Kynferðisofbeldið mótaði sýn mína á samfélagið

Í bók­inni Bréf til mömmu leit­ast rit­höf­und­ur­inn Mikael Torfason eftir því að gera upp æsku sína og áföll í ein­lægum skrifum til móður sinnar. Þar stígur hann fram og greinir frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hann varð fyrir á ung­lings­árum. Hann segir það hafa mótað sig sem blaða­mann og síðar rit­stjóra enda einn af braut­ryðj­endum í umfjöll­unum um kyn­ferð­is­mál hér á landi.

Kynferðisofbeldið mótaði sýn mína á samfélagið

Við pabbi bjuggum að mig minnir enn á Bar­óns­stíg þegar ég fann öku­kenn­ara með hjálp félaga minna og fór svo og keypti mér mót­or­hjól eftir að hafa grát­beðið þig um að skrifa upp á lán … Öku­kenn­ar­inn sem ég fann reynd­ist vafa­samur pappír. Ég hafði ekki hug­mynd um það þegar ég var sextán ára, en sautján árum eftir að ég tók bíl­prófið var hann dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum nem­enda sinna. Þeir höfðu verið á mínum aldri þegar brotin áttu sér stað. Þetta þykir þungur dómur á Íslandi. Reyndar ákvað Hæsti­réttur að milda hann í tveggja ára fang­elsi án þess að færa fyrir því hald­bær rök. Dóminn fann ég á vef­síðu Hæsta­réttar fyrir ekki svo löngu. Þetta er hræði­legur lestur. Fjórir strákar kærðu Hauk Helgason og hann ját­aði mörg brot­anna en að auki fund­ust við hús­leit hjá honum alls þrjú þús­und átta hund­ruð og fjórar ljós­myndir sem sýndu börn á kyn­ferð­is­legan eða klám­feng­inn hátt. Haukur tók sumar af mynd­unum sjálfur en fjöl­skip­uðum Hæsta­rétti þótti þriggja ára fang­els­is­vist samt of þungur dómur fyrir brot hans.

Af hverju íslenskum dóm­urum virð­ist þykja sér­stök ástæða til að sýna barn­a­níð­ingum mildi þegar þeir skella sama dag­inn margra ára fang­els­is­dómi á ráð­villt burð­ar­dýr í dópsmygli, það mun ég aldrei skilja.

Fyrst las ég frétt um dóm­inn yfir öku­kenn­ar­anum mínum í dag­blað­inu DV tveimur árum eftir að ég hætti með miklum gaura­gangi sem rit­stjóri DV árið 2006. Valur Grett­is­son blaða­maður skrif­aði frétt um öku­kenn­ara sem nýtti starf sitt gagn­gert til að finna fórn­ar­lömb sem hann beitti síðan kyn­ferð­is­of­beldi. Og ég átt­aði mig á að þetta var hann. Öku­kenn­ar­inn minn. Við erum auð­vitað miklu fleiri fórn­ar­lömbin en þessar fjórar ónefndu hetjur sem kærðu Hauk. Ég steig til dæmis aldrei fram og lengi fannst mér glæpur hans gegn mér alltof lít­ill til að hafa orð á honum. Mér fannst þetta líka allt vera mér að kenna. Hann káf­aði á mér tvisvar eða þrisvar og reyndi að nauðga mér, en af því að honum tókst það ekki mál­aði ég yfir það hve mikil áhrif brot hans höfðu á mig. 

Þetta ritar Mikael í bók sinni og stígur fram með þá reynslu að hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi sem ung­lingur. „Ég hef ekk­ert að fela í þessum efnum. Bókin fjallar um ung­lingsár mín og þessi níð­ingur sem ég á í þessu ofbeld­is­sam­bandi við kemur inn í líf mitt þá. Ég hugs­aði ekki mikið út í hvernig áhrif það hefði að stíga fram með þetta,“ segir Mikael aðspurður um ákvörðun sína að ræða þetta opin­skátt við móður sína í bók­inni. 

„Ég hef alltaf notað skrif mín og listir til að tjá mig. Ég fjall­aði um þetta atvik í kvik­mynd minni Gemsar, sem ég gerði fyrir nokkrum árum. Einnig not­aði ég blaða­mennsk­una til að tala við fólk í svip­aðri stöðu og varpa ljósi á að kyn­ferð­is­brot og barn­a­níð eigi sér stað í sam­fé­lag­inu. Þegar ég hóf störf sem blaða­maður árið 1996 þá end­aði fjöl­miðlaum­fjöllun um kyn­ferð­is­of­beldi nær alltaf með því að brota­þolar sátu uppi með skömm­ina en ekki ger­andi. Það ár var einmitt mál Ólafs Skúla­sonar bisk­ups í hámæli,“ segir hann. 

Birtu nöfn barnaníðinga

Mikael tók svo við rit­stjóra­stóli DV árið 2003 og starf­aði þar fyrst ásamt Illuga Jök­uls­syni og svo Jónasi Krist­jáns­syni til árs­ins 2006. Eða þar til hann sagði upp störfum eftir mikla reiði vegna DV-máls­ins svo­kall­aða. Þá fjall­aði DV um mál Gísla Hjart­ar­sonar, kenn­ara á Ísafirði, sem kærður hafði verið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi gegn tveimur drengjum sem hann aðstoð­aði með heima­nám á heim­ili sínu. DV hafði einnig nöfn fjög­urra ann­arra drengja sem sögð­ust hafa lent í Gísla. Sama dag og umfjöll­unin birt­ist í DV svipti Gísli sig lífi. „Þetta var erfitt mál og mán­uð­irnir á eftir tóku á. Við vildum auð­vitað ekki valda þessum drengjum sem lentu í honum upp­námi. Svo fór dágóður tími í að finna út hvar maður bar ábyrgð og hvar bara alls ekki,“ segir hann um þennan tíma. 

„Þá end­aði fjöl­miðlaum­fjöllun um kyn­ferð­is­of­beldi nær alltaf með því að brota­þolar sátu uppi með skömm­ina“

Óhætt er að segja að mikil reiði hafi ríkt í þjóð­fé­lag­inu í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar. Þjóð­fé­lagið skipt­ist í tvær fylk­ingar og söfn­uð­ust yfir þrjá­tíu þús­und und­ir­skriftir þar sem farið var fram á við eig­endur og útgef­endur DV að látið yrði af rit­stjórn­ar­stefnu þeirra að birta nöfn og myndir af öllum sem voru til umfjöll­unar í blað­inu. Á þessum árum var DV fyrst til að birta nöfn barn­a­níð­inga opin­ber­lega. „Fólk úr öllum stéttum sam­fé­lags­ins tók afstöðu með Gísla í þessu máli. Stjórn­mála­menn rit­uðu um hann og úthúð­uðu okkur á DV. Þetta var líka lenskan á þessum tíma. Einhvern veg­inn var það frekar þannig að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis áttu að skamm­ast sín og fólk fann til með níð­ing­unum. Það var bara þannig að ef barn, kona eða ung­menni steig fram og sagði frá barn­a­níð, þá tap­aði við­kom­andi alltaf slagnum. Þess má geta að það eru ekki mörg ár síðan rík­i­s­tjórn féll vegna þess að barn­a­níð­ingum var veitt upp­reist æra,“ segir hann og er þar að vísa til mála Roberts Downey og Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar. Fengu þeir upp­reist æru sama dag. 

Áttu ekki að fá að vaða uppi í nafnleysi

Robert öðl­að­ist lög­manns­rétt­indi sín á ný eftir að dóms­mála­ráðu­neytið sam­þykkti umsókn hans um upp­reist æru og óflekkað mann­orð árið 2016.

Robert hafði verið dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að  brjóta gegn fjórum stúlkum og árið 2010 dæmdur á ný fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni. Sú ákvörðun að veita honum upp­reist æru hafði mjög þung áhrif á þolendur Roberts og aðstendendur þeirra, sem kröfð­ust svara við því hvað lægi að baki þeirri ákvörðun. Erfitt reynd­ist hins vegar að fá svör frá ráðu­neyt­inu. Tómlætið sem mætti þolendum Roberts vakti enn harð­ari við­brögð sam­fé­lags­ins og í ljós kom að ráðu­neytið hafði brotið gegn upp­lýs­inga­lögum.

Stundin greindi síðan frá því að annar barn­a­níð­ingur, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði einnig fengið upp­reist æru sama dag og Robert. Hjalti var dæmdur fyrir að níð­ast nán­ast dag­lega á stjúp­dóttur sinni í tólf ár og sat inni í þrjú og hálft ár. Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, þá for­sæt­is­ráð­herra, hafði mælt með því að Hjalta yrði veitt upp­reist æra og grund­vall­að­ist ákvörðun ráðu­neyt­is­ins á með­mæl­unum. Dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi í kjöl­farið að hafa greint for­sæt­is­ráð­herra einum frá með­mæla­bréfi föður hans. Varð þetta til þess að Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sínu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn vegna alvar­legs trún­að­ar­brests. Viðbrögð sam­fé­lags­ins voru sterk og staðið var að vissu leyti með brota­þolum í umræð­unni. 

Séu þessi við­brögð borin saman við við­brögð sam­fé­lags­ins á skrifum DV um Gísla Hjart­ar­son árið 2006, má áætla að við­horf sam­fé­lags­ins hafi að ein­hverju leyti tekið breyt­ingum. „Reynsla mín af kyn­ferð­is­of­beldi og almenn reynsla af mót­læti snemma í líf­inu varð lík­lega til þess að ég var oft og tíðum með aðra skoðun en við­gekkst í sam­fé­lag­inu. Ég vissi að skömmin var ekki brota­þol­anna í þessum málum. Níð­ing­arnir áttu ekki að fá að vaða uppi í nafn­leysi. Ég man sér­stak­lega eftir einu máli sem við fjöll­uðum um. Þá hafði kokkur á veit­inga­stað í Reykja­vík nauðgað stúlku sem vann sem þjónn á sama stað. Hann var dæmdur fyrir brotið í hér­aðs­dómi. Hann vann samt áfram á staðnum og var settur á sömu vaktir og þessi stúlka. Þannig var sam­fé­lagið, hún átti þá bara að hætta. Þannig var við­horf margra til kyn­ferð­is­brota – þetta hlaut á ein­hvern hátt að hafa verið henni að kenna. Það eru bara 15 ár síðan þetta var,“ segir hann og bætir við að þetta hafi alltaf verið erfitt umfjöll­un­ar­efni og sé enn. „Ég held að fólk geri sér ekki alveg grein fyrir því hvað umfjöllun um þessi mál getur verið flókin. Stað­reyndin er sú að í fjöl­skyldu­boðum og á börum bæj­ar­ins ræðir fólk saman um að taka þurfi á kyn­ferð­is­brotum og barn­a­níð. Allir finna til með þeim sem í því lenda. En þegar til kast­anna kemur þá koma bara í ljós for­dómar hjá ótrú­leg­asta fólki gagn­vart þeim sem hafa lent í þessu ofbeldi. Margir vilja bara líta undan, því það er auð­veld­ara,“ segir hann. 

 „Reynsla mín af kyn­ferð­is­of­beldi og almenn reynsla af mót­læti snemma í líf­inu varð lík­lega til þess að ég var oft og tíðum með aðra skoðun en við­gekkst í sam­fé­lag­inu”

Mikael segir ótal margar sögur til frá þessum árum sínum á DV. Hann minn­ist þeirra þó með hlýju og segir þau ein skemmti­leg­ustu ár hans á fjöl­miðli. „Það var alltaf hugur í rit­stjórn­inni og það kannski hljómar furðu­lega en það var gef­andi að rífa plástra af þessum sárum sam­fé­lags­ins. Ég held að við höfum velt stein­inum og kannski haft ein­hver áhrif á við­horfið með bein­skeyttum umfjöll­unum okkar,“ segir hann. 

Bækurnar styrkt fjölskyldutengslin

Bréf til mömmu er þriðja bók Mikaels sem fjallar um fjöl­skyldu hans. Týnd í Paradís og Synda­fallið nefn­ast hinar tvær og fjalla um veru hans og fjöl­skyldu í Vottum Jehóva, tím­ann sem þau voru rekin þaðan, and­lát pabba hans sem dó úr alkó­hól­isma árið 2017 og æsk­una hans fram að ung­lings­árum. Bréf til mömmu er svo fram­haldið og spannar öll þau ár sem Mikael bjó ekki hjá mömmu sinni. Eins konar dag­bók þar sem hann ræðir beint við mömmu sína um þennan tíma. „Almennt hafa bæk­urnar mínar haft góð áhrif á fjöl­skyldu­tengsl mín. Það hefur verið mér mjög hollt að verja tíma og orku í að setja mig í spor mömmu minnar. Hún á flók­inn bak­grunn og gerði sitt besta á þessum tíma. Það að skilja hana betur og for­tíð mína hefur gert mig að betri manni. Í upp­eldi mínu var ein­hverjum sann­leika inn­prentað í mig – að mamma mín elskaði mig ekki. Í gegnum þessa vinnu hef ég tekið upp­lýst­ari afstöðu til hennar og hún er ein af mínum bestu vinum í dag,“ segir hann að lokum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár