Ekki búist við endalokum reiðufjár

Hug­myndir fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um minnkun seðla í umferð og raf­væð­ingu gjald­eyris hafa áður komið fram á Indlandi og í Svíþjóð. Ekki er hins vegar búist við því að enda­lok reiðu­fjár muni líta dags­ins ljós á Íslandi á næst­unni.

Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands
Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands Mynd: EPA

Samhliða til­kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um að taka 10.000 og 5.000 króna seðla úr umferð (sem síðan var dregin til baka) voru einnig viðr­aðar þær hug­myndir að raf­væða meiri­hluta reiðu­fjár með því að gefa íbúum inni­stæðu­reikn­ing hjá Seðla­bank­anum. Aðrar þjóðir hafa einnig talað um breyt­ingar á reiðu­fjár­kerfi sínu, til að mynda Indland og Svíþjóð. Samkvæmt nýlegum ummælum Seðla­bank­ans er hins vegar ólík­legt að umræddar aðgerðir fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins muni leiða til enda­loka reiðu­fjár, ef af þeim verður.

Reiðufjárbann á Indlandi

Lengst allra hefur Indland gengið í tak­mörkun á notkun reiðu­fjár, en þann 8. Nóvember síð­ast­lið­inn lýsti Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, óvænt yfir banni á 500 og 1.000 rúpíu seðlum. Með banni á umræddum seðlum, sem jafn­gildir 800 og 1600 krónum, var 86% alls reiðu­fjár tekið úr umferð.

[links]Markmið banns­ins var að lág­marka umsvif „svarta hag­kerf­is­ins“ ann­ars vegar og koma í veg fyrir spill­ingu emb­ætt­is­manna og fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka hins vegar.

Samkvæmt umfjöllun New York Times um málið lenti bannið sem harð­ast á tekju­lágum sem gera upp flest sín við­skipti með seðlum. Hins vegar virð­ist sem hag­kerfi lands­ins hafi ekki beðið mik­inn hnekki á inn­setn­ingu banns­ins til langs tíma, áhrif þess hafi byrjað að fjara út á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs. [adspot]

E-krona í Svíþjóð

Í kjöl­far seðla­banns­ins á Indlandi og stöðv­unar á fram­leiðslu á 500 Evru seðlum af Seðla­banka Evrópu hóf Seðla­banki Sví­þjóðar, Riksbank, athugun á mögu­leika þess að raf­væða sænsku krón­una í seinni hluta nóv­em­ber 2016. Vægi reiðufjár­notk­unar í Svíþjóð hefur, eins og á Íslandi, minnkað mjög á síð­ustu árum. Til að mynda hafði magn seðla í umferð fallið niður í 1,5% árið 2016 úr 10% árið 1950.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyr­ir­komu­lag sænsku krón­unnar á raf­rænu formi, hinnar svoköll­uðu e-krona, en búist er við því að hún liggi fyrir innan tveggja ára.

Aðgerð­irnar virð­ast þó ekki munu verða jafn­rót­tækar og þær sem voru keyrðar í gegn á Indlandi. Í verk­lýs­ingu sem birt­ist í mars á þessu ári gaf Riksbank út þá yfir­lýs­ingu að mark­mið inn­leið­ingar e-krona væri ekki að banna seðlum og mynt í umferð, hún yrði ein­ungis reiðu­fénu til stuðn­ings.

Starfshópur settur á fót hjá Seðlabankanum

Orða­lagið í skýrslu Riksbank svipar mikið til kafla Seðla­banka Íslands um mögu­leika þess að veita almenn­ingi aðgang að seðla­bankaraf­eyri í síð­asta tölu­blaði Fjár­mála­inn­viða. Einnig kemur þar fram að stofn­aður hafi verið starfs­hópur til þess að kanna mögu­leik­ana á útgáfu seðla­bankaraf­eyris, rétt eins og í Svíþjóð. Kjarninn fjall­aði um kafl­ann fyrir stuttu, en í honum segir: „Hver sem nið­ur­staðan verður mun hefð­bundið reiðufé (seðlar og mynt) lifa góðu lífi enn um sinn, eitt og sér eða í návist raf­eyris útgef­ins af seðla­banka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár