Listabræðsla á heimsenda

Eitthvað er að ger­ast á Hjalt­eyri, eitt­hvað sem er þess virði að sjá ... áður en það verður að ein­hverju öðru. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur skrifar um Verk­smiðj­una.

Dyr að alþjóðlegri listamekku.
Dyr að alþjóð­legri lista­mekku. Mynd: Auður Jónsdóttir

Öldurnar sleikja varn­ar­garð­inn við gömlu síld­ar­verk­smiðju Thorsar­anna á Hjalt­eyri, ung­leg amma lætur sig fljóta í köldum sjónum eins og hún sé við Spán­ar­strendur og barna­börnin sleikja frost­p­inna í heitum potti skorð­uðum í fjöru­grjótið. Nokkrir ferða­menn í flot­bún­ingum kjaga eins og mör­gæsir í átt­ina að tré­báti til að fara í hvala­skoðun en skammt frá val­hoppar mynd­list­ar­mað­ur­inn Snorri Ásmunds­son í gleði sinni yfir að hafa séð hval, gljá­andi feitan og stóran, stinga sér upp úr öld­unum, nán­ast við fjöru­borðið.

Glæfrafyrirtæki Thorsaranna

Stað­ur­inn gæti verið verk á sýn­ing­unni Hverfing (e. Shapes­hift­ing).

Tilvera hans minnir á að miklar umbreyt­ingar geta átt sér stað án þess við veitum þeim athygli; ásýnd hlut­anna flöktir í takt við breytt hlut­verk þeirra svo eld­gam­all síld­ar­fnyk­ur­inn sest í verk lista­fólks sem er flest frá Íslandi og Banda­ríkj­unum en sýn­ing­ar­stjór­inn starfar einnig á Metropolitan-safn­inu: Pari Stave, list­fræð­ingur í New York.

Stór­borg­ar­bragur Thorsar­anna er enn á sínum stað en í breyttri mynd, nýju sam­hengi, og þeir löngu farnir. Thors­ar­arnir svoköll­uðu (með Ríkharð Thors í far­ar­broddi, skilst mér) létu reisa verk­smiðj­una árið 1937 á met­tíma í níst­ings­kulda við erf­iðar aðstæður þegar félag þeirra Kveld­úlfur átti í nokkrum kröggum. Sagt er að glæfra­fyr­ir­tækið hafi bjargað Kveld­úlfi – þó að það séu kannski ekki allir sam­mála því. Hvað sem því líður stendur Verk­smiðjan ennþá yst á eyr­inni, veðruð eins og kast­ali aft­ur­geng­ins fiski­kon­ungs, og bjargar ýmsu á ýmsan hátt en fyrst og fremst lista­líf­inu í nær­liggj­andi sveitum og þótt víðar væri leitað.

Listabræðsla

Verk­smiðju­stjór­inn – eins og liggur bein­ast við að kalla Gústav Geir Bollason – hefur byggt upp núver­andi starf­semi í Verk­smiðj­unni, mynd­list­ar­rými sem er bæði hugsað fyrir sýn­ing­ar­hald og verk­efni. Síðustu árin hafa leitað þangað erlendir jafnt sem inn­lendir lista­menn og með því móti hefur lýs­is­bræðsla umbreyst í lista­bræðslu.

Gústav býður mér upp á soðið kaffi í myrku geymslu­her­bergi sem liggur þvert í gegnum miðja verk­smiðj­una en vippar sér reglu­lega fram til að svara spurn­ingum gesta. Hann svarar ýmist á frönsku, ensku eða íslensku og gest­irnir kunna vel að meta safa­rík svörin.

Einhver spyr út í verk eftir hann sjálfan sem stikar létt­fættur í átt­ina að því. Verkið leiðir hug­ann að hringrás tím­ans. Jeppa­dekk sem hefur farið yfir land og jökla og látið á sjá, bæði lúið og veðrað, en inni í því eru stórar gler­flöskur með sandi úr íslenskri eyði­mörk. Dekkið er inni í grind sem afmarkar tím­ann eins og nokk­urs konar ummál hans.

Sonur minn fer sam­stundis að rúlla dekk­inu, upp­num­inn af því að geta stjórnað hraða tím­ans. Gústav fylgist með og segir: Mér fannst fal­lega þver­sagna­kennt að setja dekk, sem er í sjálfu sér mek­anískur tími, saman við stunda­glas sem má tengja við jarð­sögu­leg lög­mál. Það er eitt­hvað mann­eskju­legt við stunda­glasið, þegar sand­ur­inn rennur úr einu glasi í annað stækkar gatið milli glerj­anna og sand­ur­inn rennur hraðar og hraðar og hraðar ... kannski eins og fólk upp­lifir síð­ara ævi­skeið sitt.

Umbreytingar í loftslagi og valdaþróun

Skammt frá hangir kola­teikn­ing eftir Gústav á veðruðum verk­smiðju­veggnum: búra­leg mann­vera með boga í rúst­unum af ein­hverju sem gæti hafa verið skúr og hún virð­ist spenna boga. Hann kallar þessar myndir skáld­skap og segir þær til­heyra hlið­ar­heimi. Í þeim býr til­finn­ing fyrir hræjum, ham­förum, jafn­vel upp­hafi og enda­lokum sið­menn­ingar. Þær vekja upp óþægi­legar hug­renn­ingar um hugs­an­legar breyt­ingar í umhverf­inu.

En yfir­skrift sýn­ing­ar­innar er jú hug­takið Hverfing og í texta eftir banda­ríska sýn­ing­ar­stjór­ann, sem Hall­grímur Helgason rit­höf­undur þýddi, segir: Á íslensku þýðir orðið hverf­ing allt í senn: flóknar til­færslur í umhverfi sem og stökk­breyt­ing, snún­ingur, umsnún­ingur og brott­hvarf. Í enska orð­inu „shapes­hift­ing“ er falin hug­myndin um mynd­breyt­ingu eða ham­skipti, hvort tveggja hug­tök með goð­sögu­legar og ljóð­rænar rætur sem liggja í gegnum mörg menn­ing­ar­skeið allt aftur til forn­aldar. Verkin á sýn­ing­unni ávarpa öll þessi minni og setja þær í sam­hengi við ástand mála, þær hnatt­rænu umbreyt­ingar í lofts­lagi og valda­þróun sem nú eiga sér stað.

Ísbjörn á leiðinni að éta okkur öll

Umbreyt­ing­arnar lúra allt um kring, líka í hús­inu þar sem ég stend og horfi út um gler­lausan glugga við hlið kola­mynd­ar­innar af mann­ver­unni með bog­ann og velti fyrir mér hvort sýn­ing­ar­gestir séu óhultir þarna inni ef ísbjörn skyldi reka á land í leit að fæði. Er þetta hvíta sem bær­ist alda eða ísbjörn? Ég reyni að sjá hval en sjór­inn er úfinn og sólin skín í augun. Birtan skiptir litum á fjalls­hlíð­unum og landið andar í takt við ólg­andi hug­mynda­heima þarna inni. Verkin eru ólík, þrátt fyrir sam­eig­in­legan snerti­flöt, og þarna ægir saman skúlp­t­úrum, víd­eóinn­setn­ingum, papp­írs­verkum og útskurði en öll hreyfa þau óþægi­lega vel við manni.

Tilraun til að lýsa nokkrum verkum

Ég er ekki list­fræð­ingur og það er illa gert að fjalla um þessa sýn­ingu án þess að fjalla um öll verkin en af því að þetta eru hvort sem er ábyrgð­ar­laus skrif full­trúa hins almenna fávísa sýn­ing­ar­gests má reyna að gefa mynd af nokkrum þeirra.

Eitt verka Rúríar ber vott um vís­inda­lega nálgun, korta­myndir af strand­lengjum eins og þær gætu litið út við hækkun yfir­borðs sjávar þegar hluti lands­ins er horf­inn. Annað verk hennar fikrar sig áfram eftir gólf­inu, búið til úr gler­í­látum, og táknar fólk á flótta frá heima­landi sínu í leit að skjóli. Eitthvað í tæru lát­leysi þess fær mann til að finna til sorgar.

Þannig tala sum verkin bein­skeytt við mann meðan önnur hræra upp í skynj­un­inni á óræð­ari hátt. Mér verður star­sýnt á verk eftir hina kanadísku Jessicu Stockholder. Þetta eru fjölda­fram­leiddir hlutir, á borð við upp­þvotta­vél, elda­vél og lampa, sem hafa glatað upp­runa­legu hlut­verki sínu en umbreyst í lands­lag í rými Verk­smiðj­unnar og þannig öðl­ast fag­ur­fræði­legt gildi og nýja til­veru. Einn hlut­ur­inn er þó ekki fjölda­fram­leiddur nytja­hlutur en það er lands­lags­mál­verk sem liggur klesst undir þvotta­vél­inni.

Þórdís Alda Sig­urð­ar­dóttir minnir á afstæði tím­ans með leifum af fornu tré frá Hessian-þjóð­garð­inum í Þýska­landi en ald­urs­hringirnir í trénu rekja upp­runa þess til árs­ins 1841 og þannig er það hluti af sögu sem er eldri en við öll og tákn þess sem býr í visku tím­ans. Gestum býðst að setj­ast á styrkan stól úr gömlum viði og allt um kring eru trjá­bútar sem virð­ast hvísla að okkur.

Hamfarir Deborah Butt­erfi­eld gætu líka verið ábend­ing að hlusta á hvísl nátt­úr­unnar. Hún talar til okkar í gegnum hest, sem lítur út fyrir að hafa sprungið og splundr­ast yfir gólfið, sam­an­settur úr reka­viði og plast­rusli. En hann er hún, sjálfs­mynd hennar, og hún talar við okkur í gegnum hann. Ekki er heldur allt sem sýn­ist í verki Ragn­hildar Stef­áns­dóttur: Í loft­inu er búið að varpa upp mynd af konu sem flýtur fal­lega í sól­glitr­andi vatni en þegar ég lít niður blasir við tæt­ings­leg dúkka, eins og Bar­bímúmía, í vatns­laug.

Eitthvað hvílir á fólki

Verk­smiðju­stjór­inn kveðst vera ánægður með hversu vel hefur tek­ist til í sýn­ing­ar­stjórnun. Ég hef tekið eftir því að breiður hópur dregst að henni, nokkuð sem á ekki við allar sýn­ingar, segir hann. Mér finnst þessi sýn­ing tala til svo margra. Þetta eru auð­vitað umhverf­is­mál og þessi til­finn­ing, að allt sé á hverf­andi hveli. Eitthvað sem kannski hvílir á fólki, eitt­hvað liggur í loft­inu, eitt­hvað sem sýn­ingin virð­ist fanga.

Nóg er þarna úti til að fanga, hvarflar að mér meðan ég skrifa þessi orð fyrir net­miðil í gam­alli síld­ar­vinnslu, bless­un­ar­lega laus við netið og þar með stig­vax­andi spenn­una út af hót­unum Trump og Kim Jong-un.

Það er eins og vondu karl­arnir í klénni skrípa­mynd um Kalda stríðið hafi náð völdum, segir Gústav meðan ég ham­ast við að vél­rita. Og það hefur auð­vitað áhrif á umhverf­is­málin, versta sem hægt er að gera er að setja þau á ís, segir hann meira við sjálfan sig. Kald­hæðn­is­legt orða­lag, hugsa ég og fatta sam­tímis að til­skildum orða­fjölda er löngu náð svo greinin má ekki vera lengri. Eitt þó að lokum: Eitthvað er að ger­ast á Hjalt­eyri, eitt­hvað sem er þess virði að sjá ... áður en það verður að ein­hverju öðru.

Um sýninguna:

Helstu skipu­leggj­endur sýn­ing­ar­innar eru Þórdís Alda Sig­urð­ar­dóttir, Rúrí, Ragn­hildur Stef­áns­dóttir og Anna Eyj­ólfs­dóttir en þær fengu Pari Stave til að stýra sýn­ing­unni.

Lista­menn: Alex Czetwertynski, Anna Eyj­ólfs­dóttir, Deborah Butt­erfi­eld, Emma Ulen Klees, Gústav Geir Bollason, Hunter Buck, Jessica Stockholder, John Buck, Kristín Reyn­is­dóttir, Mary Ellen Croteau, Pétur Thomsen, Ragn­hildur Stef­áns­dóttir, Rúrí og Þórdís Alda Sig­urð­ar­dóttir.

Sjá nánar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár