Fimm varnarsíður vegna hrunmála

Ýmsir athafna­menn sem hafa þurft að takast á við umdeild mál síð­ast­lið­inn tæpa ára­tug hafa valið að setja upp sér­stök vef­svæði til að koma mál­flutn­ingi sínum á fram­færi. Hér eru þau helstu.

1.www.btb.is

Frum­kvöð­ull í því að setja upp umfangs­mikið vef­svæði til að koma á fram­færi sinni hlið á álita­málum tengdum hrun­inu var Björgólfur Thor Björg­ólfs­son. Hann setti í loftið vef­síð­una btb.is þann 19. ágúst 2010, þar sem hann birti gögn yfir öll sín við­skipti á Íslandi aftur til árs­ins 2002. Auk þess var greint frá því á þeim tíma að síðan myndi verða eins­konar blogg­síða Björg­ólfs Thors þegar hann fyndi hjá sér til­efni til að koma á fram­færi upp­lýs­ingum við Íslend­inga. Síðan var sett í loftið fjórum mán­uðum eftir að skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 var gerð opin­ber. Þar var Björgólfur Thor og við­skipti hans og lán­tökur til umfjöll­unar.

Á síð­unni er einka­væð­inga­ferli Lands­bank­ans rakið með gögnum, tæpt á starfs­háttum Lands­banka Íslands eftir að Björgólfur Thor og við­skipta­fé­lagar hans urðu kjöl­festu­eig­endur bank­ans Straums-Burða­r­áss rakin, farið yfir aðkomu Björg­ólfs Thors að Actavis frá upp­hafi og birt yfir­lit yfir önnur við­skipti Björg­ólfs Thors á Íslandi. Þá fer Björgólfur Thor vit­an­lega yfir hrunið, líkt og hann upp­lifði það.

Síðan er enn virk tæpum sjö árum eftir að hún var sett í loftið. Á árinu 2016 voru alls settar inn tíu færslur, flestar frekar langar og ítar­legar. Síðasta færslan mar sett inn í lok mars síð­ast­lið­ins í kjöl­far þess að skýrslan um Hauck & Auf­häuser flétt­una var gerð opin­ber.

Björgólfur Thor hefur ekki verið ákærður í neinu hrun­máli. Hópur fyrr­ver­andi hlut­hafa í Lands­banka Íslands lét reyna á hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor og sak­aði hann um að hafa leynt upp­lýs­ingum um eign­ar­hald sitt á bank­anum. Málinu var vísað frá í Hæsta­rétti í fyrra. mögu­legt er að reynt verði að stefna Björgólfi á nýjan leik þannig að málið verði dómtækt. Ekki er til sér­stök Facebook-síða fyrir btb.is.

2. www.einsaer.is

Þann 18. sept­em­ber fór í loftið vef­síðan einsaer.is. Eina efnið á henni er hug­leið­ing um refsi­dóm sem lög­mað­ur­inn Bjarn­freður Ólafsson hlaut, auk ítar­efnis sem höf­undur hug­leið­ing­ar­innar, Bjarn­freður sjálfur, telur að styðji við mál­flutn­ing sinn.

Bjarn­freður var dæmdur í sex mán­aða fang­elsi í Hæsta­rétti 13. mars 2014, þar af þrjá skil­orðs­bundna, og missti lög­manns­rétt­indi sín í eitt ár. Hann var dæmdur fyrir að hafa sent ranga til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár í hinu svo­kall­aða Exista-­máli. Þá var til­kynnt um hluta­fjár­aukn­ingu upp á 50 millj­arða í lok árs 2008, en aðeins var greitt fyrir það um einn millj­arður króna.

Lýður Guð­munds­son fjár­fest­ir, oft kenndur við Bakka­vör, var einnig dæmdur í mál­inu, í átta mán­aða fang­elsi. Þar af voru fimm mán­uðir skil­orðs­bundn­ir. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði áður dæmt Lýð til að greiða tveggja millj­óna króna sekt. Bjarn­freður var hins vegar sýkn­aður af sínum þætti máls­ins í hér­aði.

Bjarn­freður fékk lög­manns­rétt­indi sín aftur vorið 2015. Ekki er til Facebook-síða fyrir einsaer.is.

3. www.dagsljos.is (1.050 like á Facebook)

Í byrjun júlí 2016 var sett í loftið vef­síðan Dagsljós.is. Um var að ræða sam­starfs­verk­efni Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Sigurðar Ein­ars­sonar, Magnúsar Guð­munds­sonar og Ólafs Ólafs­sonar sem allir hlutu þunga dóma í svoköll­uðu Al-Thani máli. Á síð­unni segir að þeir hafi allir „stöðugt haldið fram sak­leysi sínu og er málið til rann­sóknar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu sem hefur krafið íslensk stjórn­völd svara vegna máls­með­ferð sak­sókn­ara og dóm­stóla í Al-Thani mál­inu.“

Freyr Ein­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður sjón­varps, frétta og íþrótta hjá 365, var feng­inn til að halda utan um verk­efnið fyrir fjór­menn­ing­anna. Í sam­tali við Kjarnann sagði Freyr: „Þetta verður hugsað sem gagna­veita. Við erum að byggja upp ákveð­inn gagna­grunn með þeim mikla fjölda gagna sem til­heyra í mál­inu og von­ast til þess í leið­inni að ný gögn líti dags­ins ljós.“ Næstu mán­uði fór mikið fyrir Dags­ljósi. Tugir frétta voru birtar og stuðn­ings­greinar við mál­stað mann­anna sem birtar voru í öðrum fjöl­miðlum voru end­ur­birtar á síð­unni.

Í kringum frétta­flutn­ing af fjár­fest­ingum dóm­ara við Hæsta­rétt, í des­em­ber 2016, birt­ust á annan tug frétta á síð­unni bara um það mál. Síðasta frétt sem birt­ist á Dags­ljósi var birt­ing á end­ur­upp­töku­beiðni Magnúsar Guð­munds­sonar í Al-Thani mál­inu eftir að end­ur­upp­töku allra sem sótt­ust eftir slíkri í mál­inu var hafnað. Það gerð­ist í byrjun mars 2017. Síðasta deil­ing á frétt á Facebook-síðu Dagsljós, sem var mjög virk um tíma, átti sér stað 16. mars. Síðan þá hefur ríkt algjör þögn á síð­unni og á Facebook-síðu hennar (1.050 like).

4. www.söluferli.is (9 like á Facebook)

Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM gerði vef­síð­una Sölu­ferli.is fyrir athafna­mann­inn Ólaf Ólafsson vegna rann­sóknar nefndar á þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum. Lénið var skráð í lok nóv­em­ber 2016, áður en Ólafur, sem leiddi S-hóp­inn, hafði gefið skýrslu fyrir nefnd­inni. Síðan var hins vegar ekki sett í loftið fyrr en 17. maí, sama dag og Ólafur kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að svara spurn­ingum vegna skýrsl­unnar.

Rann­­sókn­­ar­­nefnd sem rann­sak­aði aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­­sent hlut í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í jan­úar 2003 skil­aði af sér skýrslu 29. mars síð­­ast­lið­inn. Helstu nið­­ur­­stöður nefnd­­ar­innar voru þær að stjórn­­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu verið blekktir við söl­una. Ítar­­leg gögn sýni með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­­sonar not­uðu leyn­i­­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­­legt eign­­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum í orði kveðnu.

Á vef­síð­unni býður Ólafur upp á aðra skýr­ingu. Á henni er hægt að skoða málið líkt og það horfið við honum. Forsaga þess er rakin, sölu­ferlið, eft­ir­málar og ýmis gögn birt. Mið­punktur síð­unnar er 50 mín­útna langt ávarp Ólafs Ólafs­sonar þar sem hann fer yfir málið eins og það horfir við honum. Kjarninn í þeim mál­flutn­ingi er að ðkoma erlends fjár­mála­fyr­ir­tækis hafi ekki verið grund­vall­ar­for­senda fyrir sölu rík­is­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Þá liggi það fyrir að Hauck & Auf­häuser hafi verið raun­veru­legur hlut­hafi í félag­inu Eglu, sem var hluti S-hóps­ins sem keypti ráð­andi hlut í bank­an­um.

Sölu­ferli.is var mjög virk fyrstu dag­anna eftir að hún fór í loftið en síðan hægð­ist á flóði frétta. Virknin hefur hins vegar tekið kipp síð­ustu daga og fjórar fréttir hafa birst á síð­ustu tíu dögum.

Ekki virð­ist vera mik­ill áhugi á Facebook-síðu sem sett hefur verið upp til að deila boð­skapi Sölu­ferlis.is. Einungis níu manns hafa líkað við hana þrátt fyrir að keypt hafi verið aug­lýs­ing fyrir hana til að gera síð­una sýni­legri.

5. www.jonasgeirjohannesson.is (79 like á Facebook)

Vefsíðan Jónás­geirjó­hann­es­son.is var sett í loftið 18. maí 2017 til að koma á fram­færi mál­flutn­ingi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í ýmsum málum sem að honum snúa. Lén hennar var skráð 31. jan­úar 2017. Fyrsta færslan sem þar birt­ist var vegna máls sem Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson unnu gegn íslenska rík­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu. Nið­ur­staðan var sú að ekki mætti refsa þeim tvisvar fyrir sama lög­brotið, en í þessu til­felli hafði þegar verið end­ur­á­lagt á þá skatta sem ekki voru rétt greiddir og þeir síðan ákærðir og dæmdir fyrir sömu atvik.

Aðrar fréttir sem birtar hafa verið á síð­unni snú­ast um Grím Grímsson, yfir­lög­reglu­þjón hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Jón Ásgeir birti opið bréf í Frétta­blað­inu, dag­blaði sem er að mestu í eigu eig­in­konu hans, fyrir þremur árum síð­an. Í bréf­inu sak­aði Jón Ásgeir Grím og annan lög­reglu­mann, Svein Ingi­berg Magn­ús­son, um óheið­ar­leika. Jón Ásgeir sagði menn­ina tvo hafa farið fremsta í flokki í rann­sóknum á sér á und­an­förnum árum. Orð­rétt sagði í bréf­inu: „Ég leyfi mér að vona að fleiri jafn óheið­ar­legir lög­reglu­menn fyr­ir­finn­ist ekki hér á land­i.“ Grímur kom í við­tal á RÚV seint í maí og var þar spurður út í bréf Jóns Ásgeirs. Grímur sagði að hann hafi orðið ósáttur þegar ásökun Jóns Ásgeirs var lögð fram. „Mér lík­aði það ekki. Hvorki ég né vinnu­fé­lagi minn erum óheið­ar­legir og mér líkar það ekki vel þegar slíkt er sagt opin­ber­lega.“

Jón Ásgeir svar­aði á nýju vef­síð­unni sinni og sagði að Grímur hafi sýnt af sér það sem honum finnst vera „óheið­ar­leiki á hæsta stigi þegar rann­sak­endur halda undan gögnum sem benda til sak­leysis þeirra sem eru ákærð­ir. Í Banda­ríkj­un­um ­gætu slíkir rann­sak­endur átti yfir höfði sér fang­els­is­dóma.“

Í byrjun maí var búin til Facebook-síða fyrir Jón Ásgeir sem deilir fréttum um vef­síð­unni og öðrum sem tengj­ast þeim málum sem eru þar til umfjöll­unar. Þar var frétt síð­ast deilt 30. maí. Alls hafa 79 manns líkað við síð­una.

Jón Ásgeir er á meðal þeirra sem ákærðir eru í Aurum-mál­inu svo­kall­aða. Hann hlaut einnig dóm í Baugs­mál­inu svo­kall­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár