13,6 milljarða króna ávinningur vegna VIRK

Með­al­sparn­aður á hvern ein­stak­ling sem þiggir þjón­ustu hjá starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðnum VIRK var 12,2 millj­ónir króna árið 2016.

VIRK býður upp á starfsendurhæfingarþjónustu til þess að hraða því að fólk nái fótum á atvinnumarkaði.
VIRK býður upp á starfsend­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu til þess að hraða því að fólk nái fótum á atvinnu­mark­aði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ávinn­ingur af starf­semi starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðs­ins VIRK var 13,6 millj­arðar króna árið 2016, sam­kvæmt skýrslu sem Vigfús Ásgeirs­son, trygg­inga­stærð­færð­ingur hjá Talna­könnun hf., vann fyrir VIRK.

Í til­kynn­ingu frá VIRK segir að reikn­aður með­al­sparn­aður á hvern útskrif­aðan ein­stak­ling nam 12,2 millj­ónum króna á árinu 2016 og jókst hann frá fyrra ári þegar með­al­sparn­að­ur­inn var met­inn 10,2 millj­ónir króna.

VIRK hefur það hlut­verk að efla starfs­getu ein­stak­linga í kjöl­far veik­inda eða slysa með árang­urs­ríkum hætti og hjálpa ein­stak­lingum að fóta sig á vinnu­mark­aði. Starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð­ur­inn starfar eftir lögum um atvinnu­tengda starfsend­ur­hæf­ingu og starf­semi starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóða frá 2012, en var stofn­aður árið 2008 sem sjálfs­eign­ar­stofnun af sam­tökum stétt­ar­fé­laga og atvinnu­rek­enda. Líf­eyr­is­sjóðir bætt­ust svo í hóp­inn árið 2012 og rík­is­valdið hefur haft aðkomu að sjóðnum síðan 2015.

Þetta er fjórða árið í röð sem VIRK lætur meta árangur og ávinn­ing af starf­sem­inni út frá óper­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum. Ávinn­ingur af starf­semi VIRK hefur auk­ist nokkuð síðan Talna­könnun gerði fyrstu grein­ing­una árið 2013 þegar ávinn­ingur af starfi VIRK var 9,7 millj­arðar króna.

Rekst­ar­kostn­aður VIRK nam 2,4 millj­örðum króna á árinu 2016 og hefur hækkað úr 1,3 millj­örðum árið 2013.

Í sam­an­tekt sem birt er á vef VIRK sem dag­sett er apríl 2017 segir að 11.500 ein­stak­lingar hafi leitað til starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð­isns frá upp­hafi og að nú séu rúm­lega 2.100 ein­stak­lingar sem þyggi starfsend­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu um allt land. Andlegir sjúk­dómar eða stoð­kerf­is­vanda­mál hrjá 70 pró­sent allra skjól­stæð­inga VIRK. 6.500 ein­stak­lingar hafa útskrif­ast frá VIRK og meira en 70 pró­sent þeirra virkir á vinnu­mark­aði við útskrift.

Árs­fundur VIRK er hald­inn á Grand Hótel mánu­dag­inn 24. apríl þar sem Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, mun flytja ávarp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár