Öllum tillögum verði hrundið í framkvæmd

Á blaða­manna­fundi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í gær voru ýmsar til­lögur kynntar með það mark­mið að draga úr umsvifum svarta hag­kerf­is­ins hér á landi. Fjár­mála­ráð­herra sagði á fund­inum að þeim verði öllum hrundið í fram­kvæmt

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið kynnti í gær nið­ur­stöður tveggja starfs­hópa um aðgerðir gegn skattaund­anskotum og svarta hag­kerf­inu. Tillögur starfs­hópanna fela í sér stór­tækar aðgerðir, en meðal þeirra er eft­ir­lit með milli­verð­lagn­ingu, lög­fest­ing á reglur um keðju­á­byrgð og tak­mörkun reiðufjár­notk­unar. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins átti öllum til­lögum hópanna að vera hrundið í fram­kvæmd.

Milliverðlagning

Fyrri starfs­hóp­ur­inn fjall­aði um skað­leg áhrif milli­verð­lagn­ingar og fakt­úru­föls­unar. Anna Borg­þórs­dóttir Olsen, for­maður starfs­hóps­ins, sagði árlegt tekju­tap rík­is­sjóðs vegna óeðli­legrar milli­verð­lagn­ingar vera lík­lega á bil­inu 1-6 millj­arða króna. Milli­verð­lagn­ing vísar til þess hvernig tengdir lög­að­ilar verð­leggja við­skipti sín á milli, en þau telj­ast óeðli­leg ef þau eru ekki verð­lögð á sama hátt og við­skipti ótengdra aðila.

Veiga­mestu til­lögur starfs­hóps­ins fólust því í að leggja af stað í átak í eft­ir­liti á slíkri starf­semi að for­dæmi ann­arra Dan­merkur og Noregs. Einnig ætti meðal ann­ars að tryggja virkt eft­ir­lit með skjöl­un­ar­skyldu stærri fyr­ir­tækja og innri við­skipti.

Peningaþvætti, kennitöluflakk og skattaundanskot

Seinni starfs­hópnum var gert að greina þjóð­hags­leg áhrif skattaund­an­skota og skattsvika ásamt því að gera til­lögur um það hvernig minnka megi svarta hag­kerfið. Var það mat hóps­ins að skattaund­an­skot á Íslandi gætu verið á bil­inu 3-5% af vergri lands­fram­leiðslu. Ljóst er því að um miklar fjár­hæðir er að ræða, en 4% af VLF jafn­gildir 100 millj­örðum króna.

[links]Tillögur hóps­ins til tak­mörk­unar á skattsvikum fólu meðal ann­ars í sér fækkun á virð­is­auka­skatts­þrepum, lög­fest­ingu keðju­á­byrgðar og heim­ild til að setja kenni­tölu­flakk­ara í atvinnu­rekstr­ar­bann.

Var það mat starfs­hóps­ins að mis­mun­andi virð­is­auka­skatts­þrep sé meðal þess sem auki hvata til und­an­skota. Með fækkun á und­an­þágum og skatt­þrepum væri því hægt að eyða þeim hvata.

Einnig lagði hóp­ur­inn til að lög­festa reglur um keðju­á­byrgð, en þannig myndu verk­takar bera meiri ábyrgð á skilum opin­berra gjalda und­ir­verk­taka. Ásamt því mældi starfs­hóp­ur­inn með því að heim­ilt verði að setja ein­stak­linga í atvinnu­rekstr­ar­bann sem sýnt hafa af sér grófa og óverj­andi við­skipta­hætti sem stjórn­endur félaga. Þessar hug­myndir eru svip­aðar til­lögum SA og ASÍ sem kynntar voru fyrr í vik­unni, en sam­tökin vildu einnig heim­ila þriggja ára rekstr­ar­bann fyrir kenni­tölu­flakk­ara.

10.000 króna seðillinn tekinn úr umferð

Að lokum benti seinni starfs­hóp­ur­inn á mik­il­vægi tak­mörk­unar á reiðufjár­notkun til að tor­velda mögu­leika til skattaund­an­skota og pen­inga­þvættis. Í því skyni lagði hóp­ur­inn til að 10.000 króna seð­ill­inn verði tek­inn úr umferð sem fyrst, en í náinni fram­tíð verði 5.000 króna seð­ill­inn einnig fjar­lægður.

Aðrar til­lögur til þess að draga úr pen­inga­magni í umferð fela meðal ann­ars í sér hámark á greiðslur með reiðufé, auk skyldu vinnu­veit­enda að greiða laun með raf­rænu og rekj­an­legu greiðslu­fyr­ir­komu­lagi.

Til þess að vega á móti minnkun reiðu­fjár í umferð vildi hóp­ur­inn að hugað væri að því hvort almenn­ingur þurfi að hafa aðgang að raf­eyri eða ígildi debet­korts með lág­marks­kostn­aði, til dæmis með inni­stæðu­reikn­ingi hjá Seðla­bank­anum. Seðla­bank­inn velti einmitt þessum mögu­leika fyrir sér fyrir tveimur vikum síðan, eins og kom fram á Kjarn­anum.

Öllu hrundið í framkvæmd

Skatta­mál virð­ast vera fjár­mála­ráð­herra hug­leikin, en á dög­unum und­ir­rit­aði hann alþjóð­legan samn­ing gegn skattaund­anskotum og skattsvikum með mis­notkun tví­skött­un­ar­samn­inga. Benedikt ætlar líka að láta kné fylgja kviði hjá til­lögum hópanna tveggja, en hann segir að þeim verði öllum hrundið í fram­kvæmd af ráðu­neyt­inu og stofn­unum þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið undanfarið ár