Harpa tapaði 669 milljónum í fyrra

Þrátt fyrir mikið tap af rekstri, er rekstr­ar­grund­völlur Hörpu nú tal­inn betri en hann var.

Harpa tap­aði 669 millj­ónum króna í fyrra og versn­aði afkoman um 129 millj­ónir milli ára. Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu er það mat stjórnar og stjórn­enda, að rekstr­ar­grund­völl­ur­inn til fram­tíðar hafi batnað mikið.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Hörpu. ,,Eins og fram kemur í árs­upp­gjöri árs­ins 2016 var tap­rekstur sam­stæð­unnar um 670 mkr. Þetta eru gríð­ar­leg von­brigði og skrif­ast á nokkra þætti í móð­ur­fé­lag­inu, m.a. háan útleigu­kostnað, háan rekstr­ar­kostnað fast­eign­ar­innar og alltof há fast­eigna­gjöld,“ segir Guðfinna Bjarna­dóttir, frá­far­andi for­maður stjórnar.

Í árs­reikn­ingi kemur fram að tekjur af starf­sem­inni hafi auk­ist um 215 millj­ónir króna milli ára eða um 21 pró­sent. Tekjur vegna útleigu fyrir tón­list­ar­við­burði og aðrar skemmt­anir, svo sem árs­há­tíðir og fundi, eru þar vega­miklar, en þær hækk­uðu um 180 millj­ónir króna milli ára og voru 778 millj­ónir. „Þar vógu tekjur af ráð­stefnum þyngst eða 25%, þá af list­við­burðum eða 19% og vegna fastra leigj­enda þ.e. Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands og Íslensku óper­unnar 14%. Með sér­stöku fram­lagi eig­enda til rekstrar sem námu 13% af tekjum voru heild­ar­tekjur sam­stæð­unnar alls 1.472 millj­ónir. Rekstr­ar­gjöldin uxu hins vegar enn meira eða um 319 millj­ónir. Af því hækk­aði hús­næð­is­kostn­aður um 88 millj­ónir Launa­kostn­aður hækk­aði um 50 millj­ónir eða um 11% á milli ára og er það á pari við með­al­talið í þróun launa­vísi­tölu á þessu tíma­bili. Hjá sam­stæð­unni voru 117 á launa­skrá í 52 stöðu­gildum og fjölg­aði stöðu­gildum um 3 á milli ára,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Eign­irnar eru metnar á rúm­lega 20 millj­arða, en sér­stak­lega er vikið að því í til­kynn­ingu að Harpan skili miklum verð­mætum inn í þjóð­ar­búið í formi blóm­legrar menn­ing­ar­starf­semi og starf­semi sem skapi gjald­eyr­is­tekjur fyrir þjóð­ar­búið.

Eitt af því sem hefur verið mikið deilu­mál, er hvernig skuli meta fast­eigna­gjöld Hörpu­nnar. Í til­kynn­ingu frá Höpunni segir að nú sé þess beðið að Þjóðskrá end­ur­meti fast­eigna­mat vegna árs­ins 2016. „Hæsti­réttur dæmdi í fast­eigna­gjalda­máli Hörpu þann 25. febr­úar 2016 og talið var að dóm­ur­inn myndi leiða til umtals­verðrar lækk­unar fast­eigna­gjalda, jafn­vel í kring um 50%. Í með­förum Þjóð­skrár, sem skil­aði nið­ur­stöðum sínum átta mán­uðum síðar, var útfærslan önnur en dómur Hæsta­réttar sagði til um. Nið­ur­stöðu Þjóð­skrár var and­mælt af hálfu Hörpu og kom svo svar aftur frá Þjóðskrá í lok árs um að nið­ur­staðan myndi standa. Stjórn Hörpu áfrýj­aði nið­ur­stöðu Þjóð­skrár til yfir­fast­eigna­mats­nefndar í jan­úar 2017 3 sem skil­aði sínum úrskurði 31. ágúst sl. um einu og hálfu ári eftir að dóm­ur­inn féll í Hæsta­rétti. Yfir­fast­eigna­mats­nefnd hafnar því að nota megi sér­tækan svæð­is­stuðul fyrir Hörpu­svæðið. Þetta gæti þó breyst til fram­tíðar þegar svæðið bygg­ist upp. Ekki er fall­ist á rök Hörpu um ofmat á tón­leika- og ráð­stefnu­söl­unum – sem eru metnir fjór­falt verð­mæt­ari en versl­unar- og skrif­stofu­hús­næði né heldur um virði bíla­stæða sem Harpa taldi veru­lega ofmetin af Þjóðskrá. Með úrskurði sínum felldi yfir­fast­eigna­mats­nefnd fast­eigna­matið frá 2016 úr gildi og Þjóðskrá falið að vinna nýtt mat. Málið er því aftur komið í hendur Þjóð­skrár og óvíst er með fram­vindu þess og þar með end­an­lega nið­ur­stöðu og áhrif á rekstur Hörpu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Nokkrar breyt­ingar urðu á stjórn Hörpu þar sem Guðfinna S. Bjarna­dóttir, Ásta Möller og Kjartan Örn Ólafsson hafa látið af störfum. Ný stjórn var kjörin á fund­inum en í henni sitja Arna Schram, Árni Geir Pálsson, Birna Hafstein, Vil­hjálmur Egilsson og Þórður Sverr­is­son sem tekur við sem for­maður stjórnar. 

Ríkið á 54 pró­sent hlut í Hörpunni, á móti 46 pró­sent hlut Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár