

Samkvæmt skoð­ana­könn­unum er meiri­hluti Katalóna hlynntur því að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una þó meiri­hluti þeirra styðji ekki endi­lega sjálf­stæði hér­aðs­ins, og hefur fylgi sjálf­stæð­is­sinna dvínað heldur á und­an­förnum miss­erum.

Kata­lónía er eitt rík­asta hérað Spánar og hefur það, ásamt Baska­landi, sterk­ari sjálf­stjórn en nokkuð annað hérað á Spáni og jafn­vel þótt víðar væri leitað. Héraðið hefur yfir­um­sjón með mennta-, heil­brig­iðs- og vel­ferð­ar­málum ásamt því að það hefur eigin lög­reglu, eigið þing, hér­aðs­stjórn og dóm­stóla. Hér­aðs­stjórn Kata­lóníu hefur áskilið sér rétt til að krefj­ast sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttar og sjálf­stæðis en alþjóða­lög við­ur­kenna ein­ungis þann rétt fyrir svæði sem lúta stjórn nýlendu­valds, hafa orðið fyrir inn­rás eða orðið fyrir alvar­legum brotum á mann­rétt­indum vegna aðgerða stjórn­valda en það krefst mik­ils ímynd­un­arafls til að halda því fram Kata­lónía upp­fylli ein­hverja af þeim kröfum.

Hins vegar eru margir Kata­lónar ósáttir með það hvernig rík­is­stjórnin í Madríd kemur fram við hér­aðið. Stjórn­ar­skrár­dóm­stóll Spánar dróg í 2010 til baka ákvöruðun um að skil­greina Kata­lóníu sem þjóð frekar en hérað og veita kata­lónska tungu­mál­inu for­gangs­stöðu og fór það illa í Katalóna. Þá jókst óánægja við Madríd í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar á Spáni árið 2009 vegna þess að bilið milli þess sem Kata­lónar greiða í skatta og þess sem fjár­fest er í hér­að­inu af rík­inu nemur um 8-10 millj­arða evra á ári. Til­finn­ingin að rík­is­stjórnin í Madríd steli frá Kata­lónum er sterk og algeng en með­al­tekjur á íbúa eru umtals­vert hærri í Kata­lóníu en í land­inu sem heild, eða um 19% þó að þessi munur hefur minnkað úr um 50% í byrjun sjö­unda ára­tug­ar­ins. Réttindi Katalóna til sjálfs­stjórnar voru mjög tak­mörkuð í stjórn­ar­tíð ein­ræð­is­herr­ans Francisco Franco 1936-1975. Þegar lýð­ræði komst á í land­inu eftir dauða Franco end­ur­heimti Kata­lónía mörg af sér­rétt­indum sínum og var hér­að­inu veitt umtals­verð sjálfs­stjórn.

Vafasamur hljómgrunnur

Árið 2014 var haldin óbind­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Kata­lóníu þar sem 80% kjós­enda kusu sjálf­stæði. Sjálf­stæð­is­sinnar benda á þá atkvæða­greiðslu sem rétt­læt­ingu til að halda atkvæða­greiðsl­una um helg­ina sem, sam­kvæmt hér­aðs­stjórn­inni, er bind­andi. Hins vegar verður að taka fram að aðeins um 37% kjós­enda tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unni árið 2014 og ákv­aðu and­stæð­ingar sjálf­stæð­is­sinn­ana upp til hópa að sitja hjá. Það er ekki ólík­legt að svipað verði uppi á ten­ingnum að þessu sinni en sam­kvæmt reglum hér­aðs­stjórn­ar­innar þarf ein­ungis ein­faldan meiri­hluta óháð kosn­inga­þátt­töku til þess að ráð­ist verði í að lýsa ein­hliða yfir sjálf­stæði.

Það verður óljóst fram á síð­ustu stundu hvernig og hvort atkvæða­greiðslan muni fara fram en lík­legt þykir að sjálf­stæð­is­sinnar „sigri“ í atkvæða­greiðsl­unni eftir því sem margir and­stæð­ingar segj­ast ætla að sitja hjá. Þó er nokkurn veg­inn óhætt að segja að nið­ur­staða atkvæða­gr­eðls­unnar muni ekki leiða til sjálf­stæðis Kata­lóníu, að minnsta kosti ekki um sinn. Atkvæða­greiðslan hefur ekk­ert laga­legt gildi og brýtur á ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar auk þess sem það er mjög vafa­samt að krefj­ast ein­ungis ein­falds meiri­hluta óháð kosn­inga­þátt­töku um mál­efni af þessu tagi.

Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar mun hins vegar að öllum lík­indum valda meiri höf­uð­verki en áður fyrir spænsku rík­is­stjórn­ina og gæti haft afdrifa­rík áhrif á stöðu minni­hluta­stjórnar Rajoy og hina veiku meiri­hluta­stjórn Puig­demont í Kata­lóníu. Hvað varðar sjálf­stæði Kata­lóníu til lengri tíma litið er erf­ið­ara að segja til um hvaða áhrif atkvæða­greiðslan mun hafa en hún vekur að minnsta kosti athygli stjórn­valda á óánægju Katalóna á stjórn­ar­skrá lands­ins og gæti opnað fyrir umræðu um breyt­ingar á henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár