Níðingsverk kaþólskra presta enn á ný í brennidepli

Rann­sókn­ar­nefnd í Þýsklandi dró fram í dags­ljósið upp­lýs­ingar um gríð­ar­lega umfangs­mikil níð­ings­verk kaþ­ólskra presta.

Kyn­ferð­isof­beldi inn­an kaþ­ólsku kirkj­unn­ar er enn á ný komið upp á yf­ir­borðið, eftir að þýsk rann­sókn­ar­nefnd kom­st að því að minnst 547 dreng­ir í þýsk­um kór­skóla hafi verið beitt­ir kyn­ferðis­legu- eða lík­am­legu of­beldi. Í umfjöllun rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að margir þeirra hafi upp­lifað vist­ina innan kirkj­unnar sem hel­víti á jörðu.

Ofbeldið átti sér stað hjá Reg­ens­burger Domspatzen drengja­kórnum og einnig í skóla­starfi, að því er segir í umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC um níð­ings­verkin og skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Í það minnsta 49 prestar beittu börn ofbeldi yfir ára­tuga­tíma­bil, frá 1945 til 1990. Ofbeldið var þaggað niður innan kirkj­unnar, en málið svipar mikið til ann­arra mála sem komið hafa upp innan kaþ­ólsku kirkj­unnar, víðs vegar um heim­inn. 

Lög­mað­ur­inn Ulrich Weber, sem stýrði rann­sókn­inni, sagði á kynn­ing­ar­fundi vegna máls­ins að lík­lega væru fórn­ar­lömb ofbeldis af hálfu presta kaþ­ólsku kirkj­unnar mun fleiri, eða allt að 700.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsóknir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár