Áhugi ferðamanna á Íslandi fer minnkandi

Skýr merki kóln­unar í ferða­þjón­ust­unni sjást víða. Eftir gríð­ar­lega hraðan vöxt virð­ist sem hátt verð­lag sé farið að bæla niður áhuga ferða­manna.

„Við heyrum sömu radd­irnar alls staðar þessi miss­erin. Ferða­menn eru að spara, og skýr merki sam­dráttar hjá mörgum,“ segir Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

Veit­inga­staðir, hótel og versl­anir hafa sömu sögu að segja í sam­tölum við Kjarnann; svo virð­ist sem veru­lega sé farið að hægja á ferða­þjón­ust­unni eftir gríð­ar­legan upp­gang síð­ustu ára. Jafnvel þó mikil fjölgun hafi orðið á komum ferða­manna milli ára, þá hefur neysla þeirra dreg­ist saman og þeir dvelja skemur á land­inu.

Krónan versti óvinurinn

Mikil og hröð styrk­ing krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum, á und­an­förnu ári, hefur haft mikil áhrif á grein­ina, að sögn Helgu. „Þegar þró­unin er svona hröð í þessa átt, þar sem Ísland verður allt í einu mjög dýrt í alþjóð­legum sam­an­burði, þá getur sam­keppn­is­staða lands­ins versnað og alvar­leg staða komið upp,“ segir Helga.

Á dög­unum fund­aði sér­fræð­ingur frá einu stærsta bók­un­ar­fyr­ir­tæki heims, Expedia, með íslenskum aðilum úr ferða­þjón­ust­unni, og sýndu gögn frá fyr­ir­tæk­inu, sem sýna áhuga not­enda á bók­un­ar­svæðum, að horfur hafa farið hratt versn­andi. Þetta var eins konar hita­kort, og mátti glögg­lega sjá á þessum gögnum að áhug­inn á Íslandi fer minnk­andi, miðað við stöð­una eins og hún hefur verið und­an­farin ár.

Áhugi hefur hins vegar auk­ist jafnt og þétt á Noregi og Skotlandi, sem bjóða fjöl­breytta úti­vistar­tengda ferða­þjón­ustu, svipað og býðst á Íslandi.

Helga segir að það sé eins með ferða­þjón­ust­una og allar aðrar atvinnu­greinar; ef verð og gæði fara ekki saman, meðal ann­ars vegna mik­illa sveiflna á geng­inu, þá geti afleið­ing­arnar orðið alvar­legar.

Að und­an­förnu hafa sést tölur sem stað­festa til­finn­ingu margra við­mæl­enda Kjarnans, um að ferða­þjón­ustan sé að upp­lifa sam­drátt víða, eins og sést í breyttu neyslu­mynstri frá því áður var.

Víða á lands­byggð­inni hafa fyr­ir­tæki upp­lifað tölu­verðan sam­drátt frá því í fyrra.

Minni eyðsla

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar birti korta­veltu erlendra greiðslu­korta fyrir maí­mánuð á dög­unum, en hún nam 21,3 millj­örðum króna sam­an­borið við 19,9 millj­arða í maí í fyrra. Veltan hefur því auk­ist um 7,1%, en til sam­an­burðar jókst veltan í apríl um 27,7% miðað við apríl í fyrra.

Mestur var sam­drátt­ur­inn í korta­veltu gjafa- og minja­gripa­versl­un­ar, en hann var um 18,9% milli ára. Mesta aukn­ingin var hins vegar í korta­veltu far­þega­flutn­inga, en hún jókst um 22,7% milli ára. Langstærsti lið­ur­inn innan þess flokks er far­þega­flug, en hluti erlendrar starf­semi inn­lendra flug­fé­laga er með­tal­inn í reikn­ing­un­um.

Þá hefur Bretum fækkað mikið frá fyrra ári, og má gera ráð fyrir að mikil veikn­ing punds­ins gagn­vart helstu við­skipta­myntum, í kjöl­far Brexit, hafi haft þar mikil áhrif.

Ferða­menn frá Banda­ríkj­unum eru lang­fjöl­menn­asti hópur ferða­manna, og hefur þeim haldið áfram að fjölga mikið milli ára. En eins og áður segir, þá eru blikur á lofti í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár