Austræna ástarsagan sem sigraði Evrópu

Hafliði Sæv­ars­son kynnti sér sög­una um Fiðr­ildamaddöm­una.

Til eru frá­sagnir af elskendum sem hafa verið sagðar svo oft að hvert stálpað manns­barn innan sinnar heims­álfu þekkir þær. Á Vest­ur­löndum er Rómeó og Júlía fyrir löngu orðið ódauð­legt leik­rit. Í Kína svífur sagan af Fiðr­ilda­elskend­unum enn milli manna. Í Rómönsku Ameríku er söng­leikur um argent­ínsk for­seta­hjón löngu orð­inn fræg­ari en hjónin sjálf nokkurn tíma voru.

En ein er sú ást­ar­saga sem brúar bilið milli fjar­lægra menn­ing­ar­heima (ólíkt öllum öðrum). Hún er reglu­lega sungin með trega­fullum tónum víðs vegar á jarð­ar­kringl­unni. Hún er ekki bara ein­stök fyrir þær sakir að segja frá elsk­hugum frá Asíu og Evrópu. Heldur einnig vegna þess að aðdá­endur þessa meist­ara­verks hafa flestir enga hug­mynd um hvaðan hún kemur né hvaða elskendur gáfu sög­unni líf.

Nánar um skáld­verkið síðar en fyrst um upp­runann. Margar kenn­ingar hafa verið reif­aðar en sú sem hvað oft­ast skýtur upp koll­inum á rætur sínar að rekja til Þjóð­verja að nafni Philipp Franz von Siebold. Hann var læknir á fyrri hluta 19. aldar með brenn­andi áhuga á garð­yrkju.

Árið 1822 var hann nýút­skrif­aður og réð sig í sjó­her nýlendu­veldis Hol­lend­inga. Hann var sendur frá Rott­er­dam til Batavíu í Indónesíu þar sem nú er höf­uð­borgin Jakarta. Hann varð veikur á leið­inni og fékk að jafna sig við komu í húsi hol­lenska land­stjór­ans. Á meðan hann jafn­aði sig var tekið eftir því hversu öfl­ugur hann var í garð­inum og fróður um plöntur.

Á þessum tíma voru Jap­ans­eyjar lok­aðar af fyrir umheim­inum. Utan­rík­is­við­skipti voru sára­lítil og sam­skipti við umheim­inn nær engin. Keis­ar­inn réð ekki land­inu heldur féll í skugg­ann af Shogun-stríðs­herrum. Eini stað­ur­inn þar sem erlend við­skipti máttu fara fram voru á smá­eynni Dejima fyrir utan Nagasaki. Þar máttu full­trúar fyrstu alþjóð­legu fyr­ir­tækja­sam­steypunnar, Hol­lenska Austur-Ind­ía­fé­lags­ins, einir koma og versla.

Þegar land­stjór­inn og grasa­garðs­meist­ar­inn í Bangor í Indónesíu urðu þess varir að Philipp væri með græna fingur var ákveðið að senda hann sem sér­legan lækni og vís­inda­mann til Japan. Síðara hlut­verkið var honum fært til þess að rann­saka plöntur og dýr Jap­ans­eyja en vit­neskja Vest­ur­landa­búa um þau mál­efni var fábrotin og tak­mark­að­ist við alfræði­rit sænsks for­vera í sama stöðu­gildi.

Þegar Philipp var kom­inn á stað­inn varð hann fljót­lega afar vin­sæll sem læknir á eynni og víðar í Japan. Hann fékk leyfi til að opna lækna­skóla og voru jap­anskir drengir sendir í læri hjá honum. Þá fékk hann til að hjálpa sér til að viða að sér enn fleiri japönskum plöntum og dýrum.

Síðar áttu japönsk menn­ing­ar­á­hrif eftir að springa út í Evrópu í hreyf­ingu sem nefnd hefur verið Japon­isme. Japönsk vegg­spjöld, blæ­vængir og hand­verk með sína ein­stöku list­rænu ein­kenni og liti vöktu eft­ir­tekt list­mál­ara, tón­skálda og fleiri. Ber­sýni­leg merki þess má sjá í verkum Vincent van Gogh og Claude Monet. Safn og skrif Philipp Franz von Siebold um Japan voru und­an­fari þeirra áhrifa.

Frægð von Siebold í Evrópu varð ekki ein­ungis til vegna fræði­starfa hans. Það kvis­að­ist fljót­lega út á meðal elít­unnar á meg­in­landi Evrópu að von Siebold ætti í ást­ar­sam­bandi við jap­anska konu, Kusumoto Taki. Þau gift­ust og áttu saman barn, dótt­ur­ina Kusumoto Ine.

Því hefur oft verið haldið fram að hjóna­bandið hafi verið „tíma­bundið“ og að von Siebold hafi kom­ist í kynni við Kusumoto Taki í gegnum sams konar miðl­ara og þá sem selja vændi. Hins vegar áttu sam­skipti þeirra eftir að verða svo löng og örlaga­rík að það skiptir varla máli eða það er ein­fald­lega rangt.

Árið 1826, eftir þriggja ára dvöl í Japan, var von Siebold boðið að fara til Edo, þar sem nú er höf­uð­borgin Tókýó. Ferðina nýtti hann til að viða að sér fleiri nátt­úru­minjum og þekk­ingu. M.a. hitti hann stjörnu­spek­ing japönsku hirð­ar­innar sem gaf honum nákvæm kort af Jap­ans­eyjum.

Þremur árum síðar sendi von Siebold stórt safn ýmissa muna til Indónesíu en þeim skol­aði á land eftir að flutn­inga­skip­inu hlekkt­ist á í stormi. Við það upp­götv­uðu Japanir að kortin hefðu borist í hendur útlend­inga. Það var land­ráð. Von Siebold var gerður útlægur og þeir sem gáfu kortin voru dæmdir til að svipta sig lífi.

Von Siebold kvaddi konu sína og dóttur í höfninni í Nagasaki

Árið 1885 kom út bókin Madame Chrysantheme eftir franska rit­höf­und­inn Pierre Loti. Hún fjall­aði um ást­ar­æv­in­týri höf­und­ar­ins og jap­anskrar konu í Nagasaki. Því hefur verið haldið fram að Pierre Loti hafi vitað um sam­band Kusumoto Taki og von Siebold. Franska skáldið not­aði það ævin­týri sem inn­blástur þegar hann gekk í hjóna­band sem varð eins konar rann­sókn­ar­verk­efni í Nagasaki. Því hefur einnig verið haldið fram að Pierre Loti hafi kynnst henni í gegnum miðl­ara en reynst svo óheppi­legur eig­in­maður að konan flúði hann að lokum.

Fyrir Íslend­inga er áhuga­vert að vita að síð­asta bókin eftir Pierre Loti sem kom út á undan Madame Chrysantheme hét Veiði­menn við Íslands­strendur. Sú bók er þekkt og hefur verið þýdd á íslensku. En hún er ekki nærri jafn þekkt og sagan um Madame Chrysantheme og ást­ar­æv­in­týri evr­ópskra far­manna á 19. öld. Hvað þá þær sögur sem átti eftir að skrifa um sama efni.

Næsta stóra skref þjóð­sög­unnar um Kusumoto Taki og von Siebold var smá­saga sem banda­ríski lög­fræð­ing­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn John Luther Long gaf út árið 1898. Þar segir frá banda­ríska flota­liðs­for­ingj­anum Pin­kerton sem gengur að eiga jap­anska geishu. Eftir að hann siglir burt elur hún honum barn og við tekur trega­full bið eftir séntil­mann­inum. Smásagan hlaut nafnið Madame Butt­er­fly.

Söng­leikur eftir David Belasco undir sama nafni byggður á smá­sög­unni var fyrst sýndur í New York þann 5. mars árið 1900. Sjö vikum síðar var farið með söng­leik­inn til London og Belasco sýndi hann þar. Í salnum á einni sýn­ing­unni sat eng­inn annar en Giacomo Puccini sem heill­að­ist svo af sög­unni að hann óskaði eftir leyfi til að fá að semja óperu, m.a. byggða á tón­list Belascos.

Úr varð óperan Madama Butt­er­fly. Hún var sýnd í fyrsta skipti á Scala í Mílanó árið 1904. Hún hlaut lélegar við­tökur meðal ann­ars vegna þess að hún var í tveim hlutum frekar en þrem og áhorf­endur þreytt­ust óhóf­lega. Puccini tók hana úr sýn­ingu, lag­aði og sýndi aftur í Brescia árið 1907 við frá­bærar und­ir­tektir. Allt fram til árs­ins 1920 ferð­að­ist Puccini milli óperu­húsa sem tóku maddöm­una til sýn­inga til að tryggja upp­setn­ingar sem hann sætti sig við.

Japanski útlaga­dóm­ur­inn yfir von Siebold var að lokum felldur niður árið 1859. Þá voru liðin þrjá­tíu ár síðan hann var rek­inn frá Japan. Í milli­tíð­inni hafði hann gefið sig evr­ópskri konu. Hann sneri loks aftur til Japan ásamt syni sínum. Þar hitti hann aftur jap­anska konu sína og dóttur. Þau ár sem hann var í burtu höfðu þær mæðgur hlotið stuðn­ing hans og vina honum tengdum. Meðal ann­ars var séð til þess að dóttirin kæm­ist til mennta. Hún varð fyrsta jap­anska konan til að stunda vest­rænar lækn­ingar og aðstoð­aði sem ljós­móðir við fæð­ingu afkom­anda keis­ar­ans.

Sigurför Madama Butt­er­fly um óperu­hús heims­ins er fyrir margt löngu orðin ótrú­leg bæði sökum vel­gengni óperu­verks­ins og þeirra óvana­legu aðstæðna og ástríðna sem óperan segir frá. Sagan af dóttur þeirra Kusumoto Taki og von Siebold hefur einnig verið efni­viður í fjölda skáld­verka og bíó­mynda í Japan, líkt og ást­ar­saga for­eldra hennar og óperan ódauð­lega eftir Puccini.

Giacomo Puccini sjálfur skrif­aði eitt sinn: „Enn þykir mér vænt um Butt­er­fly. Ég hlusta aldrei á óperur mínar með ánægju fyrir utan kannski La Boheme. En Butt­er­fly – já – á hana hlusta ég alla með ánægju. Þá er mér ljóst að ég hef samið mína nútíma­leg­ustu óperu.“

Það var þannig sem ást­ar­sagan af Kusumoto Ine og Philipp Franz von Siebold var, er og verður sungin aftur og aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár